| |
1. 1903199 - Hraun vestur, uppbygging | Lóðarhafar kynna frumdrög að uppbyggingu á reit sem liggur að Reykjavíkurvegi, Hjallahrauni og Helluhrauni. | Lagt fram til kynningar. | | |
|
2. 1903044 - Ölduslóð 32, deiliskipulagbreyting | Guðrún Bergsteinsdóttir sótti þann 4.3.2019 um stækkun húss skv. teikningum Gísla Ágústs Guðmundssonar dags. 22.1.2019. Sótt er um grenndarkynningu án deiliskipulagsuppdrátts. Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa vísaði umsókninni til skipulags- og byggingarráðs á fundi sínum þann 06.3. s.l. Lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11.3.2019. | Skipulags- og byggingarráð tekur undir umsögn skipulagsfulltrúa dags 11.3.2019. Leita þarf umsagnar Minjastofnunar og Byggðasafns Hafnarfjarðar áður en ákvörðun um heimild til deiliskipulagsbreytingar er tekin til umfjöllunar. | Ö32 umsögn skipulagsfulltrúa 11.3.2019.pdf | Olduslod_32_003.pdf | Olduslod_32_002.pdf | Olduslod_32_.pdf | | |
|
3. 1903117 - Öryggismál, hæð skjólgirðinga | Lögð fram drög að tillögu skipulags- og umhverfisþjónustu að reglum um hæðir skjólveggja og girðinga m.t.t. sjónahorns og sjónlínur akandi, hjólandi og gangandi umferðar. | Lagt fram til kynningar. | | |
|
4. 1901163 - Álfhella 11, fyrirspurn um deiliskipulagsbreytingu | Brimrás ehf. leggja 10.1.2019 inn fyrirspurn um breytingu á lóð og deiliskipulagi skv. teikningu Luigi Bartolozzi arkitekts dags. 4.1.2019. | Skipulags- og byggingarráð heimilar lóðarhafa að vinna tillögu að breyttu deiliskipulagi byggða á tillögu Luigis Bartolozzis arkitekt dags. 4.1.2019. Jafnframt að tillagan hljóti meðferð í samræmi við 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga. | | |
|
5. 1903121 - Hamranes, uppbygging | Kynnt drög að uppbyggingu Bjargs Íbúðarfélags á fyrirhuguðum uppbyggingarreitum í Hamranesi. | Lagt fram til kynningar. | | |
|
6. 1711217 - Skógarás 6, breyting | Eðvarð Björgvinsson lagði þann 16.11.2017 inn breytingar á Skógarási 6 samkvæmt teikningum Stefáns Ingólfssonar dagsettum 15.11.2017. Nýjar teikningar bárust 30.11.17. Nýjar teikningar í tvíriti bárust þann 12.02.2019. Á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa þann 13.02.2019 var erindinu frestað. Lögð fram greinargerð skipulagsfulltrúa dags. 11.03.2019.
| Skipulags- og byggingarráð tekur undir greinargerð skipulagsfulltrúa og heimilar ekki breytingar á byggingarreit. Fyrirliggjandi tillaga samræmist ekki gildandi deiliskipulagi og skilmálum.
| Greinargerð skipulagsfulltrúa 11.3.2019.pdf | Skogaras_6_.pdf | Skógarás 6, gögn.pdf | Skogaras_6_003.pdf | Skogaras_6_002.pdf | Skogaras_6_.pdf | Ásland 3. áfangi, mæliblað.pdf | | |
|
7. 1701084 - Hamranes I, nýbyggingarsvæði | Teknar fyrir á ný hugmyndir VA arkitekta að uppbyggingu og þróun Hamraness sem nýbyggingarsvæðis að teknu tilliti til legu Ásvallabrautar og kynntar hugmyndir að þéttleika svæðisins. | Lagt fram til kynningar. | | |
|
8. 1811261 - Uppsetningar á samkomutjöldum í landi Hafnarfjarðar | Á fundi skipulags- og byggingarráðs þann 15. janúar 2019 var tekið jákvætt í erindi ferðaþjónustufyrirtækisins Basecamp Iceland er varðar uppsetningu á samkomutjöldum ætluðum til norðurljósa- og stjörnuskoðunar. Lögð fram afstöðumynd og gögn er varða tæknilegar upplýsingar. | Skipulags- og byggingarráð tekur jákvætt í erindið og felur umhverfis- og skipulagsþjónustu að vinna áfram að málinu. | | |
|
9. 1810247 - Reykjanesbraut 200, breyting á deiliskipulagi | Kvartmíluklúbburinn óskar eftir að breyta deiliskipulagi aksturs- og skotæfingasvæðis í Kapelluhrauni, bæta við og breyta núverandi byggingarreitum ásamt því að búa til nýja lóð eins og meðfylgjandi uppdráttur Landmótunar dags. 03.10.2018 gerir grein fyrir. | Skipulags- og byggingarráð samþykkir framlagðan uppdrátt að breyttu deiliskipulagi dags. 3.10.2018 og að deiliskipulagsbreytingin verði auglýst í samræmi við 1.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulags-og byggingarráð leggur jafnframt til við bæjarstjórn að hún staðfesti ofangreint.
