| |
| 1. SB040377 - Fundargerðir skipulags- og byggingarfulltrúa | | Lagðar fram fundargerðir frá afgreiðslufundum skipulags- og byggingarfulltrúa dags. 25.01.12 og 01.02.11. A-liður afgreiddur af byggingarfulltrúa samkvæmt mannvirkjalögum nr.160/2010. | | Lagt fram. | | |
|
| 2. 1201561 - Vallarbarð 12,fyrirspurn um breytingu á deiliskipulagi | | Þorsteinn Svavarsson leggur 27.01.12 inn fyrirspurn um breytingu á deiliskipulagi vegna Vallarbarðs 12. | | Skipulags- og byggingarráð tekur jákvætt í fyrirspurnina en bendir á að sækja þarf um breytingu á deiliskipulagi, sem þá yrði grenndarkynnt. | | |
|
| 3. 1201375 - Flatahraun 7.breyting á deiliskipulagi | | BJB pústþjónusta ehf sækir þann 18.01.2012 um leyfi til að gera breytingu á deiliskipulagi samkvæmt uppdrætti Sigurðar Þorvarðarsonar dags. 10. janúar 2012. | | Skipulags- og byggingarráð vísar erindinu í auglýsingu skv. 43. grein skipulagslaga nr. 123/2010 þegar leiðréttur uppdráttur hefur borist með leiðréttri vegg- og mænishæð. Einnig skal sýna byggingarreit fyrir kjallararými ef það nær út fyrir byggingarreit jarðhæðar. | | |
|
| 4. 1112193 - Óseyrarbraut 17, deiliskipulagsbreyting | | Rekstrarfélagið Eskja sækir um þann 28.12.2011 að gera breytingu á deiliskipulagi vegna Óseyrarbrautar 17 samkvæmt teikningu Arnars Skjaldarsonar. Sjá einnig meðfylgandi greinargerð. Skipulags- og byggingarfulltrúi óskaði eftir umsögn hafnarstjórnar sem nú liggur fyrir, og vísaði erindinu síðan til skipulags- og byggingarráðs. | | Skipulags- og byggingarráð hemilar umsækjanda að vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við erindið, sem síðan verður auglýst skv. 43. grein skipulagslaga nr. 123/2010. Samkvæmt ósk hafnarstjórnar skal sami skipulagshöfundur vera að skipulagi allra lóða á hafnarsvæðinu. | | |
|
| 5. 1202029 - Umferðarmál í miðbænum | | Tekin til umræð umferðarmál í miðbæ Hafnarfjarðar, einkum hvað varðar tengingu Norðurbakka við reit R2 og umferðartengingu Fjarðargötu og Lækjargötu. | | Skipulags- og byggingarráð leggur til að vinstri beygja verði bönnuð úr Fjarðargötu inn á Lækjargötu til austurs og óskar eftir að skipulags- og byggingarsvið ásamt umhverfis- og framkvæmdasviði vinni tillögu að nánari útfærslu á gatnamótunum. Umræðu um gatnamót Fjarðargötu/Vesturgötu/Strandgötu/Reykjavíkurvegar frestað milli funda. | | |
|
| 6. 1107151 - Koparhella og Gullhella, lokun hringaksturs | | Steypistöðin Borg óskar eftir að fá að loka hringakstri við Koparhellu norðan við lóð Hlaðbæ Colas á Gullhellu 1. Skriflegt samþykki Hlaðbæ Colas hefur borist. | | Skipulags- og byggingarráð samþykkir tímabundna lokun til reynslu. Samþykki aðliggjandi lóðarhafa liggur fyrir. | | |
|
| 7. 1201360 - Hellubraut 7, fyrirspurn | | Gunnar Hjaltalín leggur 17.01.2012 fyrirspurn , óskar eftir niðurrifi og uppbyggingu á lóð. sjá meðfylgjandi gögn. Lögð er fram ný ástandsskoðun hússins sem hafa verið send húsafriðunarnefnd í samræmi við lög um húsafriðun. Lögð fram umsögn Húsafriðunarnefndar. | | Skipulags- og byggingarráð frestar erindinu og óskar eftir nánari upplýsingum um áform umsækjanda um uppbyggingu eftir hugsanlegt niðurrif. | | |
|
| 8. 1112197 - Dalsás 2-6, breyting | | Tekið fyrir að nýju erindi Ingvars og Kristjáns ehf sem sækja 29.12.2011 um breytingar á áður samþykktum teikningum, samkvæmt teikningum Sigurðar Þorvarðarsonar dagsettum 20.12.2011. Nýjar teikningar hafa borist. | | Í gildandi skipulagi er gert ráð fyrir bílakjöllurum við öll fjölbýlishús í Dalsási og Brekkuási og eru þau öll þegar fullbyggð nema Dalsás 2-6. Skipulags- og byggingarráð tekur neikvætt í erindið eins og það liggur fyrir, en heimilar umsækjanda að vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi hvað varðar fjölda hæða og útfærslu á bílakjallara. | | |
|
| 9. 1107149 - Aðalskipulag Norðurbær breyting | | Tekin til umræðu breyting á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005 - 2025 hvað varðar Norðurbæinn í Hafnarfirði. Jafnframt er unnið að endurskoðun deiliskipulags Norðurbæjarins. Kynningarfundur á aðalskipulagi og deiliskipulagi var haldinn 31. mars 2011. | Skipulags- og byggingarráð samþykkir að tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005-2025 hvað varðar Norðurbæ Hafnarfjarðar dags. 11.07.2011 verði sett í auglýsingu skv. 31. grein skipulagslaga nr. 123/2010. Jafnframt verður umsagnartími deiliskipulags framlengdur sem nemur auglýsingartíma aðalskipulagsins. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005-2025 hvað varðar Norðurbæ Hafnarfjarðar dags. 11.07.2011 verði sett í auglýsingu skv. 31. grein skipulagslaga nr. 123/2010." | | |
