| |
| 1. 1201362 - Samræmd könnunarpróf í 4., 7. og 10. bekk 2012 | | Lagt fram bréf frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu um dagsetningar samræmdra könnunarprófa í 4. 7. og 10. bekk haustið 2012. | | |
|
| 2. 1201428 - Skólahreysti 2012, umsókn um styrk | | Lögð fram umsókn frá Skólahreysti um 200.000 kr. styrk vegna Skólahreysti 2012. | | Erindi bíður afgreiðslu í samræmi við reglur fræðsluráðs. | | |
|
| 3. 1201082 - Skólaskipan í Hafnarfirði | Tekið fyrir að nýju frá síðasta fundi. Eftirtaldir skipa starfshópinn: Frá Samfylkingu: Eyjólfur Sæmundsson Frá Vinstri grænum: Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir Frá Sjálfstæðisflokki: Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir Sviðsstjóri: Magnús Baldursson Rekstrarstjóri: Guðmundur Sverrisson Þróunarfulltrúi grunnskóla: Vigfús Hallgrímsson Þróunarfulltrúi leikskóla: Sigurborg Kristjánsdóttir Skólastjóri grunnskóla: Sigurður Björgvinsson Leikskólastjóri: Ásta María Björnsdóttir Fulltrúi foreldra grunnskólabarna: Jóhanna Sveinbjörg B. Traustadóttir Fulltrúi foreldra leikskólabarna: Lilja Gréta Kristjánsdóttir Norðdahl
Lögð fram fundargerð 1. fundar stýrihóps. Lögð fram drög að erindisbréfi starfshóps um skólaskipan í Hafnarfirði. | | Erindisbréf samþykkt með smávægilegri orðalagsbreytingu. Samþykkt að formaður stýrihópsins verði Guðrún Á. Guðmundsdóttir. | | |
|
| 4. 1112138 - Jafnréttisstefna 2012-2014 | Á fundi bæjarráðs 12. janúar sl. var eftirfarandi til umfjöllunar: "Lögð fram drög að jafnréttisstefnu Hafnarfjarðarbæjar 2012-2014 og niðurstaða jafnréttiskönnunar sem gerð var meðal starfsmanna í nóvember sl. Einnig lögð fram jafnréttisskýrsla fræðsluþjónustu 2011." "Bæjarráð óskar eftir umsögn fjölskylduráðs, fræðsluráðs, skipulags- og byggingarráðs og umhverfis-og framkvæmdaráðs. Einnig frá fjölskylduþjónustu, fræðsluþjónustu, skipulags- og byggingarmálum og umhverfi- og framkvæmdum jafnframt sem ítrekað er að þessir aðilar skili jafnréttisskýrslu fyrir 2011 og starfsáætlun fyrir 2012."
| Engar efnislegar ábendingar við jafnréttisstefnuna frá fræðsluráði. Jafnframt kom fram að fræðsluþjónustan mun ekki gera athugasemdir eða ábendingar við jafnréttisstefnuna.
Bókuð ábending: Áheyrnarfulltrúi foreldra grunnskólabarna bendir á jafnrétti barna til lengdar skóladags. Þeir nemendur sem t.d. fara með rútu í leikfimi og sund eru með lengri stundaskrá en þeir nemendur sem þurfa ekki að gera slíkt. Alls eru það þrír skólar sem ekki hafa íþróttahús, Áslandsskóli, Hvaleyrarskóli og Öldutúnsskóli, og vonandi mun jafnréttisstefna Hafnarfjarðar taka tillit til þess. | | |
|
| 5. 10102849 - Sumarlokun leikskóla | Tekið fyrir að nýju frá síðasta fundi ráðsins. Lagðar fram umsagnir foreldraráða sem borist hafa, þ.e. foreldraráðum frá Hlíðarbergi, Hraunvallaskóla og Hvammi en auk þess frá samráði foreldraráða leikskóla í Hafnarfirði. | Málið bíður afgreiðslu til næsta fundar.
Á fundinn mætti fulltrúi ÍTH, Páll Arnar Sveinbjörnsson, til að ræða opnun gæsluvalla bæjarins meðan sumarlokun leikskóla stendur yfir. | | |
|
| 6. 1104364 - Skóladagatöl leikskóla 2011-2012 | | Lögð fram bréf frá leikskólunum Hlíðarbergi og Arnarbergi þar sem óskað er eftir tilfærslu á skipulagsdegi. Umsagnir foreldraráða liggja fyrir. | | Samþykkt. | | |
|
| 7. 1201444 - Rannsóknarverkefni í leikskólum | | Kynnt samningsdrög milli RannUng og sveitarfélaga í kraganum um rannsóknarverkefni í leikskólum. | | |
|
| 8. 1201464 - Fjölgun barna á leikskóladeildum | Á fundi fræðsluráðs 28. nóvember sl. var sviðsstjóra falið að gera könnun á því hvort fjölga mætti börnum á leikskóladeildum í leikskólum Hafnarfjarðar á næsta skólaári. Lögð fram svör leikskólastjóra. | | Lagt fram minnisblað fræðslustjóra um málið. Málinu vísað til frekari vinnslu starfshópsins um skólaskipan. | | |
|