Til bakaPrenta
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa - 730

Haldinn í fundarherbergi Norðurhellu 2,
14.11.2018 og hófst hann kl. 13:00
Fundinn sátu: Hildur Bjarnadóttir Byggingarfulltrúi,
Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi,
Guðrún Guðmundsdóttir starfsmaður,
Gunnþóra Guðmundsdóttir starfsmaður,
Fundargerð ritaði: Hildur Bjarnadóttir, byggingarfulltrúi


Dagskrá: 
A-hluti byggingarleyfa
1. 1811047 - Laufvangur 12, íbúð 7, breyting innan íbúðar
Birkir Pálmason sækir um að breyta burðarvegg skv. teikningum Sveinbjörns Hinrikssonar dagsettar 1.11.2018.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
2. 1811131 - Sléttuhlíð F7, reyndarteikningar, gamla húsið
Sigríður Kristín Helgadóttir og Eyjólfur Einar Elíasson leggja inn reyndarteikningar af gamla húsi á Sléttuhlíð F7. Uppmæling gerð af Grétari Markússyni í september 2018. Í framhaldi verður sótt um leyfi til að taka niður og fjarlægja núverandi sumarhús.
Nýjar teikningar bárust 9.11.2018.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
3. 1811098 - Sléttuhlíð F7, byggingarleyfi
Sigríður Kristín Helgadóttir og Eyjólfur Einar Elíasson sækja þann 6.11.2018 um að byggja frístundahús á lóð sem hús hefur verið rifið skv teikningum Grétars Markússonar dags. 2.11.2018. Hæðablað og mæliblað bárust einnig.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
8. 1811208 - Hjallabraut 60, fyrirspurn
Þann 13.11.2018 leggur Eldjárn Árnason inn fyrirspurn þar sem óskað er eftir að breyta íbúðarhúsi sem er hluti raðhúss við Hjallabraut 60 í tvær íbúðareiningar. Einnig er óskað eftir afstöðu embættisins til minniháttar breytinga, útgangur og gluggi, á fasteigninni.
Ekki er fallist á að skipta eigninni í tvær. Í skilmálum skipulagsins kemur fram að að óheimilt er að hafa fleiri en eina íbúð í húsinu. Á það við um húsið í heild óháð því hvort kjallari sé undir því eða ekki.
9. 1810214 - Jólaþorp 2018, umsókn um stöðuleyfi
Sótt er um stöðuleyfi fyrir söluvagna og sölubása vegna jólaþorps á Thorsplani og Strandgötu. Jólaþorpið verður sett upp vikuna fyrir aðventu og tekið niður eftir jól.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
B-hluti skipulagserindi
4. 1807152 - Hvaleyrarbraut 3, umsókn til skipulagsfulltrúa
Húsfélagið Hvaleyrarbraut 3 óskar eftir að breyta byggingarmörkum og að heimilað verði að innrétta 6 íbúðir í húsinu skv. greinagerð á deiliskipulagi.
Skipulagsfulltrúa falið að gera umsögn um erindið.
5. 1811125 - Fagrakinn 17, fyrirspurn, bílskúr
Agnar Logi Axelsson og Ágústa Hallsdóttir leggja 7.11.2018 inn fyrirspurn um rétt til að byggja bílskúr á lóðinni.
Tekið er jákvætt í erindið að uppfylltum skilyrðum þ.a.m. að gera þarf nýjan eignaskiptasamning.
C-hluti erindi endursend
6. 1811132 - Glimmerskarð 3, byggingarleyfi
Sigurjón Atli Benediktsson og Jóna Draumey Hilmarsdóttir sækja 7.11.2018 um leyfi til að reisa einingarhús á 2. hæðum samkvæmt teikningum Guðmundar Gunnlaugssonar dagsettar 5.11.2018.
Frestað gögn ófullnægjandi.
7. 1811124 - Einhella 8, byggingarleyfi
Teknis ehf. sækir 7.11.2018 um leyfi fyrir byggingu undir atvinnu og þjónustustarfsemi að Einhellu 8 samkvæmt teikningum Páls Poulsen dags. 6.11.2018.
Frestað gögn ófullnægjandi.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:00 

Til bakaPrenta