Til bakaPrenta
Menningar- og ferðamálanefnd - 315

Haldinn í Hafnarborg,
15.11.2018 og hófst hann kl. 09:00
Fundinn sátu: Guðbjörg Oddný Jónasdóttir formaður,
Þórey Anna Matthíasdóttir aðalmaður,
Sigurbjörg Anna Guðnadóttir aðalmaður,
Ágústa Kristófersdóttir fundarritari.
Fundargerð ritaði: Ágústa Kristófersdóttir, Forstöðumaður


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 1810214 - Jólaþorp 2018
Rætt um undirbúning Jólaþorpsins 2018. Hugmyndir um samkeppni um bestu jólaskreytinguna utanhúss kynntar og starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu.
2. 1810084 - Upplýsingaskilti við Reykjavíkurveg
Farið yfir afgreiðslu umhverfis- og framkvæmdaráðs á málinu. Unnið verður í samræmi við þá niðurstöðu að endurskoðun fyrirkomulags skiltamála.
3. 1809021 - Starfsáætlun menningar- og ferðamálanefndar 2019
Starfsáætlun ársins 2019 samþykkt.
Umsóknir
4. 1811046 - Sönghátíð í Hafnarborg, samstarfssamningur, erindi
Lögð fram umsókn um samstarfssamning um Sönghátíð í Hafnarborg 2019-2021
Erindi frá Sönghátíð í Hafnarborg lagt fram. Umsækjanda vísað á menningarstyrki Hafnarfjarðarbæjar sem auglýstir verða í janúar.
Kynningar
5. 1809386 - Lífsgæðasetur St. Jó.
Eva Rún Michelsen kynnir lífsgæðasetur í St. Jó
Eva Michelsen verkefnastjóri lífsgæðaseturs í St. Jó kynnti starfsemina.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:00 

Til bakaPrenta