Til bakaPrenta
Umhverfis- og framkvæmdaráð - 313

Haldinn í fundarherbergi Norðurhellu 2,
12.09.2018 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Helga Ingólfsdóttir formaður,
Árni Rúnar Árnason varaformaður,
Friðþjófur Helgi Karlsson aðalmaður,
Þórey Svanfríður Þórisdóttir áheyrnarfulltrúi,
Arnhildur Ásdís Kolbeins áheyrnarfulltrúi,
Tinna Hallbergsdóttir varamaður,
Hulda Sólveig Jóhannsdóttir varamaður,
Fundargerð ritaði: Anna María Elíasdóttir, skrifstofustjóri
Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn Sigurður Haraldsson sviðsstjóri, Helga Stefánsdóttir forstöðumaður og Guðmundur Elíasson umhverfis- og veitustjóri.


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 1803044 - Akstursíþróttafélag Hafnarfjarðar, mannvirki
Lagt fram að nýju bréf frá Arnari Má Pálmarssyni formanni Akstursíþróttafélags Hafnarfjarðar dags. 5.3.2018 þar sem hann vekur athygli á báglegu ástandi keppnisvallar félagsins. Bókað var á fundi umhverfis- og framkvæmdaráðs 2. maí sl. að ráðið áætli skoðunarferð um svæðið. Á fundi umhverfis- og framkvæmdaráðs 13. ágúst sl. var Umhverfis- og skipulagsþjónustu falið að finna tíma fyrir skoðunarferð.
Umhverfis- og framkvæmdaráð stefnir að heimsókn til Akstursíþróttafélags Hafnarfjarðar miðvikudaginn 26. sept næstkomandi.
2. 1804294 - Kaldársel, leiktæki og vegaframkvæmdir, erindi
Lagt fram bréf Arnórs Heiðarssonar f.h. stjórnar KFUM og K í Kaldárseli dags. 10. apríl 2018. Óskað er eftir samstarfi vegna uppsetningu á leiktækjum á lóð Kaldársels auk fyrirspurnar um áform framkvæmda á Kaldárselsvegi.
Erindi frestað.
3. 1706369 - Hestamannafélagið Sörli, reiðhöll
Lögð fram að nýju drög að húsrýmisáætlun fyrir nýja reiðskemmu við Sörla. Erindinu var frestað á fundi umhverfis- og framkvæmdaráðs þann 29. ágúst sl.
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir erindisbréf um skipun starfshóps vegna uppbyggingar á athafnasvæði Sörla.
Erindisbref_starfshóps_Sörli_12092018.pdf
4. 1801455 - Knattspyrnufélagið Haukar, knatthús, erindi
Lögð fram bókun bæjarráðs frá 30.8.2018 varðandi skipan í starfshóp um uppbyggingu á Ásvöllum í samræmi við viljayfirlýsingu frá 24.5.2018.
5. 1704040 - Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2018 og 2019-2021
Staða framkvæmda tekin til umræðu.
6. 1802140 - Viðhald fasteigna 2018
Viðhald fasteigna Hafnarfjarðarbæjar á árinu 2018 tekið til umfjöllunar.
Stefán Stefánsson og Jónas Ásbjörnsson fóru yfir stöðu viðhaldsverkefna á fasteignum bæjarins.
7. 1801569 - Samgönguvika 2018
Lagt fram til kynningar. Ráðstefnan Hjólum til framtíðar verður haldin á Seltjarnarnesi 21. sept í tilefni Evrópskrar samgönguviku sem verður vikuna 16. - 22. sept.
EMW A3 poster 2018 CMYK bleed300pt.pdf
8. 1808075 - Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2019 og 2020-2022
Farið yfir fyrirliggjandi fjárfestingaráætlun 2019-2021.
Boðað er til aukafundar miðvikudaginn 12.9.2018 kl. 8:15 vegna rekstraráætlunar 2019.
9. 1801408 - Umhverfis- og auðlindastefna, aðgerðaráætlun 2018
Guðmundur Elíasson umhverfis- og veitustjóri fer yfir stöðu verkefna.
10. 1702008 - Öryggis- og eftirlitsmyndavélar í landi Hafnarfjarðar
Á fundi Umhverfis- og framkvæmdaráðs 18. apríl sl. var umhverfis- og skipulagsþjónustu falið að leggja fram kostnaðarmat á uppsetningu öryggis- og eftirlitsmyndavéla á völdum opnum svæðum, miðbænum og stofnleiðum inn í hverfi.
11. 1808522 - Fyrirspurn um framkvæmdir í Kaplakrika
Umhverfis- og framkvæmdaráð vísaði á fundi sínum þann 29.8. sl. eftirfarandi fyrirspurn frá fulltrúa Bæjarlistans og Samfylkingar í ráðinu til Umhverfis- og skipulagsþjónustu. "Hefur sveitarfélagið heimild til þess að gefa út byggingarleyfi fyrir knatthúsi í Kaplakrika á meðan á kæruferli útboðs Hafnarfjarðar á byggingu á sama húsi stendur?".
Kæruferli hefur ekki áhrif á útgáfu byggingarleyfis.
12. 1809062 - Vettvangsferð Umhverfis- og framkvæmdaráðs
Tekið til umræðu.
Fundargerðir
13. 1701334 - Sólvangsvegur 2, hjúkrunarheimili, framkvæmdir
Lagðar fram verkfundargerðir nr. 31 og 32.
14. 1708176 - Skarðshlíðarskóli, framkvæmdir
Lögð fram verkfundargerð nr. 14.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:15 

Til bakaPrenta