Til bakaPrenta
Fræðsluráð - 399

Haldinn í Krosseyri, Linnetsstíg 3,
12.09.2018 og hófst hann kl. 15:15
Fundinn sátu: Kristín María Thoroddsen aðalmaður,
Margrét Vala Marteinsdóttir aðalmaður,
Bergur Þorri Benjamínsson aðalmaður,
Sigrún Sverrisdóttir aðalmaður,
Bjarney Grendal Jóhannesdóttir áheyrnarfulltrúi,
Fundargerð ritaði: Valgerður Sveinbjörnsdóttir, ritari
Auk ofantalinna og undirritaðra sátu fundinn: Fanney D. Halldórsdóttir, sviðsstjóri, Hrund Apríl Guðmundsdóttir, aðstoðarmaður sviðsstjóra, Geir Bjarnason, íþrótta- og tómstundafulltrúi, Vigfús Hallgrímsson, þróunarfulltrúi grunnskóla, Jenný D. Gunnarsdóttir, þróunarfulltrúi leikskóla, Sólveig Kristjánsdóttir, áheyrnarfulltrúi grunnskólakennara, Inga Líndal Finnbogadóttir, áheyrnarfulltrúi leikskólastjóra, Ólöf Karla Þórisdóttir, fulltrúi starfsfólks leikskóla, Áshildur Hlín Valtýsdóttir, áheyrnarfulltrúi foreldra grunnskóla, Inga Nína Sigríður Jóhannsdóttir, áheyrnarfulltrúi foreldra leikskólabarna


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 1707061 - Aukin samvinna Fjölskyldu- og Fræðslu- og frístundasviðs, skýrsla starfshóps
Kynning á stöðu samstarfsverkefnis Fjölskyldu- og Fræðslu og frístundasviðs um snemmtæka íhlutun þar sem meginmarkmið verkefnisins er auka lífsgæði barna og fjölskyldna í Hafnarfirði.
Kynnt.
Fræðsluráð 12.09.2018.pdf
2. 1808352 - Leikskólamál í Suðurbæ
Kynning á íbúaþróun í tengslum við leikskólapláss í Suðurbæ.
Fræðslustjóra falið að vinna að málinu miðað við fyrirliggjandi gögn.
Leikskólar2018Suðurbær#2.pdf
Minnisblað - ÍbúaþróunSkólahverfi1_GS.pdf
3. 1712117 - Starfshópur um starfsaðstæður í leikskóla
Tillaga um áframhald á vinnu við framkvæmd tillagna starfshóps um starfsaðstæður í leikskólum lagðar fram í minnisblaði fræðslustjóra.
Fræðsluráð leggur til að fagleg skipaður hópur verði settur af stað sem fyrst til að halda vinnunni áfram með það að markmiði að skoða fleiri leiðir og koma tillögum hópsins til framkvæmda.
Minnisblað_starfshópur um starfsaðstæður í leikskólum.pdf
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:15 

Til bakaPrenta