| |
1. 1807194 - Siglingaklúbburinn Þytur, samningur um búnaðarkaup | Siglingaklubburinn Þytur hefur fengið úthlutaðann styrk til búnaðarkaupa fyrir árið 2019 sem fer í það að hjálmavæða barnastarfið. | Samþykkt í samræmi við fjárheimildir til búnaðarkaupa. | | |
|
8. 18129640 - Ásvallalaug, viðhald | Fulltrúar notenda laugarinnar; forstöðumaður sundstaða, fulltrúar Sundfélags Hafnarfjarðar og Íþróttafélagsinins Fjarðar eru sammála því að verkið ætti að vinnast frá loka maí fram í lok ágúst. | | |
|
| |
3. 1902126 - Nordjobb, sumarstörf 2019 | Lagt fram. | Íþrótta- og tómstundafulltrúa falið að svara jákvætt og bjóða nemendum vinnu hjá Vinnuskólanum líkt og undanfarin ár. | Nordjobb, sumarstörf 2019.pdf | | |
|
| |
5. 1509776 - Ungmennaráð, fundargerð | Birta Guðný fór yfir nýjustu fundargerð ungamennaráðs | 150.fundur.umh.pdf | 151.fundur.umh.pdf | | |
|
6. 1809291 - Fundargerðir ÍBH 2018-2019 | Elísabet Ólafsdóttir fór yfir nýjustu fundargerð ÍBH | Fundargerð 16 - 5.02.2019.pdf | | |
|
7. 1809417 - Skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins (SHB), kjörtímabil 2018-2022, samstarfssamningur | Farið yfir nýjustu fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins. | Íþrótta- og tómstundafulltrúa falið að boða fulltrúa Skíðasvæðisins á fund til nefndarinnar í april. | Skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins fundargerd372.pdf | | |
|
| |
2. 1902158 - Vinnuskóli fyrir ungmenni, niðurstöður könnunar | Kynning á skýrslu frá umboðsmanni barna. Helstu niðurstöður könnunarinnar eru þær að meirihluta ungmenna á aldrinum 13-15 ára stendur til boða starf í vinnuskóla sveitarfélaga eða um 95%. Í ljós kom að talsverður munur er á þeim launum sem ungmennum eru greidd fyrir starf í vinnuskólanum og veita fæst sveitarfélögin ungmennum endurgjöf að starfi loknu þrátt fyrir að megintilgangur vinnuskólans sé að veita þeim undirbúning fyrir þátttöku á almennum vinnumarkaði.
https://barn.is/media/580553/skyrsla-um-vinnuskolann_vefutgafa.pdf | Íþrótta- og tómstundanefnd felur íþrótta- og tómstundafulltrúa ásamt rekstrarstjóra að útbúa hæfniviðmið svo hægt sé að veita starfsmönnum umsögn í lok sumars. Auk þess vinna að áhættumati fyrir vinnuskólann. | | |
|
4. 1812077 - Heilsa og lífskjör skólanema á Íslandi, niðurstöðuskýrsla | Íþrótta- og tómstundafulltrúi fór yfir skýrsluna Heilsa og lífskjör skólanema á Íslandi. | Íþrótta- og tómstundanefnd beinir því til fræðsluráðs að skoða hvernig kynfræðslu til grunnskólabarna er háttað í ljósi vísbendinga sem fram koma í meðfylgjandi skýrslu um kynhegðun grunnskólabarna í Hafnarfirði. | HBSC_Skýrsla 2018_Hafnarfjörður.pdf | HBSC_Skýrsla 2018_Landssvæði.pdf | | |
|
9. 1901303 - Kynning á íþrótta- og tómstundastarfi í Hafnarfirði | Á 284 fundi ÍTH nefndarinnar sem haldinn var 6.febrúar var íþrótta- og tómstundafulltrúa ásamt rekstrarstjóra falið að skoða hvaða leiðir hægt er að nota til að kynna íþrótta- og tómstundastarf fyrir foreldra og börn í Hafnarfirði.
Í dag fer mest öll kynning fram á heimasíðum félaganna sjálfra. Vefurinn fristund.is hefur verið notaður fyrir sumarstarfssemi á vegum Hafnarfjarðarbæjar. Unnið er að undirsíðu á heimasíðu Hafnarfjarðarbæjar þar sem heimasíðum íþrótta- og tómstundafélaga er öllum safnað saman.
TUFF íþróttaverkefnið er í vinnslu, beðið eftir svörum frá Kópavogsbæ sem eru að innleiða verkefnið. | Íþrótta- og tómstundafulltrúa er falið að halda áfram þessari vinnu en hafa jafnframt í huga þarfir erlendra barna á fræðslu. | | |
|
10. 1611074 - Kynjajafnrétti í íþróttum | Drög að bréfi til íþróttafélaganna lagt fram til kynningar. | Íþrótta- og tómstundafulltrúa falið að halda áfram þessari vinnu. | | |
|