| |
| 1. 1108246 - Framkvæmd samnings SSH um samstarf vegna þjónustu við fatlað fólk | Atli Þórsson rekstrarstjóri fjölskylduþjónustu mætti til fundarins. Lögð fram ný drög að samningum milli sveitarfélaga um þjónustu hæfingarstöðva og verndaðra vinnustaða og um skammtímavistun. Einnig lögð fram drög að vinnureglum um kostnaðarskiptingu. | | Fjölskylduráð samþykkir samninginn og vísar honum til bæjarráðs. | | |
|
| 2. 11023021 - Félagsmiðstöðvar og heilsdagsskóli | | Til fundarins mætti Ellert B. Magnússon og kynnti svör við spurningum fulltrúa Sjálfstæðisflokks í fjölskylduráði frá 14. des. sl. varðandi sameiningu félagsmiðstöðva og heilsdagsskóla. | | |
|
| |
| 3. 1001167 - Námsflokkar Hafnarfjarðar, Miðstöð símenntunar | Tekin fyrir skýrsla starfshóps sem skipaður var til að endurmeta hlutverk og markmið Námsflokka Hafnarfjarðar-Miðstöðvar símenntunar og vísað var frá fræðsluráði til skoðunar í fjölskylduráði. Skýrslan var lögð fram á síðasta fundi ráðsins.
| | Lögð fram umsögn fjölskylduráðs. | | |
|
| 4. 1201189 - Öldungaráð Hafnarfjarðar og Höfn, úrsögn | | Lagt fram til kynningar erindi Valgerðar Sigurðardóttur, dags. 8. jan. sl., þar sem hún segir sig úr stjórn Öldunarmiðstöðvarinnar Hafnar og úr Öldungaráði Hafnarfjarðar vegna flutnings úr bæjarfélaginu. | | Fjölskylduráð þakkar Valgerði vel unnin störf í þágu bæjarfélagsins og óskar henni velfarnaðar í framtíðinni. | | |
|
| 5. 1112138 - Jafnréttisstefna 2012-2014 | Bæjarráð vísaði málinu til umsagnar fjölskylduráðs og fjölskylduþjónustu og ítrekaði jafnframt skil á jafnréttisskýrslu fyrir 2011 og starfsáætlun fyrir 2012. Hrönn Hilmarsdóttir, jafnréttisfulltrúi fjölskyldusviðs, mætti til fundarins og kynnti drög að jafnréttisstefnu Hafnarfjarðarbæjar 2012-2014 og niðurstöðu jafnréttiskönnunar sem gerð var meðal starfsmanna í nóvember sl.
| | Fjölskylduráð þakkar fyrir kynninguna og tekur undir efnisatriði stefnunnar. | | |
|
| 6. 0701245 - Atvinnuástandið | | Lögð fram skýrsla Vinnumálastofnunar um atvinnuástandið í des. 2011. | | |
|
| 7. 0912025 - Atvinnuleysistölur, Hafnarfirði | | Lagt fram yfirlit um atvinnuleysi í Hafnarfirði sl. 13 mánuði. | | |
|
| |
| 8. 1201011F - Íþrótta- og tómstundanefnd - 146 | | Lögð fram fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 18. jan. sl. | | Fjölskylduráð staðfestir fundargerðina. | 8.1. 1201337 - Aðgangstölur sundstaða 2011 | 8.2. 1011080 - Íþróttahátíð Hafnarfjarðar 2011 Íþrótta- og tómstundanefnd óskar öllum hafnfirskum íþróttamönnum ársins 2011 til hamingju með frábæran árangur. | 8.3. 1201357 - Húsaleigustyrkir til ÍBH 2011 yfirlit | 8.4. 11023021 - Félagsmiðstöðvar og heilsdagsskóli Deildarstjóri æskulýðs- og tómstundamála fór yfir spurningarnar og lagði fram svör við þeim. | 8.5. 1201359 - Grunnskólahátíð 2012 Grunnskólahátíðin verður haldin í Íþróttahúsinu Strandgötu, miðvikudaginn 15. febrúar. | 8.6. 1201358 - Afreksmannsjóður, boð á úthlutun | 8.7. 0702036 - Íþróttahús Kaplakrika, framkvæmdir | 8.8. 0901160 - Fundargerðir 2011, Íþróttabandalag Hafnarfjarðar ÍBH, | 8.9. 1101012 - Skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins, fundargerðir 2011 | | |
|
Aðsókn alls í sundlaugar Hafnarfjarðar árið 2011 var 576.828 sem er aukning um 50 þús gesti.