Til bakaPrenta
Íþrótta- og tómstundanefnd - 147

Haldinn í Íþróttahúsinu við Strandgötu,
01.02.2012 og hófst hann kl. 15:00
Fundinn sátu: Ragnheiður Ólafsdóttir aðalmaður,
Klara Hallgrímsdóttir aðalmaður,
Helga Vala Gunnarsdóttir aðalmaður,
Hrafnkell Marinósson áheyrnarfulltrúi,
Ellert Baldur Magnússon starfsmaður,
Ingvar Sigurður Jónsson starfsmaður,
Daníel Pétursson fundarritari,
Fundargerð ritaði: Daníel Pétursson, 


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 1201547 - Aðsóknartölur í íþróttahús og íþróttamiðstöðvar
Lagt fram yfirlit um aðsóknartölur í íþróttahús og íþróttamiðstöðvar Hafnarfjarðar fyrir árið 2011. Aðsókn alls í íþróttahús í Hafnarfirði var 1.468.494 sem er aukning um 76 þús gesti.
.
2. 1201548 - Afreksmannasjóður, úthlutun
Lagt fram til upplýsinga yfirlit yfir þau aðildarfélög ÍBH sem fengu styrk úr afreksmannasjóði Íþróttabandalags Hafnarfjarðar Þá var jafnframt farið yfir heildarúthlutun úr Afreksmannasjóði á árinu 2011 og kemur þar fram að samtals var úthlutað til afreksmála 7,655 milljónum á árinu.
3. 1201549 - Lífshlaupið 2012, Fræðslu- og hvatningarverkefni ÍSÍ
Lögð fram til kynningar dagskrá fræðslu- og hvatningarverkefnisins Lífshlaupið á vegum Íþróttasambands Íslands.
4. 1201517 - Skíðasvæðið í Skálafelli, erindi KR
Lagt fram erindi til kynningar, stjórnar Skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins dags. 20. janúar 2012 þar sem gerð er grein fyrir hugmyndum íþróttafélagsins KR varðandi opnun skíðasvæðisins í Skálafelli.
Hörður Þorsteinsson sem er í stjórn skíðasvæða, mætti til fundarins og fór yfir málið.
5. 1201556 - Atvinnutorg-atvinnuleitandi ungmenni
Forvarnarafulltrúi, Geir Bjarnason mætti til fundarins, með kynning varðandi ungmenni í atvinnuleit.
6. 1201582 - Viðburðir hjá Í.T.H
Deildarstjóri æskulýðs- og tómstundamála sagði frá helstu viðburðum hjá ÍTH: Grunnskólahátíð. Söngvakeppni og Hroll.
7. 1201584 - 17. júní, framkvæmdanefnd
Rætt um skipulagningu 17. júní hátíðarhalda.
Þjóðhátíðarnefnd skipa aðalmenn íþrótta- og tómstundanefndar og framkvæmdarnefnd skipa starfsmenn skrifstofu æskulýðs- og tómstundamála og forvarnarfulltrúi.
10. 11023021 - Félagsmiðstöðvar og heilsdagsskóli
Lagðar fram spurningar fulltrúa Sjálfstæðisflokksins vegna sameiningar heildagsskóla og félagmiðstöðva
Deildarstjóra æskulýðs- og tómstundamála mun svara spurningum.
Fundargerðir
8. 0901160 - Fundargerðir 2011, Íþróttabandalag Hafnarfjarðar ÍBH,
Lögð fram til kynningar fundargerð Íþróttabandalags Hafnarfjarðar frá 16.01 2012
9. 1101012 - Skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins, fundargerðir 2011
Lögð fram til kynningar fundagerð stjórnar skíðasvæða höfuðborgarsvæðis frá 20.01 2012
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl.  

Til bakaPrenta