Til bakaPrenta
Hafnarstjórn - 1559

Haldinn á hafnarskrifstofu,
09.10.2019 og hófst hann kl. 10:00
Fundinn sátu: Kristín María Thoroddsen formaður,
Ágúst Bjarni Garðarsson aðalmaður,
Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir aðalmaður,
Helga R Stefánsdóttir varamaður,
Gylfi Ingvarsson varamaður,
Fundargerð ritaði: Lúðvík Geirsson, hafnarstjóri
Til fundarins mætti Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri.


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 1907305 - Fornubúðir 20 - stofnun lóðar
Lagt fram lóðarblað fyrir lóðina Fornubúðir 20 við Háabakka fyrir veitu- og tæknirými.
Hafnarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti stofnun lóðarinnar.
242152 _Fornubudir_20_leiðr.mbl.pdf
Kynningar
2. 1407063 - Norðurgarður, endurbygging
Þráinn Hauksson og Anders Terp frá Landslagi mættu til fundarins og kynnti frekari tillögur og útfærslur að uppbyggingu Norðurgarðs í samræmi við samþykkt hafnarstjórnar frá 9. janúar sl.
Hafnarstjórn samþykkir að láta vinna kostnaðargreiningu á útfærslu endurbóta á Norðurgarði.
3. 1901032 - Hafnarfjarðarhöfn 110 ára
Halldór Árni Sveinsson frá netsamfelagi.is mætti til fundarins og kynnti efnisrammafyrir heimildamynd um Hafnarfjarðarhöfn og Sjómannadaginn í Hafnarfirði sbr. samþykkt hafnarstjórnar frá 28. ágúst sl.
4. 1806317 - Uppbygging á hafnarsvæðinu
Lögð fram fundargerð samráðanefndar frá 30. september sl. Formaður fór yfir vinnu arkitekta og nefndinnar og kynnti tillögu samráðsnefnar um að setja fyrirliggjandi drög að rammaskipulagi fyrir Flensborgarhöfn og Óseyrarsvæði í formlega kynningu.
Hafnarstjórn samþykkir að fyrirliggjandi drög að rammaskipulagi verði sett í kynningu. Umsagnarfrestur verði til loka október og almennur kynningarfundur fyrir íbúa verði haldinn þann 15. október n.k.
19. fundur samráðsnefndar 30. sept 2019.pdf
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:30 

Til bakaPrenta