Til bakaPrenta
Umhverfis- og framkvæmdaráð - 331

Haldinn í fundarherbergi Norðurhellu 2,
22.05.2019 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Helga Ingólfsdóttir formaður,
Árni Rúnar Árnason varaformaður,
Skarphéðinn Orri Björnsson aðalmaður,
Friðþjófur Helgi Karlsson aðalmaður,
Þórey Svanfríður Þórisdóttir áheyrnarfulltrúi,
Arnhildur Ásdís Kolbeins áheyrnarfulltrúi,
Hulda Sólveig Jóhannsdóttir varamaður,
Fundargerð ritaði: Anna María Elíasdóttir, skrifstofustjóri
Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn: Helga Stefánsdóttir forstöðumaður, Sigurður Haraldsson sviðsstjóri.


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 1901298 - Vinnuskóli 2019
Fulltrúar Vinnuskólans kynna starfsemi hans í sumar.
Geir Bjarnason íþrótta- og tómstundafulltrúi kynnti starfsemi Vinnuskólans fyrir sumarið 2019.
2. 1904007 - Sambo Ísland, umsókn um æfingaaðstöðu
Lögð fram umsókn Sambo Ísland um æfingaraðstöðu. Lögð fram bókun ÍTH. "ÍTH nefndin tekur vel í erindið og vísar því til úrvinnslu hjá Umhverfis- og skipulagssviði."
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að Sambo Ísland fái aðstöðu fyrir æfingar að Flatahrauni 14.
Helga Ingólfsdóttir vék af fundi við afgreiðslu þessa erindis.
3. 1808075 - Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2019 og 2020-2022
Lagðar fram lykiltölur fyrir fyrstu 3 mánuði ársins sem og breytingar í fjárfestingum 2019.
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir framlagðar breytingar í fjárfestingum 2019 og vísar til bæjarráðs.
4. 1905145 - Útboðsmál hjá Hafnarfjarðarbæ, tillaga
Fulltrúi Miðflokksins, Arnhildur Ásdís Kolbeins, gerir þá tillögu að Hafnarfjarðarbær bjóði út í rammasamningsútboði viðhaldsverkefni og smærri framkvæmdaverkefni á vegum umhverfis- og skipulagsþjónustu til tveggja ára í senn, í þeim tilgangi að auka hagkvæmni verkefna, gagnsæi og jafnræði.
Umhverfis- og framkvæmdaráð tekur undir tillöguna og vísar henni til fjárhagsáætlunargerðar.
5. 1905232 - Sorphirðutunnur, lokanir
Tekið til umræðu hvernig hægt er að gera fólki og fyrirtækjum kleift að setja einfaldar lokur á ruslatunnur sínar svo koma megi í veg fyrir að rusl fjúki úr þeim í hvassviðri eða þegar tunnurnar feykjast um koll.
Umhverfis- og framkvæmdaráð vísar erindinu til skoðunar hjá umhverfis- og skipulagsþjónustu.
6. 1803160 - Ærslabelgur
Umhverfis- og framkvæmdaráð vísaði tillögum að staðsetningu ærslabelgs til umsagnar fræðsluráðs á fundi sínum þann 8.5.2019. Lögð fram bókun Fræðsluráðs frá 9.5.2019. "Fræðsluráð samþykkir að fjárfesta í ærslabelg og tekur undir bókun umhverfis- og framkvæmdaráðs um að fyrsti ærslabelgurinn sem fjárfest verði í verði staðsettur á Víðistaðatúni."
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir uppsetningu á ærslabelg á Víðistaðatúni.
7. 1706086 - Skólahreystibraut
Umhverfis- og framkvæmdaráð óskaði eftir endurmati á staðsetningu hreystibrautar frá fræðsluráði á fundi sínum þann 2.5.2019. Lögð fram bókun Fræðsluráðs frá 9.5.2019. "Fræðsluráð leggur til að hreystibrautin verði staðsett á Hörðuvöllum enda telst sú staðsetning miðsvæðis. Gott aðgengi og góðar almenningssamgöngur er á svæðinu. Einnig má geta þess að hreystivöllur verður á nýrri skólalóð Skarðshlíðarskóla."
Umhverfis- og framkvæmdaráð vísar erindinu til afgreiðslu skipulags- og byggingarráðs.
8. 0801336 - Norðurbakki, yfirborðsfrágangur
Tekið fyrir að nýju.
Umhverfis- og framkvæmdaráð frestar verkefninu og vísar því til fjárhagsáætlunargerðar 2020.
9. 1702008 - Öryggis- og eftirlitsmyndavélar í landi Hafnarfjarðar
Tekið fyrir að nýju.
Umhverfis- og framkvæmdaráð óskar eftir kostnaðarmati við uppsetningu öryggis- og eftirlitsmyndavéla. Staðsetningar til skoðunar eru Hlíðartorg við N1 og gatnamót Reykjavíkurvegar og Hjallabrautar. Fulltrúi Sjálfstæðisflokks, Skarphéðinn Orri Björnsson, situr hjá við afgreiðslu málsins.
10. 1905237 - Yfirlagnir í Hafnarfirði, 2019
Tekið til umræðu.
Erindi frestað.
11. 1905199 - Reykjanesbraut, framkvæmdir
Lagt fram erindi íbúa í Vallarbarði varðandi hljóðvist frá Reykjanesbraut dags. 15. maí 2019.
Umhverfis- og framkvæmdaráð vísar erindinu til Vegagerðarinnar.
12. 1902539 - Seltún, borhola K-16
Tekið fyrir að nýju.
Tekið til umræðu.
13. 1106043 - Gatnalýsing í Hafnarfirði
Lögð fram niðurstaða útboðs á Led götuljóskerjum.
Lagt fram til kynningar.
14. 1801408 - Umhverfis- og auðlindastefna, aðgerðaráætlun 2018
Tekin fyrir aðgerðaráætlunin sem og forgangsröðun verkefna.
Umhverfis- og framkvæmdaráð óskar eftir kostnaðarmati í samræmi við framlagt minnisblað.
Fundargerðir
15. 1801455 - Starfshópur um Ásvelli 2018
Lögð fram fundargerð nr. 15.
15. fundur starfshóps um Ásvelli 14. maí 2019.pdf
16. 1901143 - Strætó bs, fundargerðir 2019
Lögð fram fundargerð nr. 303.
Fundargerd stjornarfundur 303 3. mai´ 2019.pdf
17. 1708176 - Skarðshlíðarskóli, framkvæmdir
Lögð fram 31. verkfundargerð.
2019-04-24_Verkfundur 31.pdf
18. 1701334 - Sólvangsvegur 2, hjúkrunarheimili, framkvæmdir
Lögð fram 49. verkfundargerð.
17120001-1-FV-0228-Solvangur_verkfundargerd_nr.049.pdf
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00 

Til bakaPrenta