Til bakaPrenta
Skipulags- og byggingarráð - 652

Haldinn í fundarherbergi Norðurhellu 2,
10.07.2018 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Ólafur Ingi Tómasson formaður,
Ágúst Bjarni Garðarsson varaformaður,
Gísli Sveinbergsson aðalmaður,
Ómar Ásbjörn Óskarsson áheyrnarfulltrúi,
Sigurður Pétur Sigmundsson áheyrnarfulltrúi,
Kristján Jónas Svavarsson varamaður,
Fundargerð ritaði: Anna María Elíasdóttir, skrifstofustjóri
Auk ofangreindra ráðsmanna sátu Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi, Hildur Bjarnadóttir byggingafulltrúi og Ívar Bragason lögmaður á stjórnsýslu fundinn.


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 1805076 - Hamraneslína, bráðabirgðaflutningur
Tekin til umræðu á ný breyting á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 vegna færslu á háspennulínu við Hamranes.
Lögð var fram skipulagslýsing dags. 22. maí 2018 og hún samþykkt. Með bréfi skipulagsstofnunar dags. 19.06. 2018 er óskað eftir umsögn Hafnarfjarðarbæjar um tilkynningu Landsnets um færslu Hamraneslínu 1 og 2.
Lögð fram drög að umsögn Hafnarfjarðarbæjar dags. 09.07.2018.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir fyrirliggjandi umsögn dags. 09.07.2018 vegna tilkynningu Landsnets um bráðabirgðafærslu Hamraneslínu 1 og 2.
Hamraneslína 1 og 2, færsla, beiðni um umsögn.pdf
Hamraneslína bráðab.fl. 22.05.2018 lýsing B.pdf
Hamraneslína-Hnoðraholt. Matsskylda 1.pdf
Hamraneslína bráðab.fl. 22.05.2018 lýsing B.pdf
2. 1801553 - Rauðhella 3, fyrirspurn
Tekin fyrir að nýju fyrirpurn Svövu Bjarkar Jónsdóttur dags. 25.01.2018 fyrir hönd Verkvík - Sandtaks ehf. þar sem óskað var eftir stækkun á lóðinni að Rauðhellu 3 til norðurs og vesturs, en þegar er búið að byggja nokkrar byggingar utan lóðar til norðurs að Rauðhellu 3.
Á fundi skipulags- og byggingarráðs þann 09.02.2018 var erindið kynnt og því frestað. Lagt fram minnisblað skipulagsfulltrúa dags. 03.07.2018.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir fyrirliggjandi minnisblað skipulagsfulltrúa dags. 03.07.2018.
1709-FYRIRSPURN TIL SKIPULAGS10.01.2018----.pdf
R3 -Minnisblað 29.06.2018.pdf
Deiliskip, sem v. í Lóðarsam. 2001.pdf
Rauðh 3- grunnm. samþ. 05.04.1995.pdf
Rauðh 3- útlit samþ. 05.04.1995.pdf
Ágúst Bjarni Garðarsson vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu þessa dagskrárliðar.
3. 1708458 - Lækjargata 2, deiliskipulag
Tekin fyrir á ný deiliskipulagsbreyting vegna lóðanna Lækjargata 2 og Suðurgata 7 sem hefur verið auglýst. Auglýsingatími var frá 09.05. til 20.06.2018. Athugasemdir bárust og eru lagðar fram.
Skipulags- og byggingarráð fól skipulagsfulltrúa á fundi þann 26.06.s.l. að taka saman umsögn um framkomnar athugasemdir. Lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 09.07.2018.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir fyrirliggjandi umsögn skipulagsfullrúa dags. 9.7.2018 og deiliskipulagsbeytingu vegna lóðanna Lækjargata 2 og Suðurgata 7 fyrir sitt leyti og leggur til við bæjarstjórn að málinu verði lokið í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Lækjarg.2_dsk.br.LOKA.pdf
DRÖG_Aths.UMSÖGN_Lækjarg.2-Suðurg.7.pdf
4. 1412175 - Tjarnarvellir, deiliskipulag
Tekið til umfjöllunar deiliskipulag við Tjarnarvelli miðsvæði hvað varðar umferðamál og uppbyggingu.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að áfram verði unnið að breyttum hugmyndum varðandi miðsvæði Tjarnarvalla.
