| |
1. 1811416 - Reykjanesbraut í Hafnarfirði, umsókn um framkvæmdaleyfi vegna tvöföldunar | Fulltrúar Vegagerðarinnar og Eflu mæta til fundarins og kynna framkvæmdina. | Lagt fram til kynningar. | | |
|
2. 18129642 - Hafnarfjarðarlína HF1, umsókn um framkvæmdaleyfi til að endurnýja háspennustreng HF1 við Reykjanesbraut | Fulltrúar Eflu mæta til fundarins og kynna framkvæmdina. | Lagt fram til kynningar. | | |
|
3. 1901119 - Færsla lagna við Reykjanesbraut, framkvæmdaleyfi | Fulltrúar VSB mæta til fundarins og kynna framkvæmdina. | Lagt fram til kynningar. | | |
|
4. 1605488 - Ályktun gegn mansali | Tekin fyrir að nýju fyrirspurn til stjórnsýslu sem lögð var fram á fundi umhverfis- og framkvæmdaráðs 10. október sl.; „Umhverfis- og framkvæmdaráð óskar eftir upplýsingum um með hvaða hætti stjórnsýslan hefur unnið samkvæmt bókun bæjarstjórnar frá 25. maí 2016 um að veita skuli hættu á mansali sérstaka athygli.“ Svar stjórnsýslu barst 22.10.2018. | Umhverfis- og framkvæmdaráð óskaði á fundi sínum þann 10. október 2018 eftir uppslýsingum um með hvaða hætti stjórnsýslan hefur unnið samkvæmt bókun bæjarstjórnar frá 25. maí 2016 um að veita skuli hættu á mansali sérstaka athygli.“
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti þann 25. maí 2016 eftirfarandi ályktun:
1. 1605488 - Ályktun gegn mansali Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að bæjarfélagið skuli veita hættunni á mansali sérstaka athygli. Farið verður yfir alla ferla hjá bænum með það að markmiði að vernda þá sem eru í viðkvæmri stöðu gagnvart mansali. Allir innkaupaferlar og útboðsskilmálar verða yfirfarnir með tilliti til þess. Þá mun Hafnarfjarðarbær tryggja að starfsfólk og eftirlitsaðilar á vegum bæjarins fái fræðslu um hvernig bera megi kennsl á mansal.
Samkvæmt svari frá sviðstjóra stjórnsýslusviðs hefur eftirfarandi texti verið settur í öll útboð og samninga sem gerðir eru af sveitarfélaginu þar sem það á við:
„Bjóðandi mun tryggja að allir starfsmenn sem koma munu að verkinu, hvort sem er sem starfsmenn bjóðanda eða undirverktaka, fái laun og starfskjör í samræmi við gildandi kjarasamninga hverju sinni og aðstæður þeirra séu í samræmi við löggjöf á sviði vinnuverndar. Hvenær sem er á samningstíma mun bjóðandi geta sýnt verkkaupa fram á að öll réttindi og skyldur gagnvart þessum starfsmönnum séu uppfyllt. Bjóðandi samþykkir að ef hann getur ekki framvísað gögnum eða sýnt eftirlitsmanni verksins fram á að samningsskyldur séu uppfylltar innan 5 daga frá því ósk um slíkt er borin fram af verkkaupa getur verkkaupi rift verksamningi án frekari fyrirvara eða ákveðið að beita dagsektum sem nemur 0,1% af samningsupphæð fyrir hvern dag sem umbeðnar upplýsingar skortir. Beiting þessara vanefndaúrræða hefur ekki áhrif á gildi verktryggingar.“
Umhverfis- og framkvæmdaráð þakkar framkomin svör og leggur áherslu á að áfram verði unnið að því að tryggja réttindi verkafólks og sporna gegn mögulegri misnotkun á vinnuafli.
| | |
|
Sigurður Sverrir Gunnarsson og Stefán Eiríkur Stefánsson verkefnastjórar mættu til fundar við afgreiðslu 5 dagskrárliðar.
| 5. 18129640 - Ásvallalaug, viðhald | Tekið til umræðu. | Umhverfis- og framkvæmdaráð óskar eftir umsögn fræðslu og frístundaþjónustu varðandi tímasetningu á endurbótum sem standa fyrir dyrum á sundlaugargólfi Ásvallalaugar, sem áætlað er að taki að minnsta kosti fjóra mánuði, þannig að skóla og íþróttastarf raskist sem minnst. | | |
|
6. 1702008 - Öryggis- og eftirlitsmyndavélar í landi Hafnarfjarðar | Tekið fyrir að nýju. | Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir uppsetningu löggæslumyndavéla í samráði við fagaðila og forsendur fjárhagsáætlunar. | | |
|
Ingibjörg Sigurðardóttir garðyrkjustjóri mætti til fundar við afgreiðslu 7 dagskrárliðar.
| 7. 1806309 - Hamarinn, grisjun trjáa | Undirbúningsvinnu við grisjun grenitrjáa á Hamrinum er lokið. Minnisblað garðyrkjustjóra varðandi næstu skref lagt fram. | Lagt fram minnisblað garðyrkjustjóra. Afgreiðslu frestað milli funda. | | |
|
Berglind Guðmundsdóttir arkitekt mætti til fundar við afgreiðslu 8 dagskrárliðar.
| 8. 0811164 - Óbrinnishólar, námuvinnsla | Tekin til umræðu námuvinnsla í Óbrinnishólum. | Umhverfis- og framkvæmdaráð gerir ekki athugasemd við áframhaldandi vinnslu og að unnið sé eftir samþykktri frágangsáætlun. | | |
|
9. 1811133 - Landfræðileg upplýsingagögn sveitarfélaga | Erindi móttekið 7. nóvember 2019 frá Þjóðskrá Íslands þar sem óskað er eftir landfræðilegum gögnum sveitarfélagsins. 5048 landeignir eru skráðar í fasteignaskrá innan Hafnarfjarðarkaupstaðar þar af eru 1009 landeignir afmarkaðar í landeignaskrá Þjóðskrár Íslands sem er um 20% allra landeigna. Eru það vonir Þjóðskrár að við það að fá gögn frá sveitarfélaginu þá muni þetta hlutfall hækka til muna. | Umhverfis- og framkvæmdarráð felur umhverfis- og skipulagsþjónustu að svara erindinu. | Landeignaskrá, beiðni um samstarf.pdf | | |
|
| |
10. 1801243 - Strætó bs, fundargerðir 2018 | Lögð fram fundargerð nr. 297. | | |
|
11. 1901142 - Sorpa bs, fundargerðir 2019 | Lögð fram fundargerð nr. 402. | | |
|