|
| 10. 1011407 - Hreinsunarátak iðnaðarsvæða 2010-2011 | | Tekin til umræðu niðurstaða átaksins. | | Skipulags- og byggingarráð felur skipulags- og byggingarsviði að taka saman lokamagntölur og yfirlit yfir árangur átaksins sem hefur staðið yfir frá hausti 2011 til janúar 2012. Viðurkenningar verða veittar þeim 3 fyrirtækjum sem voru virkust í átakinu og hafa þar með bætt til muna umgengni og útlit á lóðum sínum. | | |
|
| 11. 1202028 - Merking húsa | | Tekin til umræðu hugmynd um viðurkenningu þeirra húsa þar sem vel er hugað að útliti, varðveislu og umhverfi húsanna. | | Skipulags- og byggingarráð samþykkir að gera átak í að kynna söguleg hús í Hafnarfirði á heimasíðu bæjarins. Tekið verði tillit til bæði menningarsögulegs- og byggingarlistasögulegs gildis byggingarinnar og tengsl hennar við umhverfið. SBH felur sviðsstjóra að vinna að undirbúningu verkefnisins í samvinnu við Byggðasafn Hafnarfjarðar og boða fulltrúa Byggðasafnsins á næsta fund ráðsins. | | |
|
| 12. 1112138 - Jafnréttisstefna 2012-2014 | | Tekin til umræðu jafnréttisstefna Hafnarfjarðar 2012-2014. Bæjarráð óskaði 12.01.12 eftir umsögn skipulags- og byggingarráðs og skipulags- og byggingarsviði jafnframt sem ítrekað var að þessir aðilar skili jafréttisskýrslu fyrir 2011 og starfsáætlun fyrir 2012. Lögð fram umsögn jafnréttisfulltrúa. | | Skipulags- og byggingarráð tekur undir umsögn jafnréttisfulltrúa skipulags- og byggingarsviðs. | | |
|
| 13. 1202031 - Skipulags- og byggingarmál, stjórnsýsla, starfsreglur og siðareglur. | | Tekin til umræðu stjórnsýsluleg staða sviðsins og sviðsstjóra, ásamt starfsreglum fyrir sviðið, siðareglum sviðsins og starfsmanna Hafnarfjarðarbæjar og siðareglum kjörinna fulltrúa. | | Lagt fram. | | |
|
| 14. 1202036 - Aðalskipulagsbreyting Vogum, Keilisnesi, skipulags og matslýsing | | Lagt fram bréf Sigurðar H Valtýssonar skipulags- og byggingarfulltrúa Sveitarfélagsins Voga dags. 27.01.12, þar sem vísað er til umsagnar tillögu að breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins hvað varðar Keilisnes, skipulags- og matslýsing. Umsagnarfrestur er til 17.02.12. | | Skipulags- og byggingarráð gerir ekki athugasemdir við skipulags- og matslýsinguna, þar sem fram kemur að fallið er frá skipulagi sem gerir ráð fyrir athafna- og iðnaðarsvæði fyrir matvæla og liftæknistarfsemi. Skipulags- og byggingarráð leggur áherslu á að sérstaklega verði gætt að forminjum á svæðinu sem og aðkomu og andrými nærliggjandi minjasvæða við Kálfatjörn. Skipulags- og byggingarráð mælist ennfremur til þess að á deiliskipulagsstigi verði gerðar kröfur um að við hönnun mannvirkja verði sérstök áhersla lögð á að takmarka sem kostur er sjónræn áhrif uppbyggingar á þessu svæði. | | |
|
| 15. 1202053 - Samgönguáætlun 2011-2022, 393. mál | | Lagt fram erindi Umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis dags. 03.02.2012 þar sem vísað er til umsagnar Samgönguáætlun 2011-2022, mál. 393. Umsagnarfrestur er til 29.02.2012. Vefslóð http://www.althingi.is/altext/140/s/0534.html | | Skipulags- og byggingarráð felur sviðsstjóra að gera tillögu að umsögn í samráði við umhverfis- og framkvæmdasvið. | | |
|
| 16. 1202050 - Samgönguáætlun 2011-2014, 392. mál | | Lagt fram erindi Umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis dags. 03.02.2012 þar sem vísað er til umsagnar Samgönguáætlun 2011-2014, mál. 392. Umsagnarfrestur er til 29.02.2012. Vefslóð http://www.althingi.is/altext/140/s/0533.html | | Skipulags- og byggingarráð felur sviðsstjóra að gera tillögu að umsögn í samráði við umhverfis- og framkvæmdasvið. | | |
|
| 17. 1202058 - Frumvarp um Vegagerðina, mál 273 | | Lagt fram erindi Umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis dags. 03.02.2012 þar sem vísað er til umsagnar frumvarpi um Vegagerðina, mál. 272. Umsagnarfrestur er til 13.02.2012. Vefslóð http://www.althingi.is/altext/140/s/0301.html | | Skipulags- og byggingarráð felur sviðsstjóra að gera umsögn í samræmi við umræður á fundinum. | | |
|