Til bakaPrenta
Bæjarráð - 3511

Haldinn í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6,
17.01.2019 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Ágúst Bjarni Garðarsson formaður,
Kristinn Andersen varaformaður,
Ólafur Ingi Tómasson aðalmaður,
Adda María Jóhannsdóttir aðalmaður,
Jón Ingi Hákonarson aðalmaður,
Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir áheyrnarfulltrúi,
Rósa Guðbjartsdóttir varamaður,
Sigurður Þórður Ragnarsson áheyrnarfulltrúi,
Fundargerð ritaði: Ívar Bragason, Lögmaður á stjórnsýslusviði
Fundinn sat einnig Sigríður Kristinsdóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs og bæjarlögmaður.


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 1706312 - Starfshópur, mótun framtíðarstefnu um notkun St. Jósefsspítala
Fulltrúar samstarfsvettvangs mæta til fundarins og skilar skýrslu og fer yfir hana.

Eva Rún Michelsen verkefnastjóri situr fundinn undir þessum lið.
Karl Guðmundsson kynnti skýrslu samstarfsvettvangs.
Bæjarráð þakkar fyrir kynninguna og þakkar starfshópnum jafnframt fyrir vel unnin störf.
Af stað_St Jo´ (3) (002).pdf
2. 1803258 - Stytting vinnuvikunnar, erindi
Guðrún Þorsteinsdóttir mannauðsstjóri mætir til fundarins.
Mannauðsstjóri kynnti þá vinnu og undirbúning sem í gangi hefur verið hjá Hafnarfjarðarbæ vegna verkefnisins. Bæjarráð tekur undir það sem fram kemur í fyrirliggjandi minnisblaði mannauðsstjóra, m.a. um að settur verði á laggirnar starfshópur um styttingu vinnuvikunnar og þá þvert á stofnanir sveitarfélagsins þar sem áhugi og vilji sveitarstjórnarmanna er til staðar fyrir málefninu.


3. 1901083 - Samband íslenskra sveitarfélaga, kjarasamningsumboð
Lagt fram erindi Sambands íslenskra sveitarfélaga um að Hafnarfjarðarkaupstaður veiti sambandinu fullnaðarumboð til kjarasamningsgerðar fyrir sína hönd til nánar tilgreindra stéttarfélaga.

Tilaga að bókun:
Bæjarráð samþykkir að fela Sambandi íslenskra sveitarfélaga fullnaðarumboð til kjarasamningsgerðar fyrir sína hönd við eftirtalin stéttarfélög:
Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum
Félag leikskólakennara
Félag stjórnenda leikskóla
Skólastjórafélag Íslands
Félag íslenskra hljómlistarmanna
Starfsmannafélag Hafnarfjarðar
SFR stéttarfélag í almannaþjónustu
Verkalýðsfélagið Hlíf
Félag íslenskra félagsvísindamanna
Stéttarfél. bókasafns- og upplýsingafræðinga
Fræðagarður
Þroskaþjálfafélag Íslands
Stéttarfélag lögfræðinga
Félag skipstjórnarmanna
Verkfræðingafélag Íslands
Sálfræðingafélag Íslands
Kjarafélag viðskipta- og hagfræðinga
Félagsráðgjafafélag Íslands
Félag íslenskra náttúrufræðinga
Félag vélstjóra og málmtæknimanna
MATVÍS
Samiðn
Samband stjórnendafélaga
Bæjarráð samþykkir að fela stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga fullnaðarumboð fyrir sína hönd til kjarasamningsgerðar ofangreindra stéttarfélaga.
Kjarasamningsumbod_2019.pdf
4. 1901197 - Verkfallslistar 2019
Lögð fram tillaga mannauðsstjóra að verkfallslista 2019 sem birtast skal í B deild Stjórnartíðanda 1. febrúar nk.

Guðrún Þorsteinsdóttir mannauðsstjóri mætir til fundarins.
Bæjarráð staðfestir fyrirliggjandi lista.

