Til bakaPrenta
Hafnarstjórn - 1532

Haldinn á hafnarskrifstofu,
05.09.2018 og hófst hann kl. 10:00
Fundinn sátu: Kristín María Thoroddsen formaður,
Ágúst Bjarni Garðarsson aðalmaður,
Magnús Ægir Magnússon aðalmaður,
Jón Grétar Þórsson aðalmaður,
Jón Ingi Hákonarson aðalmaður,
Fundargerð ritaði: Lúðvík Geirsson, hafnarstjóri
Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri mætti til fundarins.


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 1708667 - Skipalyfta við Suðurbakka
Lagður fram viðbótarverksamningur við samning Hafnarfjarðarhafnar og Hagtaks vegna Háabakka frá 8. maí sl. varðandi viðlegukant fyrir skipalyftu og aðstöðu dráttarbáta við vesturenda Suðurgarðs. Verkið er í samræmi við framkvæmdaáætlun ársins.
Hafnarstjórn samþykkir fyrirliggjandi viðbótarverksamning og felur hafnarstjóra að undirrita hann.
Viðbótarverksamningur-skipalyfta_ viðlega dráttarbáta.pdf
2. 1808526 - Starfsskipulag og hafnsaga
Kynntar tillögur um breytt starfsskipulag og vinnufyrirkomulag sem hafnarstjóri hefur unnið í samaráði við starfsmenn hafnarinnar og taka á gildi 1. desember n.k. Jafnframt kynntar tillögur um breytta starfsskipan við hafnsögu.
Hafnarstjórn samþykkir með vísan til 12. gr. laga nr. 41/2003 um Vaktstöð siglinga, að Hálfdán Hjalti Hálfdánarson sinni hafnsögustörfum fyrir Hafnarfjarðarhöfn ásamt þeim Ágústi Inga Sigurðssyni og Kristjáni Sigurði Péturssyni.
Vinnufyrirkomulag og vaktaskipulag ágúst 2018.pdf
Kynningar
3. 1806317 - Uppbygging á hafnarsvæðinu
Lögð fram fundargerð samráðsnefndar um gerð rammaskipulags og rætt um tilhögun kynningar og samráðs varðandi undirbúning rammaskipulags fyrir Flensborgarhöfn- og Óseyrarsvæði.
2. fundur samráðsnefndar 3. sept. 2018.pdf
4. 1808500 - Fjárhags- og rekstraráætlun 2019
Hafnarstjóri kynnti undirbúning og tímasetningar við gerð fjárhags- og rekstraráætlunar fyrir árið 2019.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:30 

Til bakaPrenta