Til bakaPrenta
Menningar- og ferðamálanefnd - 326

Haldinn í Hafnarborg,
16.05.2019 og hófst hann kl. 09:30
Fundinn sátu: Guðbjörg Oddný Jónasdóttir formaður,
Þórey Anna Matthíasdóttir aðalmaður,
Guðjón Karl Arnarson varamaður,
Ágústa Kristófersdóttir fundarritari.
Fundargerð ritaði: Ágústa Kristófersdóttir, Forstöðumaður


Dagskrá: 
Kynningar
1. 1809021 - Starfsáætlun menningar- og ferðamálanefndar 2019
Björn Pétursson bæjarminjavörður var gestur fundarins undir þessum lið. Sumardagskrá Bókasafns, Byggðasafns og Hafnarborgar kynnt, auk þess sem farið var yfir aðra viðburði sem verða í bænum í sumar. Menningargöngur verða í boði alla fimmtudaga og verða þær ásamt annari dagskrá kynntar bæjarbúum í gegnum vefmiðlun og með prentuðu efni. Nefndin fagnar öflugu menningarlífi í bænum og hvetur bæjarbúa til að nýta sér það sem í boði er.
2. 1004442 - Markaðssamstarf, viðburðir og upplýsingamiðlun á höfuðborgarsvæðinu
Kynningaráætlun fyrir sumarið 2019 lögð fram. Unnið verður að kynningu á Hafnarfirði og því sem bærinn hefur upp á að bjóða bæði fyrir erlenda og innlenda ferðamenn, auk bæjarbúa. Nefndin fagnar aukinni áherslu á þátttöku í markaðssamstarfi á höfuðborgarsvæðinu.
3. 1905029 - Útivistarsvæði í Hafnarfirði - aðgengi og nýting
Farið yfir notkun á útivistarsvæðum og möguleika á að bóka viðburði á opnum svæðum í umsjón bæjarins. Uppbyggingu á afreyingarmöguleikum á útivistarsvæðum er fagnað og starfsmönnum falið að efla kynningu á þeim möguleikum sem útivistarvæðin bjóða upp á, til bæjarbúa.
4. 1905021 - Hellisgerði 2019
Rætt um aðgengi almennings að aðstöðu í Hellisgerði og fyrirkomulag á reksti aðstöðunnar. Umsjón með rekstri er í höndum garðyrkjustjóra.
5. 1905174 - Heimsókn menningar- og ferðamálanefndar í Íshúsið
Anna María Karlsdóttir og Ólafur Sverrisson tóku á móti nefndinni í Íshúsinu. Aðstaðan skoðuð og helstu verkefni kynnt. Nefndin fagnar framtakinu og óskar aðstandendum Íshússins til hamingju með glæsilega starfsemi.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:30 

Til bakaPrenta