| |
| 1. SB040377 - Fundargerðir skipulags- og byggingarfulltrúa | | Lagðar fram fundargerðir frá afgreiðslufundum skipulags- og byggingarfulltrúa dags. 11.01.12 og 18.01.11. A-liður afgreiddur af byggingarfulltrúa samkvæmt mannvirkjalögum nr.160/2010. | | Lagt fram. | | |
|
| 2. 1201360 - Hellubraut 7, fyrirspurn | | Gunnar Hjaltalín leggur 17.01.2012 fyrirspurn , óskar eftir niðurrifi og uppbyggingu á lóð. sjá meðfylgjandi gögn. Lögð er fram ný ástandsskoðun hússins sem hafa verið send húsafriðunarnefnd í samræmi við lög um húsafriðun. | Sigurbergur Árnason vék af fundi við umræðu og afgreiðslu þessa erindis.
Skipulags- og byggingarráð frestar afgreiðslu fyrirspurnar og felur skipulags- og byggingarsviði að ræða við fyrirspyrjanda. | | |
|
| 3. 1201375 - Flatahraun 7.breyting á deiliskipulagi | | BJB pústþjónusta ehf sækir þann 18.01.2012 um leyfi til að gera breytingu á deiliskipulagi samkvæmt uppdrætti Sigurðar Þorvarðarsonar dags. 10. janúar 2012. | Sigurbergur Árnason tók sæti að nýju á fundinum.
Skipulags- og byggingarráð frestar afgreiðslu málsins og felur skipulags- og byggingarsviði að ræða við umsækjanda. | | |
|
| 4. 1201308 - Strandgata 55, deiliskipulagsbreyting | | Fjörukráin ehf leggur inn 13.01.2012 deiliskipulagsbreytingu, sótt er um breytingu á deiliskipulagi sem innber nýja lóð eða stækkaða og byggingarreit innan hennar. Einnig er um breytingu á götuheiti húsanna á götunni í Víkingastræti 1-3-5 samkvæmt teikningum Úti-inni arkitekta dagsettar 01.12.2011. | | Skipulags- og byggingarráð samþykkir að auglýsa skipulagið í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þegar nýr uppdráttur hefur borist. Haldinn verður kynningarfundur á auglýsingatíma. | | |
|
| 5. 1007025 - Norðurbærinn uppfærsla deiliskipulags | | Tekin fyrir að nýju tillaga skipulags- og byggingarsviðs að endurgerð deiliskipulags fyrir Norðurbæ Hafnarfjarðar, sem samþykkt var í fjárhagsáætlun 2009 og 2010 og unnin er á skipulags- og byggingarsviði. Áður lögð fram fornleifaskráning, sem send hefur verið til umsagnar fornleifaverndar ríkisins. Forstigskynningarfundur var haldinn 31.03.11. | | Skipulags- og byggingarráð samþykkir að skipulagið verði auglýst í samræmi við 43. grein skipulagslaga nr. 123/2010. Haldinn verði kynningarfundur á auglýsingatíma, þar sem fornleifaskráning svæðisins verði jafnframt kynnt. | | |
|
| 6. 0711020 - Uppland Hafnarfjarðar, rammaskipulag. | | Tekin fyrir að nýju tillaga Landslags ehf að rammaskipulagi fyrir uppland Hafnarfjarðar dags. 14.02.2008. Áður lögð fram tillaga að forsögn og minnispunktar skipulags- og byggingarsviðs frá fundi með hagsmunahópum 11. og 20. nóvember 2008. Drög að rammaskipulagi voru kynnt á fundi skipulags- og byggingarráðs þann 24. mars s.l. Skipulags- og byggingarráð vísaði erindinu 29.06.2009 til kynningar í Umhverfisnefnd/Staðardagskrá 21, Framkvæmdaráði, Fjölskylduráði og Bæjarstjórn. | | Skipulags- og byggingarráð samþykkir rammaskipulag upplandsins sem stefnumörkun fyrir landnýtingu og skipulagsgerð á svæðinu. Felur jafnframt skipulags og byggingarsviði að vinna aðgerðaáætlun varðandi helstu framkvæmdir á vegum bæjarins og taka saman yfirlit yfir þær skipulagsbreytingar sem þarf að fara í í kjölfarið. | | |
|
| 7. 0702005 - Aðalskipulag Hafnarfjarðar, raflínur og tengivirki. | | Sviðsstjóri gerir grein fyrir viðræðum við forsvarsmenn Landsnets 16.01.12. | | Lagt fram. | | |
|
| 8. 1201057 - Byggingarstig, matsstig og skráning húsnæðis. | | Tekin til umræðu byggingarstig húsnæðis, matsstig og skráning þess, ásamt aðgerðum til leiðréttingar. Kynnt verður aðgerðaáætlun skipulags- og byggingarsviðs og listar sendir Þjóðskrá Íslands. Lögð fram greinargerð sviðsstjóra dags. 23.01.12. | | Lagt fram. | | |
|