Til bakaPrenta
Skipulags- og byggingarráð - 668

Haldinn í fundarherbergi Norðurhellu 2,
15.01.2019 og hófst hann kl. 08:30
Fundinn sátu: Ólafur Ingi Tómasson formaður,
Ágúst Bjarni Garðarsson varaformaður,
Lovísa Björg Traustadóttir aðalmaður,
Stefán Már Gunnlaugsson aðalmaður,
Gísli Sveinbergsson aðalmaður,
Sigurður Pétur Sigmundsson áheyrnarfulltrúi,
Óli Örn Eiríksson Varaáheyrnarfulltrúi,
Fundargerð ritaði: Anna María Elíasdóttir, skrifstofustjóri
Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn: Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi, Sigurður Haraldsson sviðsstjóri, Helga Stefánsdóttir forstöðumaður, Hildur Bjarnadóttir byggingarfulltrúi, Guðmundur Elíasson umhverfis- og veitustjóri, Guðrún Guðmundsdóttir arkitet, Gunnþóra Guðmundsdóttir arkitekt og Berglind Guðmundsdóttir landslagsarkitekt.


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 1708481 - Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins, breytingar
Svæðisskipulagsnefnd hefur unnið að breytingum að svæðisskipulaginu Höfuðborgarsvæðið 2040 er varðar legu vaxtarmarka á milli þéttbýlis og dreifbýlis á Álfsnesi. Með breytingunni verður rými fyrir uppbyggingu og þróun efnisvinnslusvæðis sem staðsett yrði við jaðar núverandi iðnaðarsvæðis á Álfsnesi. Tilefni breytingarinnar eru áform Reykjavíkurborgar um færslu á starfssemi Björgunar, sem vinnur jarðefni til mannvirkjagerðar úr námum á sjávarbotni. Hrafnkell Proppé mætir til fundarins og kynnir fyrirhugaðar breytingar.
Skipulags- og byggingarráð Hafnarfjarðar samþykkir framlagða breytingu á svæðisskipulagi Höfuðborgarsvæðisins 2040 í samræmi við 3.mgr. 23.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Jafnframt leggur skipulag- og byggingarráð til við bæjarstjórn Hafnarfjarðar að hún samþykki framangreint með vísan til 23.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt tillaga að breytingu á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðinsins til auglýsingar -Hf.pdf
A1234-084-D01-Umhverfissk-Augl-DROG-m.pdf
A1234-074-U01 Umsagnir við vinnslutillögur.pdf
2. 1811416 - Reykjanesbraut í Hafnarfirði, umsókn um framkvæmdaleyfi vegna tvöföldunar
Vegagerðin sækir um framkvæmdaleyfi til að tvöfalda kaflann á Reykjanesbraut frá Kaldársselsvegi og vestur fyrir Krýsuvíkurgatnamót með því að byggja nýja akbraut sunnan núverandi vegar.
Fulltrúar Vegagerðarinnar og Eflu mæta til fundarins og kynna framkvæmdina.
Með vísan í 11. gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012 og umsókn Vegagerðarinnar, dags. 8.01.2018, um leyfi til framkvæmda við tvöföldun Reykjanesbrautar frá Kaldárselsvegi að Krýsuvíkurvegi samþykkir skipulags- og byggingarráð framkvæmdaleyfið fyrir sitt leyti. Jafnframt leggur skipulag- og byggingarráð því til við bæjarstjórn Hafnarfjarðar að hún samþykki framangreint framkvæmdaleyfi með vísan til 11. gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012.
Reykjanesbraut í Hafnarfirði, umsókn um framkv.leyfi.pdf
Reykjanesbraut í Hafnarfirði, umsókn um framkvæmdaleyfi.pdf
Snið í manir Þorlákstún.pdf
Snið í manir við Hvamma.pdf
B-102.pdf
20190115-Reykjanesbraut í Hafnarfirði-1.pdf
3. 18129642 - Hafnarfjarðarlína HF1, umsókn um framkvæmdaleyfi til að endurnýja háspennustreng HF1 við Reykjanesbraut
Landsnet sækir um framkvæmdaleyfi með bréfi dags. 17.12.2018 til að leggja jarðstreng á um 1.km. kafla og breyta stofnlögn Vatnsveitu vegna tvöföldunar Reykjanesbrautar frá Kaldársselsvegi og vestur fyrir Krýsuvíkurgatnamót.
