1. 1808180 - Fornubúðir 5, skipulagsbreyting |
Lagt fram bréf Skipulagsstofnunar mótt. 11.09.2018 vegna tillögu að breytingu á aðalskipulagi. Með vísan í athugasemdir skipulagsstofnunar eru lagðar fram lagfærðar tillögur að breyttu aðskipulagi og deiliskipulagi lóðarinnar að Fornubúðum 5 dags. 13.09.2018. |
Skipulags- og byggingarráð samþykkir fyrir sitt leyti framlagða lagfærða tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 dags. 13.09.2018 og deiliskipulagi Fornubúða 5 dags. 13.09.2018. Jafnframt er samþykkt að málsmeðferð verði í samræmi við 31.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 og í samræmi við 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar deiliskipulag Fornubúða 5.
Skipulags- og byggingarráð leggur til við bæjarstjórn Hafnarfjarða: Bæjarstjórn Hafnarfjaðar samþykkir framlagða tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 dags. 13.09.2018 og deiliskipulagi Fornubúða 5 dags. 13.09.2018. Jafnframt er samþykkt að málsmeðferð verði í samræmi við 31.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 og í samræmi við 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar deiliskipulag Fornubúða 5. |
Fornubúðir 5 - Svar Skipulagsstofnunar.pdf |
1701_deilskipulagsbreyting 01 (1).pdf |
ASK_2013_2025_Sudurhofn_14092018.pdf |
|
|