5. 1806197 - Austurgata 11, deiliskipulagsbreyting
Skipulags- og byggingarráð heimilaði lóðarhafa að vinna að deiliskipalagsbreytingu á sinn kostnað á fundi sínum þann 26.06. s.l. Lögð fram tillaga að breyttu deiliskipulagi lóðarinnar Austurgata 11 dags. 17.05.2018.
Lagt er til að tillaga VA arkitekta dag. 17.05.2018 að breyttu deilskipulagi lóðarinnar að Austurgötu 11 verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að tillaga VA arkitekta dag. 17.05.2018 að breyttu deilskipulagi lóðarinnar að Austurgötu 11 verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Austurgata 11 dsk.br.19.6.18.pdf
Austurgata 11, deiliskipulagsbreyting.pdf
6. 1305167 - Miðbær Hraun vestur, deiliskipulag.
Á fundi skipulags- og byggingarráðs þann 26.06. s.l. var tekið fyrir deiliskipulagið Miðbær Hraun Vestur eftir endurauglýsingu. Auglýsingartími var frá 04.04. til 16.05. 2018. Athugasemdir bárust frá tveimur aðilum. Umsögn skipulagsfulltrúa um þær dags. 20.6.2018 var lögð fram.
Skipulags- og byggingarráð tók undir umsögn skipulagsfulltrúa.
Með tölvupósti dags. 03.07.2018 óskar Hjalti Steinþórsson lögmaður eftir því að koma á framfæri andmælum við umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20.06.2018.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að verða við beiðni Hjalta Steinþórssonar samanber tölvupóst dags. 03.07.2018.
Aths.UMSÖGN_Miðbær_Hraun_Vestur.pdf
Áskilnaður um andmæli.pdf
7. 1710412 - Vitastígur 5, Hækkun á þaki
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa samþykkti á fundi sínum þann 14.02.2018 að grenndarkynna breytingu/hækkun á húsinu að Vitastíg 5 skv. 2.mgr. samþykktar um embættisafgreiðslur skipulags- og byggingarfulltrúa Hafnarfjarðar. Tillagan var grenndarkynnt frá 11.04. 2018 til 09.05. 2018 með framlengingu á athugasemdfresti til 25.05. 2018.
Athugasemdir bárust frá fjórum aðilum í nærliggjandi húsum við Áfaskeið 30 og 32.
Með vísan til 4. gr um embættisafgreiðslur skipulags- og byggingarfulltrúa Hafnarfjarðar vísar skipulagsfulltrúi erindinu til meðferðar skipulags- og byggingarráðs. Lögð er fram umsögn skipulagsfulltrúa dags.18.06.2018. Með vísan til umsagnar er lagt til að erindið verði samþykkt og því lokið með vísan til 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir fyrirliggjandi erindi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrú dags. 18.6.2018 fyrir sitt leyti og leggur til við bæjarstjórn að málinu verði lokið í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
A01 Afsto¨ðumy.grunnmy - LOKA.pdf
A05 Skuggavo¨rp.pdf
BRÉF_Viðbótargögn_Grenndark.Vitast5.pdf
A04 Go¨tumynd og þri´vi´ddarmyndir.pdf
A03 Sneiðingar.pdf
Aths.Umsögn_Vitast.5_18.6.2018.pdf
8. 1803377 - Selhraun norður, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram tillaga að breytingu á skilmálum deiliskipulags Selhrauns norður hvað varðar nýtingarhlutfall einstakra lóða, hámarks byggingarmagn, skiptingu einstakra lóða og ásamt því að lóðarstærðir og byggingarreitir eru uppfærðir til samræmis við fasteignaskráningu.
Skipulagið er uppfært í samræmi við þær breytingar sem gerðar hafa verið.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að vinna deiliskipulagsbreytingu vegna Selhrauns norður.