| Reykjanesbraut 200, uppdráttur.pdf | | |
|
10. 1902461 - Kapelluhraun -2 áfangi | Lögð fram á ný umsókn Kára Eiríkssonar arkitekts ásamt uppdrætti dags. feb 2019 er varða breytingar á deiliskpulagi Kapelluhrauns 2. áfanga. Ennfremur lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11.03.2016. | Skipulags- og byggingarráð samþykkir framlagða umsögn og heimilar umsækjanda að vinna að breyttu deiliskipulagi að teknu tilliti til athugasemda sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa. | Kapelluhraun 2. áfangi, umsögn skipulagsfulltrúa 11.3.2019..pdf | Gildandi skilmálar..pdf | Kapelluhraun 1. ágangi gildandi deiliskip..pdf | Kapelluhraun-deiliskipulagbreyting.pdf | | |
|
11. 1712136 - Kaldárselsvegur, lóð Skógræktarfélags Hafnarfjarðar, fyrirspurn | Á fundi skipulags- og byggingarráðs þann 18. desember 2018 samþykkti Skipulags- og byggingarráð tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við 1.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum þann 9. janúar 2019 samhljóða að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi í samræmi við 1.mgr. 43.greinar skipulagslaga nr. 123/2010. Auglýsingatíma er lokið og engar athugasemdir bárust. | Með vísan til þess að engar athugasemdir bárust samþykkir skipulags- og byggingarráð að málinu verði lokið í samræmi við 3.mgr. 41.gr. skipulagslaga 123/2010. | | |
|
12. 1901472 - Hestamannafélagið Sörli, deiliskipulagsbreyting, óveruleg | Á fundi skipulags- og byggingarráðs þann 29. janúar 2019 var samþykkt fela Umhverfis- og skipulagsþjónustu að kynna óverulega breytingu á deiliskipulagi sbr. gr. 5.9.1. skipulagsreglugerðar á deiliskipulagi Sörla með grenndarkynningu hvað varðar skilmálatöflu þar sem koma fram m.a. lóðarstærðir og nýtingarhlutfall. Grenndarkynningu lokið og engar athugasemdir bárust.
| Með vísan til þess að engar athugasemdir bárust samþykkir skipulags- og byggingarráð að málinu verði lokið í samræmi við 3.mgr. 41.gr. skipulagslaga 123/2010. | | |
|
13. 1902411 - Ásvallabraut, framkvæmdaleyfi | Hafnarfjarðarbær sækir um framkvæmdaleyfi fyrir gatnagerð Ásvallabrautar frá Kaldárselsvegi að Skarðshlíð. Framkvæmdin felur í sér lagningu nýs vegar frá nýju hringtorgi við Kaldárselsveg að Nóntorgi í Skarðshlíð sem og gerð stíga og hljóðmana. | Með vísan í 11.gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012 og umsóknar umhverfis- og framkvæmdaráðs Hafnarfjarðar dags. 28.02.2019, samþykkir skipulags- og byggingarráð framkvæmdaleyfið fyrir sitt leyti. Jafnframt leggur skipulags- og byggingarráð til við bæjarstjórn Hafnarfjarðar að hún samþykki framangreint framkvæmdaleyfi með vísan til 11.gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012. | | |
|
14. 1901118 - Golfklúbburinn Keilir, framkvæmdaleyfi | Golfklúbburinn Keilir óskar eftir framkvæmdaleyfi til að fara í framkvæmdir á vellinum skv. meðfylgjandi gögnum dags. 07.01.2019. Umsögn minjastofnunnar Íslands dags. 11. mars 2018 og Byggðasafns Hafnarfjarðar dags. 25. febrúar 2019 liggur fyrir. | Erindi frestað. | | |
|
15. 1903229 - Miðbær, deiliskipulag, starfshópur | Drög að erindisbréfi lagt fram. | Lagt fram til kynningar. | | |
|
16. 1705014 - Skarðshlíð deiliskipulag 3.áfangi | Í greinagerð Skarðshlíðar 3. áfanga hefur komið í ljós að gera þarf nokkrar breytingar á texta. Breytingarnar hafa hvorki áhrif á deiliskipulagsuppdrátt né skipulagið í heild sinni. Breytingar greinagerðar eru lagðar fram. | Skipulags- og byggingarráð samþykkir breytingarnar og að með þær skuli farið í samræmi við 2.mgr. 44.gr. skipulagslaga. Skipulags- og byggingarráð samþykkir jafnframt að þar sem ekki eru aðrir hagsmunaaðilar en Hafnarfjarðarbær eru breytingarnar samþykktar og að málinu skuli lokið í samræmi við skipulagslög. | Breyting greinagerð mars 2019 skarðshlíð 3. áfangi.pdf | | |
|
| |
17. 1806317 - Uppbygging á hafnarsvæðinu | Fundargerðir samráðsnefndar um gerð rammaskipulags Flensborgarhafnar og Óseyrarsvæðis lagðar fram til kynningar. | | |
|
18. 1902021F - Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa - 744 | Lögð fram fundargerð 744 fundar. | | |
|
19. 1903003F - Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa - 745 | Lögð fram fundargerð 745 fundar. | | |
|