Til bakaPrenta
Umhverfis- og framkvæmdaráð - 307

Haldinn í fundarherbergi Norðurhellu 2,
18.04.2018 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Helga Ingólfsdóttir formaður,
Helga Björg Arnardóttir varaformaður,
Unnur Lára Bryde aðalmaður,
Friðþjófur Helgi Karlsson aðalmaður,
Eyrún Ósk Jónsdóttir aðalmaður,
Birna Ólafsdóttir áheyrnarfulltrúi,
Fundargerð ritaði: Jóna Ósk Guðjónsdóttir, skrifstofustjóri
Auk ofangreindra ráðsmanna sátu Sigurður Haraldsson sviðsstjóri og Helga Stefánsdóttir aðstoðarsviðsstjóri fundinn.


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 1710052 - Kaldárselsvegur, gatnagerð
Fulltrúi VSB verkfræðistofu og Landslags mættu til fundarins og kynnti fyrirhugaða framkvæmd.
Óskað er eftir heimild til að bjóða verkið út.
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að bjóða út gatnagerð við Kaldárselsveg í samræmi við fjárhagsáætlun.
Kaldárselsvegur - framkv.leyfi.pdf
Kaldárselsvegur_180418_kynning fyrir framkvæmdaráð.pdf
2. 1006286 - Umhverfis- og auðlindastefna.
Tekin fyrir að nýju drög að umhverfis- og auðlindastefnu ásamt umsögnum sem borist hafa.
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir umhverfis- og auðlindastefnuna fyrir sitt leyti og leggur til við bæjarstjórn:
"Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir fyrirliggjandi drög umhverfis- og auðlindastefnu dags. í apríl 2018."

Umhverfis- og framkvæmdaráð fagnar framkominni stefnu og þakkar starfshópnum og starfsmönnum vel unnin störf.
3. 1802400 - Leikskólinn Hvammur, viðbygging
Lögð fram tillboð í viðbyggingu við leikskólann Hvamm, eitt tilboð barst.
Umhverfis- og framkvæmdaráð heimilar umhverfis- og skipulagsþjónustu að leita samninga við lægstbjóðanda.
Hvammur - niðurstaða tilboða 050418-ráð-2.pdf
4. 1801099 - Kaplakriki, framkvæmdir
Alútboð vegna knatthúss í Kaplakrika tekin fyrir að nýju.
Lagt fram umbeðið minnisblað sviðsstjóra um ferli útboðsins.
Umhverfis- og framkvæmdaráð hafnar framkomnum tilboðum og leggur fram eftirfarandi bókun:
"Við opnun tilboða hinn 26. mars sl. kom í ljós að allir þrír bjóðendur buðu fram verð í knatthúsið sem var á bilinu 1.102 millj. til 1.154 millj. króna. Við undirbúning verkefnisins var lagt til grundvallar að heildarkostnaður yrði um 700 til 750 milljónir og í fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar er miðað við 720 milljónir króna. Verður af þeim sökum að hafna öllum tilboðum. Vísað er til lokamálsgreinar gr. 0.1.2. útboðsgagna um heimildir til að hafna öllum
framkomnum tilboðum, þeirra forsendna sem lagðar voru fyrir verkefninu á fundi bæjarráðs hinn 19. október 2017 og fjárhagsáætlunar sveitarfélagsins 2018-2021, bls. 50, þar sem miðað var við að leggja samtals 720 milljónir króna í verkefnið. Tilboðsfjárhæðirnar rúmast ekki innan þessara forsenda"
Niðurstaða alútboðs minnisblað 16 apríl 2018.pdf
5. 1602126 - Strætó, leiðarkerfi í Hafnarfirði
Tekin fyrir að nýju tillaga að nýju leiðarkerfi Strætó innanbæjar í Hafnarfirði og leið 21.
Umhverfis- og framkvæmdaráð felur umhverfis- og skipulagsþjónustu að óska eftir viðræðum við Strætó bs um þessar breytingar.
6. 16011208 - Leiðarendi, aðgerðir og verndun
Tekið fyrir og nýju.
Lögð fram drög af samningi við Hellarannsóknarfélagið um ráðgjöf vegna aðgerða við hellinn.
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir fyrirliggjandi drög með þeim ábendingum sem fram komu á fundinum og heimilar að leitað verði samninga við Hellnarannsóknarfélagið á grundvelli þeirra.
7. 1106043 - Gatnalýsing í Hafnarfirði
Gatnalýsing í Hafnarfirði og endurnýjun á kúplum yfir í led lýsingu tekin til umfjöllunar að nýju.
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að fara í endunýjun á kúplum á næstu 5 árum í samræmi við áætlun þar að lútandi.
LED væðing 5 til 10 ára plan mars 2018.pdf
8. 1709606 - Veraldarvinir, sjálfboðavinna í Hafnarfirði
Lögð fram drög að samningi milli Hafnarfjarðarbæjar og Veraldarvina um þátttöku sjálfboðaliða í umhverfisverkefnum sumarið 2018.
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir fyrirliggjandi drög að samningi við Veraldarvini um umhverfisverkefni sumarið 2018.
Samingur milli Hafnarfjarðar og Veraldarvina.pdf
9. 0801336 - Norðurbakki, yfirborðsfrágangur
Kynntar fyrirhugaðar framkvæmdir við Norðurbakkann.
Lagt fram til kynningar.

