Til bakaPrenta
Forsetanefnd - 90

Haldinn í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6,
30.09.2019 og hófst hann kl. 10:00
Fundinn sátu: Kristinn Andersen forseti,
Sigurður Þórður Ragnarsson 1. varaforseti,
Ágúst Bjarni Garðarsson 2. varaforseti,
Adda María Jóhannsdóttir áheyrnarfulltrúi,
Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir áheyrnarfulltrúi,
Fundargerð ritaði: Ívar Bragason, Lögmaður á stjórnsýslusviði og ritari bæjarstjórnar


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 1806224 - Bæjarstjórn, starfsumhverfi 2018-2022
Farið yfir drög að dagskrá bæjarstjórnarfundar sem haldinn verður miðvikudaginn 2.október nk.
2. 1709249 - Samþykktir um stjórn Hafnarfjarðarkaupstaðar, síðari umræða
Staða yfirstandandi vinnu að breytingum kynnt.
3. 1101355 - Hafnarstjórn, fundartímar
Til umræðu
Forsetanefnd leggur til að fundargerðir Hafnarstjórnar verði hluti ef útsendri dagskrá fyrir fundi bæjarráðs sem fram fara í sömu viku.
4. 1809309 - Siðareglur, innsend erindi 2018-2022
Til umræðu
Kynnt álit siðanefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga. Með vísan til framkomins álits telur forsetanefnd ekki tilefni til að aðhafast frekar og telur málinu lokið af sinni hálfu. Álitið hefur þegar verið kynnt aðilum málsins og er ritara forsetanefndar falið að kynna þeim niðurstöðu nefndarinnar.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:10 

Til bakaPrenta