5. 1811361 - Skuldbreyting lána Íslandsbanka
Lagður fram lánasamningur vegna skuldbreytinga á lánum við Íslandsbanka hf.

Rósa Steingrímsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs mætir til fundarins.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi bókun:

"Bæjarstjórn Hafnarfjarðarkaupstaðar samþykkir hér með að taka óverðtryggð lán hjá Íslandsbanka að andvirði 2.610.000.000- króna, sbr. framlagðan lánasamning. Andvirði lána verður ráðstafað til fullnaðargreiðslu lánasamninga hjá Íslandsbanka og er því einungis um endurfjármögnun/skuldbreytingu lána að ræða.
Jafnframt er Rósu Guðbjartsdóttur, kennitala 291165-3899 veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Hafnarfjarðarkaupstaðar að undirrita lánssamning við Íslandsbanka sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns."


6. 1506569 - Samningur, yfirdráttur, lán
Lagt fram minnisblað um hækkun yfirdráttarheimildar um 200 millj. kr.

Rósa Steingrímsdóttir sviðsstjóri fjármálsviðs mætir til fundarins.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi bókun:

"Bæjarstjórn Hafnarfjarðarkaupstaðar samþykkir hér með uppfærðan samning um yfirdráttarlán við Íslandsbanka að fjárhæð 600 milljónir króna. Jafnaframt er samþykkt að hækka tímabundið, eða til 19. apríl 2019, yfirdráttarheimild hjá Íslandsbanka um 200 milljónir króna þannig að hún verði alls 800 milljónir króna. Jafnframt er Rósu Guðbjartsdóttur, kennitala 291165-3899 veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Hafnarfjarðarkaupstaðar að undirrita við Íslandsbanka sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast samningnum."

7. 1706097 - Bærum, vinabæjarmót 2019, boð
Lagt fram boðsbréf frá Bærum um vinabæjarmót sem haldið verður í Bærum 23. til 25. maí 2019.

Andri Ómarsson verkefnastjóri mætir til fundarins.
Bæjarráð samþykkir að tveir frá meirihluta og einn frá minnihluta ásamt bæjarstjóra og tveggja embættismanna verði þátttakendur sveitarfélagsins á vinabæjarmótinu.

Bærum, vinabæjarmót 2019, boðsbréf.pdf
8. 1702065 - Leikfélag Hafnarfjarðar, ósk um nýtt húsnæði
Tekið fyrir að nýju.

Ágústa Kristófersdóttir forstöðumaður Hafnarborgar og ritari ferða- og menningarmálanefndar og Andri Ómarsson verkefnastjóri mæta til fundarins.
Bæjarráð felur Ágústu Kristófersdóttur og Andra Ómarssyni að ræða við Leikfélag Hafnarfjarðar vegna óskar félagsins um nýtt húsnæði undir starfsemina.
9. 1708457 - Hraun vestur, deiliskipulag
Samningsmarkmið lög fram.