Tillaga af yfirborðsfrágangi 311014

.pdf
Noðrubakki - framkv.leyfi 2018.pdf
10. 1804223 - Merkingar á stofnunum bæjarins
Merkingar stofnana bæjarins teknar til umfjöllunar.
Umhverfis- og framkvæmdaráð felur umhverfis- og skipulagsþjónustu að leggja fram kostnaðarmat vegna merkinga stofnana.
11. 1111340 - Ásvellir, merkingar á íþróttahúsi Hauka, Schenker.
Merkingar á íþróttahúsinu á Ásvöllum teknar fyrir en ekki liggur fyrir formlegt samþykki fyrir Schenker merkinu.
Umhverfis- og framkvæmdaráð bendir á að ekki liggur fyrir leyfi fyrir merkingu hússins með ofangreindum hætti og felur umhverfis- og skipulagsþjónustu að sjá til þess að óheimilar merkingar verði fjarlægðar.
12. 1711319 - Vistvangur, uppgræðsla í Krýsuvík 2018, áform
Kynnt tillaga að upplýsingaskilti um Vistvanginn sem sett verður upp í Krýsuvík.
Lagt fram til kynningar.
Skilti 981x434_Vistvangur_feb2018_Final.pdf
13. 1706086 - Skólahreystibraut
Tekin fyrir að nýju ósk um skólahreystibraut á Víðistaðatúni og lögð fram tillaga að nýrri staðsetningu.
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að kynna nýja staðsetningu fyrir fræðsluráði.
Hreystivöllur.pdf
Hreystivöllur II.pdf
Asvellir_sundlaug_austun megin hreysti-Model.pdf
IMG_5358.pdf
IMG_5354.pdf
14. 1803044 - Akstursíþróttafélag Hafnarfjarðar,mannvirki
Lögð fram bókun íþrótta- og tómstundarnefndar og erindi AÍH varðandi viðhald á svæði félagsins tekið fyrir að nýju.
Umhverfis- og framkvæmdaráð óskar eftir frekari kynningu á erindinu.
Íþrótta- og tómstundanefnd - 268 (11.4.2018) - Akstursíþróttafélag Hafnarfjarðar,mannvirki.pdf
Erindi AÍH vegna nauðsynlegs viðhalds íþróttamannvirkja..docx(1).pdf
15. 1702008 - Öryggis- og eftirlitsmyndavélar í landi Hafnarfjarðar
Öryggis- og eftirlitsmyndavélar í bænum teknar til umfjöllunar að nýju.
Umhverfis- og framkvæmdaráð felur umhverfis- og skipulagsþjónustu að leggja fram kostnaðarmat á uppsetningu öryggis- og eftirlitsmyndavéla á völdum opnum svæðum, miðbænum og stofnleiðum inn í hverfi.
Fundargerðir
16. 1708176 - Skóli í Skarðshlíð, framkvæmdir
Lagðar fram verkfundargerðir nr. 3 og 4 og fundargerð stöðufunda með verktaka nr. 15.
Lagt fram til kynningar.
17. 1411359 - Ásvellir, starfshópur v/uppbyggingar 2015
Lögð fram fundargerð starfshópsins nr. 21 og verkfundagerðir nr. 32 og 33.
Lagt fram til kynningar.
18. 1506568 - Sólvangsvegur, hjúkrunarheimili Sólvangssvæði
Lögð fram fundargerð starfshóps nr. 33.
Lagt fram til kynningar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:30 

Til bakaPrenta