| |
| 1. 2208015 - Aðalskipulag Hafnarfjarðar 2026-2038 | | Á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar þann 22. apríl sl. var samþykkt uppfærð tillaga að aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2025-2040. Tillagan var í auglýsingu 7.5.-18.6.2026. Kynningarfundur var haldinn að Ásvöllum 20. maí sl. Athugasemdir sem bárust á kynningartíma voru lagðar fram í skipulags- og byggingarráði 23.6.2026. Lögð fram viðbrögð Hafnarfjarðarbæjar við framkomnum athugasemdum ásamt uppfærðri tillögu að aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2025-2040. | Fulltrúar Viðreisnar, Sjálfstæðisflokks, Samfylkingarinnar og Framsóknar í skipulags- og byggingarráði taka undir svör við athugasemdum og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja uppfærða tillögu að aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2025-2040. Fulltrúi Miðflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins.
Fulltrúi Miðflokksins bókar: Forsendur aðalskipulagsins byggir á framkvæmdum samgöngusáttmálans og Borgarlínu, þótt samgöngusáttmálinn sé ekki fullfjármagnaður og óvissa ríki um framvindu hans. Ekki liggur fyrir mat á áhrifum fyrirhugaðrar uppbyggingar ef Borgarlínan og aðrar lykilframkvæmdir tefjast eða koma ekki til framkvæmda. Fulltrúi Miðflokksins telur mikilvægt að það liggi fyrir áður en aðalskipulag er samþykkt.
Meirihluti skipulags- og byggingarráðs bókar: Aðalskipulag Hafnarfjarðar er áætlun og framíðarsýn bæjarins í skipulags- og byggingarmálum til ársins 2040. Þar er fjallað m.a. um uppbyggingu íbúðar-, atvinnu- og iðnaðarhúsnæðis ásamt samgöngumálum ofl. Aðalskipulagið byggir þannig á margvíslegum áætlunum s.s. um fjölgun íbúa ofl. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum sem aðalskipulagið byggir á þá er Borgarlína á áætlun og ekki ástæða til að gera mat um annað. | | Slóð á skipulagsgátt.pdf | | |
|
| 2. 2602450 - Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2027 og 2028-2030. | | Farið yfir stöðu vinnu við gerð fjárhagsáætlunar 2027 og þjónustugjaldskrá skipulags- og byggingarfulltrúa lögð fram. | | Lagt fram. | | |
|
| 3. 2607281 - Suðurbakki, þjónustuhús, breyting á deiliskipulagi | | Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 12.08.2026 var samþykkt að grenndarkynna með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga tillögu að breyttu deiliskipulagi Suðurhafnar Hafnarfjarðar. Tillgan gerir ráð fyrir þjónustuhúsi Á Suðurbakka, á reit 4.1 norðan Fornubúða 5, verði ný lóð og byggingarreitur innan hennar fyrir þjónustuhús skemmtiferðaskipa. Stærð lóðarinnar er 325,2 fm. Tillagan var grenndarkynnt frá 14.08.2026 til 11.09.2026. Lögð fram svör við framkomnum athugasemdum. Lagður fram uppfærður uppdráttur í samræmi við framkomnar athugasemdir. | | Skipulags- og byggingarráð tekur undir svör við athugasemdum og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja uppfærða tillögu að breytingu á deiliskipulagi Suðurhafnar, reitur 4.4, vegna nýrrar lóðar undir þjónustuhús. | | Suðurbakki, samantekt athugasemda og svör.pdf | | Suðurbakki-Þjónustuhús skemmtiferðaskipa, reitur 4.1 - Breytt deiliskipulag 2026.07.22 Br.2026.09.17 v. ath.semda.pdf | | Suðurbakki, slóð á skipulagsgátt.pdf | | |
|
| 4. 2506152 - Skólabraut 5, breyting á deiliskipulagi | Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 01.10.2025 var samþykkt að grenndarkynna erindi Jóns Grétars Magnússonar f.h. lóðarhafa um breytingu á deiliskipulagi. Tillaga gerir ráð fyrir breytingu á legu byggingarreits þannig að hann verði samsíða Hverfisgötu 56 og 58. Hámarksnýtingarhlutfall hækkar í 0,45. Fyrirhugað er að reisa einnar hæða hús með kjallara og risi á lóðinni. Erindið var grenndarkynnt frá 25.02.2026 til 25.03.2026. Lögð fram svör við athugasemdum ásamt uppfærðri tillögu. | | Skipulags- og byggingarráð tekur undir svör við athugasemdum og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja uppfærða tillögu að breytingu á deiliskipulagi | | Skólabraut 5, samantekt athugasemda og svör.pdf | | 0617 Hverfisgata 52 Deiliskipulag _ 2026.09.11.pdf | | slóð á skipulagsgátt.pdf | | |
|
| |
| 5. 1901181 - Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins, fundargerðir | | Lögð fram fundargerð svæðisskipulagsnefndar nr. 148. | | Svæðisskipulagsnefnd - 148 .pdf | | |
|
| 6. 2609014F - Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa - 955 | | Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar. | | Lagt fram. | | https://hafnarfjordur.is/fundagerd/?meeting_id=MCvSmESf6UiAhtl0N4xRg1
| |
|