Sigurður Haraldsson, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagsþjónustu mætir til fundarins.
Bæjarráð samþykkir framlögð samningsmarkmið sveitarfélagsins í viðræðum við lóðarhafa á Hraunum-Vestur um uppbyggingu hverfisins og felur bæjarstjóra að vinna áfram í málinu.
hraun vestur samningsmarkmið 17.01.2019.pdf
10. 1810469 - Kapelluhraun 1. áfangi, endurskoðun deiliskipulags
Lögð fram lóðarumsókn frá Arcus ehf um lóð í Koparhellu.
Bæjarráð samþykkir að úthluta Arcus ehf. lóðinni Koparhella 5 og vísar til samþykktar í bæjarstjórn.
11. 1811424 - Merkurgata 12, lóðarleigusamningur og lóðarstærð
Lagður fram drög að endurnýjun lóðarleigusamnings ásamt minnisblaði.
Bæjarráð samþykkir framlagðan endurnýjun á leigulóðarsamning og vísar til afgreiðslu í bæjarstjórn.
Merkurgata 12.lóðarleigusamningur.útg.dags.17.12.1906.pdf
12. 1206073 - HS veitur ehf, lóðarleigusamningar fyrir ýmsar lóðir
Lóðarleigusamningur Lindarberg 1
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi lóðarleigusamning við HS veitur og vísar til samþykktar í bæjarstjórn.
Lindarberg 1.lóðarleigusamningur.drög.pdf
13. 1811291 - Bjargsskarð 2, umsókn um lóð
Lögð fram lóðarumsókn um fjölskylduhúsalóðina nr. 2 við Bjargsskarð. Umsækjendur eru Þorgils Arason, Sigurrós Auður Sveinsdóttir og Erlendur Halldór Durante,Þórey Ólöf Þorgilsdóttir.
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni nr. 2 við Bjargskarð í samræmi við fyrirliggjandi umsókn og vísar til samþykktar í bæjarstjórn.
14. 18129587 - Glimmerskarð 1, Umsókn um lóð
Lögð fram umsókn PE pípulagna ehf., um tvíbýlishúsalóðina nr. 1 við Glimmerskarð
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni nr. 2 við Glimmerskarð í samræmi við fyrirliggjandi umsókn og vísar til samþykktar í bæjarstjórn.
15. 1810250 - Hraunskarð 2
Tekið fyrir að nýju.

Lagt fram tilboð M3 Capital ehf f.h. óstofnaðs einkahlutfélags. Einkahlutafélagið er Bulls eye ehf. kt. 630516-1370, lögð hefur verið fram tilkynning til hlutafélagaskrár um breytingu á nafninu í Hraunskarð 2 ehf.

Tillaga að bókun:
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að taka framlögðu tilboði M3 Capital ehf f.h. Bulls eye ehf., í fjöleignarhúsalóðina nr. 2 við Hraunskarð lóðina og úthluta lóðinni til Bulls eye ehf., kt. 630516-1370.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að taka framlögðu tilboði M3 Capital ehf f.h. Hraunskarðs 2 ehf., í fjöleignarhúsalóðina nr. 2 við Hraunskarð og úthluta lóðinni til Hraunskarðs 2 ehf., kt. 630516-1370.
Tilboð M3Capital ehf., f.h. óstofnaðs einkahlutafélags Hraunskarð 2 ehf., sem verður í 100% eigu M3Capital ehf..pdf
16. 18129673 - Alþingi, starfshópur um endurskoðun kosningalaga, ósk um athugasemdir
Lagt fram bréf frá starfshóp um endurskoðun kosningalaga dags. 19. des.sl.
Fundargerðir
17. 1801099 - Kaplakriki, framkvæmdir
Lögð fram fundargerð Kaplakrikahópsins frá 10.jan. sl.
Fundargerð Kaplakrikahóps frá 10.jan. ´19.pdf
Framvinda 14.1.2019.pdf
18. 1811306 - St. Jó. framkvæmdahópur
Lagðar fram fundargerðir framkvæmdahóps St. Jó.
181211 - Fundargerð.pdf
181217 - Fundargerð.pdf
190110 - Fundargerð.pdf
19. 1901001F - Hafnarstjórn - 1541
Lögð fram fundargerð hafnarstjórnar frá 9.janúar sl.
20. 1901005F - Menningar- og ferðamálanefnd - 318
Lögð fram fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 10.janúar sl.
21. 1801243 - Strætó bs, fundargerðir 2018
Lögð fram fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 21.des. sl.
Fundargerð stjo´rnarfundur 297 21.12 2018.pdf
22. 1901142 - Sorpa bs, fundargerðir 2019
Lögð fram fundargerð stjórnar SORPU bs. frá 9.jan.sl.
Fundargerð 402 stjórnarfundar undirrituð.pdf
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:15 

Til bakaPrenta