Selhella 1 tillaga að breytingu.pdf
05-019-Selhraun-n-skip-180405 fyrir og eftir.pdf
05-019-Selhraun-n-skip-Selhella-Hraunhella radius.pdf
9. 1509207 - Miðbær, bílastæði
Tekin til umfjöllunar gjaldskylda á bílastæðum í miðbæ Hafnarfjarðar.
Skipulags- og byggingarráð felur umhverfis- og skipulagsþjónustu að kanna kostnað við eftirlit og gjaldtöku vegna bílastæða í Miðbæ og á miðsvæði Tjarnarvalla.
10. 1803103 - Óseyrarbraut 3, breyting
Óseyrarbraut ehf. sótti 12.3.2018 um leyfi til að breyta vélsmiðjunni í gistiheimili og geymsluhúsnæði samkvæmt teikningum Sigurðar Þorvarðarsonar dags. mars 2018. Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa synjaði erindinu. Þann 03.07.2018 lagði Óseyrarbraut ehf fram erindi dags. 25.06.2018 ásamt fylgiskjölum, þar sem óskað var leyfis og samþykktar hafnarstjórnar á rekstri gistiheimilis/verbúða að Óseyrarbraut 3. Jafnframt var lögð fram til kynningar samantekt skipulagsfulltrúa vegna sama erindis dags. 29. maí sl. Hafnarstjórn gerði ekki athugasemdir við rekstur gistiheimils/verbúða að Óseyrarbraut 3 að uppfylltum settum skilyrðum. Hafnarstjórn vísaði málinu til frekari afgreiðslu hjá umhverfis- og skipulagsþjónustu.
Skipulags- og byggingarráð tekur undir bókun hafnarstjórnar frá 3. júlí síðastliðnum.
Hafnarstjórn - 1530.pdf
Óseyrarbraut 3 umsgn. ÞS.pdf
Minnisatriði Óseyrarbraut 3 landnotkun..pdf
Minnisblað - Óseyrarbraut 3_gistiheimili.pdf
11. 1701037 - Opin samkeppni um Flensborgarhöfn
Dómnefnd um framtíðarskipulag Flensborgarhafnar og Óseyrarsvæðis skilaði niðurstöðu þann 1. júní sl.
Lögð fram tillaga um stofnun starfshóps til frekari úrvinnslu málsins.
Hafnarstjórn hefur skipað 3 aðila í starfshópinn og Skipulags- og byggingarráð skipar 2.
Skipulags- og byggingarráð tilnefnir Ólaf Inga Tómasson og Karólínu Helgu Símonardóttur.
12. 0710169 - Óla Run tún, hugmyndasamkeppni.
Uppbygging á Óla Run túni tekin til umfjöllunar.
Til umfjöllunar.
13. 1807074 - Reglur um girðingar og skjólveggi við lóðarmörk
Lögð fram drög að reglur um girðingar og skjólveggi við lóðarmörk.
Lagt fram. Afgreiðslu frestað.
14. 1802337 - Drangahraun 7, ósk um lóðarstækkun
Hafnasandur sækir um lóðarstækkun lóðarinnar Drangahraun 7 í átt að sveitarfélagamörkum Garðabæjar.
Lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dagsett 2. mars 2018.
Skipulag- og byggingarráð synjar erindinu með hliðsjón af umsögn skipulagsfulltrúa dagsett 2. mars 2018.
Drangahraun 7_umsögn GG.pdf
Drangahraun_14_afnot2008.pdf
Drangahraun_7_loftmynd.pdf
Fundargerðir
15. 1806005F - Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa - 709
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar frá 13. júní 2018.
Lagt fram til kynningar.
16. 1806009F - Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa - 710
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar frá 20. júní 2018.
Lagt fram til kynningar.
17. 1806014F - Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa - 711
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar frá 27. júní 2018.
Lagt fram til kynningar.
Ómar Ásbjörn Óskarsson mætti til fundar kl.10:00 að lokinn umfjöllun 11. dagskrárliðar.[line][line]Næsti fundur ráðsins er boðaður að loknu sumarleyfi þann 14. ágúst næstkomandi.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:17 

Til bakaPrenta