Fulltrúar Vegagerðarinnar og Eflu mæta til fundarins og kynna framkvæmdina.
Með vísan í 11. gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012 og umsókn Landsnets, dags. 17.12.2018, um leyfi til framkvæmda vegna jarðstrengs og breytingar á stofnlögn vatns vegna tvöföldunar Reykjanesbrautar frá Kaldárselsvegi að Krýsuvíkurvegi samþykkir skipulags- og byggingarráð framkvæmdaleyfið fyrir sitt leyti. Jafnframt leggur skipulag- og byggingarráð til við bæjarstjórn Hafnarfjarðar að hún samþykki framangreint framkvæmdaleyfi með vísan til 11.gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012.
HF1-Hafnarfjörður erindi.pdf
4. 1901119 - Færsla lagna við Reykjanesbraut, framkvæmdaleyfi
VSB f.h. Veitna og HS veitna sækir um framkvæmdaleyfi með bréfi dags. 10.01.2019 til að leggja nýjar veitulagnir samhliða Reykjanesbraut vegna tvöföldunar hennar á kafla frá Kaldársselsvegi og vestur fyrir Krýsuvíkurgatnamót.
Fulltrúar VSB mæta til fundarins og kynna framkvæmdina.
Með vísan í 11.gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012 og umsókn VSB f.h. Veitna og HS veitna, dags. 10.01.2019, um leyfi til að leggja nýjar veitulagnir vegna tvöföldunar Reykjanesbrautar frá Kaldárselsvegi að Krýsuvíkurvegi samþykkir skipulags- og byggingarráð framkvæmdaleyfið fyrir sitt leyti. Jafnframt leggur skipulags- og byggingarráð til við bæjarstjórn Hafnarfjarðar að hún samþykki framangreint framkvæmdaleyfi með vísan til 11.gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012.
18170 Reykjanesbraut veituútboð 1 Hvaleyrarholt Hvammar framkvæmdaleyfi -.pdf
18170 Reykjanesbraut breikkun veituúboð 1 yfirlitsteikning framkv.leyfi.pdf
5. 18129467 - Rútustæði í miðbæ Hafnarfjarðar
Áskorun Ferðamálasamtaka Hafnarfjarðar frá 14. nóvember 2018 var vísað til skipulags- og byggingarráðs frá menningar- og ferðamálanefnd sem tekur undir mikilvægi þess. Áskorunin er svohljóðandi: "Í miðbæ Hafnarfjarðar vantar alveg rútustæði. Þar eru vissulega stoppustöðvar þar sem farþegar geta farið úr og í rúturnar. Það er hins vegar mikilvægt að bæta úr því að hafa rútustæði þannig að rútur geti beðið á meðan farþegarnir skoði miðbæ Hafnarfjarðar, fái sér að borða og versli af þeim fjölmörgu verslunum sem eru þar."
Skipulags- og byggingarráð vísar erindinu til vinnslu miðbæjarskipulags og felur skipulagsfulltrúa að vinna að lausn til bráðabirgða.
6. 1810223 - Brenniskarð 1-3, deiliskipulagsbreyting
Á fundi skipulags- og byggingarráðs Hafnarfjarðar þann 6.11.2018 var samþykkt að auglýsa tillögu að deiliskipulagsbreytingu við lóðina að Brenniskarði 1-3 í samræmi við 1.mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í eftirfarandi: bílastæði í kjallara Brenniskarð 1 færist undir hús við Brenniskarð 3 innan sömu lóðar. Fyrirkomulag bílastæða innan lóðar breytist. Jafnframt er fjölgað um eina íbúð við Brenniskarð 3. Tillagan var auglýst frá 22.11.2018 til 03.01.2019. Engar athugasemdir bárust.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir framlagða tillögu að breyttu deiliskipulagi lóðarinnar að Brenniskarði 1-3 og að málsmeðferð verði í samræmi við 3.mgr. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
HAF-DEILISKIPULAG-Brenniskarð1-3-FBL22-11-2018.pdf
Brenniskarð.1- 3 Tillaga að dsk.br..pdf
7. 1810468 - Skipulag og framkvæmdir, frá sjónarmiði um sjálfbærni
Sandra R. Ásgrímsdóttir verkfræðingur og Tryggvi Jónsson verkfræðingur hjá Mannvit mæta til fundarins og kynna drög að vinnu við stefnumótun í vistvænni hönnun.
