| |
1. 1902408 - Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2020 og 2021-2023 | Fjárhagsáætlun 2020 tekin til umfjöllunar. Lögð fram fjárfestingaáætlun 2020. | Lagt fram til kynningar. | | |
|
2. 1806317 - Uppbygging á hafnarsvæðinu | Formaður hafnarstjórnar kynnir rammaskipulagstillögu fyrir Flensborgarhöfn og Óseyrarsvæði. | Skipulags- og byggingarráð þakkar Kristínu Thoroddsen formanni hafnarstjórnar fyrir kynninguna. | | |
|
3. 1809389 - Aðalskipulag Hafnarfjarðar 2013-2025, endurskoðun | Skipulags- og byggingarráð fól skipulagsfulltrúa að hefja undirbúning að vinnu við endurskoðun aðalskipulags Hafnarfjarðar 2013-2025 á fundi sínum þann 10.09.2019. Lögð fram drög að áherslum og tímaramma.
| Drög að áherslum og tímaramma lögð fram til kynningar. Fulltrúi Samfylkingarinnar fagnar því að vinna við endurskoðun aðalskipulags Hafnarfjarðar sé að hefjast og að allir flokkar í bæjarstjórn eigi aðkomu að þeirri vinnu. Í aðalskipulagi er stefna sveitarfélagsins mörkuð til næstu ára um landnotkun, náttúruvernd og þróun byggðar í sveitarfélaginu. Mikilvægt er að í þessari vinnu náist breið samstaða og forsenda þess er gott samráð við íbúa og aðra hagsmunaaðila. Fulltrúi Samfylkingarinnar leggur til að í upphafi vinnunnar verði gerð áætlun um fundi og kynningar meðal íbúa. Fulltrúar meirihlutans taka undir með mikilvægi aðkomu allra flokka að gerð aðalskipulagsgerðarinnar. Meirihluti skipulags- og byggingarráðs hefur lagt áherslu á að gott samráð og kynningar verði á skipulagsferlinu eins og fram kemur í drögum að áherslum og tímaramma skipulagsfulltrúa. Lögð er áhersla á kynningu og samráð um skipulagsgerðina við íbúa sveitarfélagsins og aðra hagsmunaaðila. | ASH áherslur -drög-tímarammi-1.pdf | | |
|
4. 1703032 - Suðurgata 73, breyting á deiliskipulagi | Ásmundur Kristjánsson sótti 03.03.2017 um breytingu á deiliskipulagi vegna fyrirhugaðra framkvæmda og starfsemi að Suðurgötu 73. Erindinu var synjað eins og það lá fyrir. Lögð fram ný tillaga að breyttu deiliskipulagi dags. 04.05.2019.
| Skipulags- og byggingarráð samþykkir að málsmeðferð fyirliggjandi tillögu að deiliskipulagsbryetingu verði samkvæmt 1.mgr. 43.gr. skipulagslaga 123/2010 og að tillagan verði jafnframt grenndarkynnt. Erindinu er jafnframt vísað til bæjarstjórnar til staðfestingar. | 1911-Suðurgata73-deiliskipulag-101.pdf | | |
|
5. 1906125 - Skútahraun 6, byggingarleyfi | Umsókn Slökkviliðs Höfuðborgarsvæðisins dags. 4.6.2019 var vísað til skipulags- og byggingarráðs frá 769 afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa þann 2.10.sl. Óskað er eftir því að byggja æfingaraðstöðu (reykköfunaraðstöðu) skv. teikningum Sigurðar Þorvarðarsonar dags. í maí 2019. Skipulagsfulltrúi vísaði erindinu til grenndarkynningar þann 12.6.2019. Erindið var grenndarkynnt tímabilið 2.9.-30.9.2019. Athugasemdir bárust. Lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 07.10.2010 | Erindi frestað. | | |
|
6. 1709517 - Strandgata 9, Súfistinn, deiliskipulag og aðkoma að lóð | Skipulags- og byggingarráð samþykkti framlagða deiliskipulagsbreytingu að undangenginni auglýsingu þann 6. maí 2019. Komið hefur í ljós að leggja þarf kvöð um aðkomu á land í eigu Hafnarfjarðar vegna eldri samþykkta. | Skipulags- og byggingarráð samþykkir að lögð sé kvöð um 3m aðkomuleið fyrir gangandi umferð. | Súfistinn-Strandgata-stækkun-tillaga01.pdf | | |
|
7. 1701084 - Hamranes I, nýbyggingarsvæði | Tekin til áframhaldandi umræðu deiliskipulagsvinna á nýbyggingarsvæði Hamraness. Kynntar tillögur að uppbyggingu reita. | Lagt fram til kynningar. | | |
|
8. 1910097 - Stuðlaskarð 6, fyrirspurn deiliskipulag | Smári Björnsson f.h. SSG Verktaka ehf. leggur inn fyrirspurn um óverulega breytingu á deiliskipulagi húsgerðar R6. Breytingin felst í því að byggingarreitur færist til á lóð. | Skipulags- og byggingarráð tekur jákvætt í fyrirspurnina. | Stuðlaskarð 6, tillaga.pdf | | |
|
| |
9. 1909024F - Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa - 769 | Lögð fram fundargerð 769. fundar. | | |
|