| |
| 1. 2112198 - Hamarshöfn | | Kynntar tillögur að landfyllingum og varnargarði fyrir Hamarshöfn og endurskoðuð tillaga að deiliskipulagi. Sigurður Guðmundsson verkfræðingur mætti til fundarins. | | |
|
| 2. 2611174 - Hamarshöfn - Sigling | | Hafnarstjóri fór yfir tillögu varðandi flutning á listaverkinu Siglingu yfir á útkant nýrrar Hamarshafnar. | | Hafnarstjórn fer þess á leit við bæjarstjórn og stjórn Hafnarborgar að samþykkja flutning á listaverkinu Siglingu eftir Þorkel Ó. Guðmundsson sem er minnismerki um hafnfirska sjómenn, frá núverandi staðsetningu á lóð norðan við íþróttahúsið við Strandgötu yfir á nýtt hafnarsvæði Hamarshafnar þegar sú höfn verður fullkláruð. | | Sigling - minnismerki.pdf | | |
|
| 3. 2606259 - Stækkun Straumsvíkurhafnar | | Farið yfir mögulegar útfærslur á vegtengingu að nýju hafnarsvæði í Straumsvík og útfærslum á varnargarði og landfyllingum. | | |
|
| 4. 2510598 - Lenging Hvaleyrarbakka | | Rætt um tímaramma og frekari undirbúning lengingar á Hvaleyrarbakka. | | |
|
| 5. 2609181 - Hafnasambandsþing 2026 | | Lögð fram til kynningar ályktun Hafnasambandsþings 2026. | | Hafnasambandsþing_Samþykkt ályktun.pdf | | |
|