| |
| 1. 2512460 - Lántaka 2026 | | Lagt fram minnisblað. Helga Benediktsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs mætir til fundarins. | Bæjarráð leggur til að bæjarstjórn samþykki eftirfarandi bókun:
Ákvörðun um að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga sem tryggt er með veði í tekjum sveitarfélagsins:
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir hér með á sveitarstjórnarfundi að heimila Hafnarfjarðarbæ, kt.590169-7579, að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að 8.200 m.kr.og Húsnæðisskrifstofu Hafnarfjarðarbæjar, kt. 570790-1029, að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að 150 m.kr. Í fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar fyrir árið 2026auk viðaukavið við fjárhagsáætlun ársinser heimild til lántöku A-hluta Hafnarfjarðarbæjar allt að kr. 8.200 m.kr. og hjá Húsnæðisskrifstofu 150 m.kr.
Lántakan getur verið í formi skammtímaláns, sem forvera langtímaláns, eða sem langtímalán í þeim skuldabréfaflokknumsem Lánasjóður sveitarfélaga ohf. býður upp á þegar lántaka á sér staðog hefur sveitarstjórn kynnt sér skilmála skuldabréfaflokkanna eins og þeir koma fyrir í töflunni hér að ofan og finna má á heimasíðu Lánasjóðs sveitarfélaga ohf.
Til tryggingar láninu, þ.m.t. höfuðstól, uppgreiðslugjaldi, vöxtum, dráttarvöxtum og öðrum kostnaði, samþykkir bæjarstjórn að tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr., 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjur og framlögúr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, verði veðsettar.
Lántaka Hafnarfjarðarbæjar verður vegnafjármögnunar á framkvæmdum sveitarfélagsins á árinu 2026, s.s. eins og vegna gatnagerðar, nýs grunn-og leikskóla í Hamranesi, nýs bókasafns, búsetukjarna við Smyrlahraun, gatnagerðar í nýju hverfi sveitarfélagsins og nýjum félagslegum íbúðum en þessi verkefnifelaí sér að hafaalmenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.
Jafnframt er Þórði Þórarinssyni, bæjarstjóra Hafnarfjarðar, kt. 081167-5759, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Hafnarfjarðarbæjarog Húsnæðisskrifstofu Hafnarfjarðarbæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.
Bæjarráð veitir heimild til þess að ganga til samninga við Landsbanka Íslands um lánalínu upp á 2.000 m.kr. og heimild til þess að óska eftir lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga upp á 1.000 m.kr. | | |
|
| 2. 2005180 - Samgöngusáttmáli | | Árshelmingaskýrsla Betri samgangna ohf. lögð fram. | Lagt fram
Fulltrúi Miðflokksins leggur fram eftirfarandi bókun:
Fulltrúi Miðflokksins í bæjarráði telur árshelmingsskýrslu Betri samgangna staðfesta alvarlegar áhyggjur af stöðu Samgöngusáttmálans og forgangsröðun verkefna innan hans.
Áætlað er að Hafnarfjarðarbær greiði 259 milljónir króna til Samgöngusáttmálans á árinu 2026. Þrátt fyrir það eru stærstu og brýnustu samgönguverkefni bæjarins enn á frumstigi. Ekki hefur verið ákveðið hvernig staðið verði að framkvæmdum við Reykjanesbraut milli Álftanesvegar og Lækjargötu og forhönnun því ekki hafin. Af áætluðum 21,3 milljarða króna kostnaði verkefnisins hafa aðeins 314 milljónir króna verið bókaðar.
Á sama tíma hefur skapast veruleg pólitísk óvissa um framtíð, umfang og fjármögnun Borgarlínu. Þessar breyttu pólitísku forsendur fá enga efnislega umfjöllun í skýrslunni. Þá birtir skýrslan hvorki fullnægjandi samanburð við upphaflegar kostnaðar- og tímaáætlanir né skýrt uppgjör á framlögum og framkvæmdum eftir sveitarfélögum.
Fulltrúi Miðflokksins telur óásættanlegt að Hafnarfjörður greiði hundruð milljóna króna árlega inn í sáttmálann á meðan Hafnfirðingar sitja áfram fastir í umferð og brýnustu vegaframkvæmdir bæjarins komast ekki af byrjunarreit. Hafnarfjarðarbær á þegar í stað að krefjast heildarendurskoðunar Samgöngusáttmálans, aðskilnaðar vegaframkvæmda og Borgarlínu og bindandi, tímasettrar áætlunar um nauðsynlegar úrbætur á Reykjanesbraut og öðrum stofnvegum.
Verði ekki fallist á slíka endurskoðun verður að endurmeta frá grunni hvort forsendur séu fyrir áframhaldandi þátttöku Hafnarfjarðar í sáttmálanum. Áframhaldandi þátttaka bæjarins getur ekki verið sjálfgefin óháð því hvort sáttmálinn skili Hafnfirðingum þeim framkvæmdum sem þeir greiða fyrir. | | Árshelmingsskýrsla Betri samgangna 06.2026.pdf | | Fylgibréf HFJ - samgöngusáttmálinn sex mánaða skýrsla BS 2026 1.pdf | | |
|
| 3. 2607285 - Beiðni um nafnabreytingu á lóðarhafa | | Lögð fram beiðni SÁR ehf. um nafnabreytingu á úthlututun lóðar við Tunguhellu 8. | | Bæjarráð samþykkir erindið. | | Bæjarráð-16.7.2026.pdf | | |
|
| 4. 2509140 - Hraunbrún 28, breyting á stærð lóðar | | Lögð fram beiðni um lóðarstækkun. Umsögn umhverfis- og skipulagssviðs liggur fyrir. | | Bæjarráð tekur undir umsögn umhverfis- og skipulagssviðs og samþykkir beiðni um lóðarstækkun. | | Hraunbrún 28 umsögn skipulags.pdf | | |
|
| 5. 2608005 - Strandgata 41, sala | | Lagt fram kauptilboð | | Bæjarráð felur bæjarstjóra að semja um sölu eignarinnar. | | |
|
| 6. 2601467 - Framkvæmdahópur um uppbyggingu golfvallar | | Lagt fram erindisbréf og skipað í starfshóp | Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi erindisbréf með breytingum sem fram komu í umræðum á fundinum og skipar um leið eftirfarandi aðila í starfshópinn:
Guðmundur Árni Stefánsson, formaður (S) Ólafur Ingi Tómasson (D) Amanda K. Ólafsdóttir (C) Einar Geir Þorsteinsson (M) Ágúst Bjarni Garðarsson (B) | | Erindisbréf framkvæmdahópur golfvallar samykkt bæjarráð 06082026.pdf | | |
|
| |
| 7. 2601554 - Heilbrigðiseftirlit, fundargerðir 2026 | | Lögð fram fundargerð heilbrigðisnefndar frá 8.júlí sl. | | |
|