Til bakaPrenta
Fjölskylduráð - 549

Haldinn í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6,
03.03.2026 og hófst hann kl. 08:30
Fundinn sátu: Margrét Vala Marteinsdóttir formaður,
Jóhanna Erla Guðjónsdóttir aðalmaður,
Helga Ingólfsdóttir varaformaður,
Árni Rúnar Þorvaldsson aðalmaður,
Auður Brynjólfsdóttir aðalmaður,
Árni Stefán Guðjónsson áheyrnarfulltrúi,
Fundargerð ritaði: Erna Aradóttir, ritari fjölskylduráðs
Einnig sat Guðlaug Ósk Gísladóttir, sviðsstjóri, fundinn.


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2508537 - Miðstöðin - vinna og virkni fyrir fatlað fólk
Þórdís Rúriksdóttir, forstöðumaður Miðstöðvarinnar, mætir til fundar undir þessum lið.
Fjölskylduráð þakkar Þórdísi Rúriksdóttur fyrir gagnlega kynningu á starfsemi Miðstöðvarinnar - vinnu og virkni fyrir fatlað fólk. Ráðið fagnar þeim góða árangri sem náðst hefur og leggur áherslu á mikilvægi þess að fatlað fólk í sveitarfélaginu hafi aðgang að fjölbreyttum og einstaklingsmiðuðum vinnu- og virkniúrræðum sem stuðla að aukinni þátttöku, sjálfstæði og bættum lífsgæðum. Jafnframt er afar ánægjulegt að heyra að samþykkt ráðsins vegna AMS-samninga sé komið í gott og markvisst ferli. Fjölskylduráð leggur áherslu á áframhaldandi þróun og öflugt samstarf á þessu sviði til að tryggja stöðuga og metnaðarfulla þjónustu.

2. 2403403 - Barnavernd - staða mála
Kolbrún Þorkelsdóttir, deildarstjóri barnaverndar, og Hrafnhildur Ágústsdóttir, lögfræðingur, mæta til fundar undir þessum lið.
Fjölskylduráð þakkar Kolbrúnu Þorkelsdóttur og Hrafnhildi Ágústsdóttur fyrir kynninguna.

Fjölskylduráð hefur lagt ríka áherslu á að fylgja eftir stöðu mála í barnavernd á kjörtímabilinu.

Meirihluti fjölskylduráðs leggur til eftirfarandi tillögu og óskar eftir því að hún verði tekin til afgreiðslu á fundinum.



Meirihluti fjölskylduráðs leggur til að bæta við stöðugildi innan barnaverndar Hafnarfjarðar með það að markmiði að efla eftirlit og eftirfylgni með fóstursamningum og aðbúnaði barna í fóstri.

Ljóst er að Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála veitir leyfi til fósturaðila en lögbundið eftirlit með framkvæmd fóstursamninga og aðstæðum barna í fóstri er á ábyrgð sveitarfélaganna. Sú skipan krefst skýrrar verkaskiptingar, gagnsæis og nægra stöðugilda hjá barnavernd til að tryggja að eftirlitið sé sjálfstætt, markvisst og reglubundið.

Á meðan ekki liggur fyrir skýrari niðurstaða um breytingar á fyrirkomulagi eftirlits telur fjölskylduráð brýnt að Hafnarfjörður tryggi barnavernd nægilegt svigrúm og mannafla til að sinna þessu mikilvæga hlutverki. Markmiðið er að styrkja öryggi barna í fóstri, efla réttaröryggi þeirra og tryggja vandaða og faglega framkvæmd fóstursamninga í sveitarfélaginu.

Sviðsstjóra falið að vinna að nánari útfærslu.

Fjölskylduráð samþykkir framlagða tillögu meirihlutans.


Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi bókun:

Fulltrúar Samfylkingarinnar samþykkja þá tillögu að bæta við stöðugildi innan barnaverndar þar sem markmiðið er að efla eftirlit og eftirfylgni með fóstursamningum og aðbúnaði barna í fóstri. Ljóst er að skipan eftirlits verður að byggja á skýrri verkaskiptingu og gagnsæi og tryggja verður að eftirlitið sé sjálfstætt. Því er mikilvægt er að unnið verði að útfærslu tillögunnar eins hratt og auðið er.
3. 2403380 - Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2025 og 2026-2028
Guðmundur Sverrisson, rekstrarstjóri í hagdeild og Ólafur Heimir Guðmundsson, sérfræðingur í hagdeild mæta til fundar undir þessum lið.
Lagt fram til kynningar.
4. 2602450 - Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2027 og 2028-2030.
Lögð fram tíma- og verkáætlun.
Lagt fram til kynningar.
5. 2408584 - Reglur um akstursþjónustu fatlaðs fólks
Lagt fram til kynningar.
Fjölskylduráð vísar drögum að reglum um akstursþjónustu fatlaðs fólks til umsagnar hjá samráðshópi um málefni fatlaðs fólks.