Lagt fram til kynningar.
8. 1810025 - Hamraneslína, framvæmdaleyfi
Lagt fram erindi Landsnets dags. 01.10.2018 þar sem óskað er eftir að fá útgefið framkvæmdaleyfi Hafnarfjarðarbæjar fyrir breytingum á legu Hamraneslínu 1 og 2, 220 kV háspennulínu, með færslu þeirra á kafla við tengivirkið í Hamranesi að uppfylltum skilyrðum skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsstofnun staðfesti þann 7. jan. s.l. breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 sem bæjarstjórn hafði samþykkt þann 12. des. 2018 vegna færslu Hamraneslínu.
Með vísan í 11.gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012 og umsókn Landsnets hf., dags. 1.10.2018, um leyfi til framkvæmda við breytingar á Hamraneslínu samþykkir skipulags- og byggingarráð framkvæmdaleyfið fyrir sitt leyti. Jafnframt leggur skipulag- og byggingarráð til við bæjarstjórn Hafnarfjarðar að hún samþykki framangreint framkvæmdaleyfi með vísan til 11.gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012.
HN1og2_Umsókn um framkvæmdaleyfi undirrituð.pdf
Yfirlitskort_HN12_færsla_2018_05_29.pdf
9. 1701084 - Hamranes I, nýbyggingarsvæði
Með vísan til minnisblaðs skipulagsfulltrúa frá 03.12.2018 er lögð fram lýsing á skipulagsverkefni er tekur til breyttrar landnotkunar á Hamranessvæðinu. Jafnframt er lagt til að málsmeðferð verði í samræmi við 30.gr. skipulaglaga nr. 123/2010.
Erindi frestað.
10. 1110006 - Vesturbær, endurgert og nýtt deiliskipulag
Lögð fram til kynningar tillaga að breyttu deiliskipulagi vesturbæjar.
Lagt fram til kynningar.
11. 1807152 - Hvaleyrarbraut 3, umsókn til skipulagsfulltrúa
Húsfélagið Hvaleyrarbraut 3 óskar eftir að breyta byggingarmörkum og að heimilað verði að innrétta 6 íbúðir í húsinu skv. greinagerð á deiliskipulagi. Á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa þann 14.11.2018 var skipulagsfulltrúa falið að gefa umsögn um erindið. Lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14.01.2019.
Skipulags- og byggingarráð tekur undir umsögn skipulagsfulltrúa og fellst ekki á að heimila að svo stöddu deiliskipulagsbreytingu á einstaka lóðum án heildaryfirsýnar á skipulagsþróun svæðisins.
Hvaleyrarbraut 3 umsögn dags. 14.01,2019.pdf
dsk.br.uppdr.m.umsókn.pdf
12. 1811261 - Uppsetningar á samkomutjöldum í landi Hafnarfjarðar
Lagt fram á ný erindi Ferðaþjónustufyrirtækisins Basecamp Iceland er varðar uppsetningu á samkomutjöldum ætluðum til norðurljósa- og stjörnuskoðunar. Skipulags- og byggingarráð fól skipulagsþjónustu á fundi sínum þann 4.12. s.l. að vinna áfram að málinu. Lögð fram umsögn skipulagsþjónustu dags. 07.01.2019.
Skipulags- og byggingarráð tekur jákvætt í erindið og felur skipulagsþjónustu að vinna áfram að málinu.
13. 1901165 - Stöðuleyfi, gjaldskrá 2019
Lögð fram tillaga að breytingu á gjaldskrá stöðuleyfa.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir breytingar á gjaldskrá og vísar til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Gjaldskrá stöðuleyfi 2019, samþykkt tillaga.pdf
Fundargerðir
14. 1812017F - Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa - 735
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar frá 19.12.2018.
15. 1812021F - Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa - 736
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar frá 2.01.2019.
16. 1901002F - Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa - 737
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar frá 9.01.2019.
17. 16011235 - Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins, fundargerðir
Lögð fram fundargerð 87. fundar svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins frá 14.12.2018.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:00 

Til bakaPrenta