Til bakaPrenta
Skipulags- og byggingarráð - 647

Haldinn í fundarherbergi Norðurhellu 2,
16.04.2018 og hófst hann kl. 13:00
Fundinn sátu: Ólafur Ingi Tómasson formaður,
Eva Lín Vilhjálmsdóttir aðalmaður,
Júlíus Andri Þórðarson aðalmaður,
Helga Björg Arnardóttir aðalmaður,
Hörður Svavarsson aðalmaður,
Fundargerð ritaði: Jóna Ósk Guðjónsdóttir, fv. skrifstofustjóri
Auk ofangreindra ráðsmanna sat Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi fundinn.


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 1708457 - Hraun vestur, deiliskipulag
Lögð fram tillaga að breyttu aðalskipulagi reits sem afmarkast af Reykjavíkurvegi, Fjarðarhrauni og Flatahrauni. Landnotkun reitsins breytist úr athafnasvæði, verslunar og þjónustusvæði og íbúðarsvæði í miðsvæði.
Lögð fram drög að skipulagslýsingu dags. 26. mars 2018.
Lagt fram.
Skipulagsfulltrúa falið að undirbúa breytingu á núverandi greinagerð aðalskipulags með vísan til fyrirliggjandi tillögu.
ASK_2013_2025_Hraun_Vestur_tillaga1.pdf
2. 1706356 - Miðbær, deiliskipulag, endurskoðun
Farið yfir stöðu verkefnisins og áframhaldandi vinna við endurskoðun deiliskipulags miðbæjarins kynnt.
Tímaáætlun ásamt kostnaðaráætlun vegna verkefnisins verður lögð fram á næsta fundi.
Til upplýsinga.
3. 1801175 - Bátaskýlin við Lónsbraut, reglur um umgengni og þrifnað
Á fundi skipulags- og byggingarráðs þann 20. febrúar 2018 var samþykkt tillaga að skilmálabreytingu deiliskipulags svæðisins og hún auglýst í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Auglýsingatíma er lokið og barst ein athugasemd.
Lögð fram tillaga að umsögn umhverfis- og skipulagsþjónustu dags. 4. apríl 2018.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir umsögn umhverfis- og skipulagsþjónustu dags. 4. apríl 2018 fyrir sitt leiti og vísar eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar:
"Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir fyrirliggjandi tillögu að breytingu á deiliskipulaginu "Suðurhöfn deiliskipulag" vegna bátaskýla við Hvaleyrarlón í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010."
Scan_icelaw_thordur_201803284303_001.pdf
Umsögn umhverfis- og skipulagsþjónustu.pdf
Lónsbraut_grennd_280218.pdf
Bátaskýli deiliskipulag.pdf
4. 1604501 - Skarðshlíð 2. áfangi, deiliskipulag
Á fundi skipulags- og byggingarráðs þann 23. janúar sl. voru djúpgámalóðir í Skarðshlíð 2. áfanga til umfjöllunar. Skipulags- og byggingarráð samþykkti með vísan til 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga að unnin yrði breyting á skilmálum 2. áfanga Skarðshlíðar er varða meðferð sorps og djúpgámalóðir. Tillaga að skilmálabreytingunni var grenndarkynnt frá 01.03. - 31.03.2018. Athugasemdir bárust.
Skipulags- og byggingarráð felur skipulagsfulltrúa að leggja fram umsögn um framkomnar athugasemdir á næsta fundi.
Breytingar á djúpgámum í Skarðhlíð - andmæli lóðahafa.pdf
Skarðshlíð 2. áf. grenndarkynning djúpgámar.pdf
5. 1710413 - Bæjartorg, Norðurbakki 1, umferðaröryggi
Tekið fyrir á ný aðgerðir til að tryggja umferðaröryggi Við Norðurbakka 1-3.
Skipulags- og byggingarráð ítrekar bókun sína frá 9. janúar s.l. og málinu verði hraðað sem kostur er með hliðsjón af umferðaröryggi á svæðinu.
Norðurbakki yfirborðfrágangur tillaga.pdf
Fundargerðir
6. 1803014F - Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa - 698
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar frá 21. mars s.l.
Lagt fram til kynningar.
7. 1803022F - Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa - 699
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar frá 27. mars s.l.
Lagt fram til kynningar.
Júlíus Andri Þórðarson og Eva Lín Vilhjálmsdóttir mættu til fundarins kl. 13:15 undir dagskrárlið 1.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 14.20 

Til bakaPrenta