6. 2501358 - Húsnæði fyrir fatlað fólk - uppbygging
Lagt fram til kynningar.
Fjölskylduráð þakkar sviðsstjóra fyrir framlagðar upplýsingar. Fjölskylduráð óskar eftir að áfram verður kynnt fyrir ráðinu öll vinnsla málsins.

Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi bókun:

Fulltrúar Samfylkingarinnar þakka fyrir framlagt minnisblað og veittar upplýsingar á fundinum. Þó unnið hafi verið að því að fjölga búsetuúrræðum fyrir fatlað fólk á síðustu árum þá er nauðsynlegt að fyrir liggi heildstæð og raunhæf uppbyggingaráætlun á búsetuúrræðum fyrir fatlað fólk hjá bæjarfélaginu. Slík áætlun hefur ekki verið samþykkt af bæjarstjórn og fulltrúar Samfylkingarinnar telja að hún sé forsenda þess að sveitarfélagið getið staðið við lagalegar skyldur sínar og tryggt fötluðu fólki viðeigandi og fjölbreytt búsetuúrræði í samræmi við þarfir og réttindi hvers og eins.
Húsnæðisáætlun fyrir fatlað fólk 3.3.26.pdf
7. 2501737 - Verkefnastjóri fjölmenningar
Lagt fram svar við fyrirspurn.
Lagt fram.
Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi bókun:

Fulltrúar Samfylkingarinnar þakka framlögð svör við fyrirspurnum okkar frá síðasta fundi fjölskylduráðs. Við fögnum því sem fram kemur í svörum verkefnastjóra fjölmenningar sem snýr að fjölmenningarráði um að ráðið hafi þegar hafið störf að nýju. Hins vegar eru núna tæp tvö ár liðin síðan Ungmennahúsinu Hamrinum var lokað og enn er ekki búið að koma á fót ungmennahúsi í Hreiðrinu sem er styður sérstaklega við þátttöku ungmenna með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn. Það sýnir enn og aftur hversu vanhugsuð og illa ígrunduð sú ákvörðun var að loka Hamrinum Ungmennahúsi fyrirvaralaust í upphafi sumars 2024. Fulltrúar Samfylkingarinnar hvetja til þess að þessari vinnu verði hraðað eins og kostur er þannig að ungmenni með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn hafi öruggan aðgang að ungmennahúsi sem styður við þennan hóp.
Svar við fyrirspurn fjölskylduráðs.pdf
8. 2312015 - Aðstoð við ungt fólk sem ekki er í vinnu, námi eða starfsþjálfun
Lagt fram svar við fyrirspurn.
Lagt fram.

Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi bókun:

Fulltrúar Samfylkingarinnar þakka framlögð svör á fundinum við fyrirspurnum okkar. Hér er um að ræða brýnt mál sem fjölskylduráð þarf að hafa áfram til skoðunar og fulltrúar Samfylkingarinnar munu áfram halda málinu á lofti og ýta á eftir aðgerðum í þágu ungs fólks sem ekki er í vinnu, námi eða starfsþjálfun.
9. 2304615 - Málefni heimilislausra
Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir málinu á dagskrá og fara fram á upplýsingar um það hver staðan er á vinnslu máls er varðandi ákvörðun á staðsetningu smáhýsa sem bærinn hefur fest kaup á.
Fjölskylduráð óskar eftir að tekið verði saman minnisblað vegna stöðu málsins.

Fundargerðir
10. 2412078 - Fundargerðir til kynningar í fjölskylduráði
Lagðar fram fundargerðir:
Öldungaráðs frá 13. janúar sl. og 11. febrúar sl.
Fjölmenningarráðs frá 22. janúar sl. og 12. febrúar sl.
Lagt fram til kynningar.
Öldungaráð Hafnafjarðarbæjar - 45.pdf
Öldungaráð Hafnafjarðarbæjar - 46.pdf
Fundargerð fjölmenningarráð 22.1.2026.pdf
Fundargerð fjölmenningarráð 12.2.2026.pdf
11. 0701243 - Málskot
Lögð fram niðurstaða málskotsnefndar í máli nr. 6/2026.
Fjölskylduráð staðfestir afgreiðslu málskotsnefndar.

Lagðir fram úrskurðir úrskurðarnefndar velferðarmála nr. 743/2025, 624/2025 og 63/2025.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:30 

Til bakaPrenta