| |
| 1. 2306477 - Hvaleyrarholt suðaustur, Þorlákstún, Lyngbarð, deiliskipulag | 3.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 14.október sl. Á fundi bæjarstjórnar þ. 25. mars 2026 var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hvaleyrarholts suðausturs vegna Þorlákstúns. Þorlákstún er opið svæði norðan við Reykjanesbraut í Hafnarfirði. Gert er ráð fyrir 46 nýjum lóðum undir 46 sérbýlishús með risþökum í anda gamla bæjarins í Hafnarfirði. Í deiliskipulagstillögunni er ekki leitast við að byggja sem þéttast, heldur að leggja byggðina vel í landið, taka tillit til umhverfisáhrifa og aðliggjandi byggðar, ásamt því að ráðstafa góðum hluta svæðisins til útivistar og sem leiksvæði ásamt sleða-/skíðabrekku fyrir nýju byggðina og aðliggjandi byggð. Lögð er áhersla á góða tengingu við þjónustu og nálæg útivistarsvæði og að íbúum standi til boða fjölbreyttar leiðir til daglegrar hreyfingar innan svæðisins. Sveigjanleiki er í uppbyggingu þannig að heimilt verður að stækka hús innan byggingarreits. Húsin mega vera 1 hæð og ris eða 1 hæð og kjallari og raðast annars vegar meðfram nýrri aðalgötu um miðbik svæðisins, sem fylgir landhalla, og hins vegar á jaðar svæðisins meðfram Lyngbarði og Suðurbraut. Tillagan var í auglýsingu 24.4-11.6.2026. Lögð fram svör við athugasemdum og uppfærður uppdráttur.
Skipulags- og byggingarráð tekur undir svör við athugasemdum og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja uppfærða tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hvaleyrarholts suðausturs vegna Þorlákstúns. | Karólína Helga Símonardóttir tekur til máls.
Einnig tekur til máls Guðmundur Fylkisson í sinni fyrstu ræðu í bæjarstjórn Hafnarfjarðar. Orri Björnsson kemur til andsvars.
Þá tekur Valdimar Víðisson til máls.
Einnig Árni Rúnar Þorvaldsson tekur til máls.
Samþykkt samhljóða.
Valdimar Víðisson kemur að svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Framsóknar styðja fyrirliggjandi deiliskipulagstillögu fyrir Þorlákstún en undirbúningur verkefnisins hófst á síðasta kjörtímabili. Tillagan felur í sér áhugaverða uppbyggingu sem tekur mið af sérkennum eldri byggðar í Hafnarfirði. Sérstaklega er ánægjulegt að gert sé ráð fyrir opnu útivistarsvæði með göngustígum og sleðabrekku sem mun nýtast bæði nýjum íbúum og þeim sem þegar búa í nærliggjandi hverfum. Slík svæði eru mikilvæg fyrir samveru, hreyfingu og lífsgæði íbúa og styrkja samfélagið í heild.
Einar Geir Þorsteinsson kemur að svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Miðflokksins tekur jákvætt í fyrirliggjandi deiliskipulagstillögu fyrir Þorlákstún. Tillagan samræmist vel áherslum Miðflokksins um fjölbreytt lóðaframboð, uppbyggingu sérbýlis og að ný byggð taki mið af yfirbragði og sérkennum þeirra hverfa sem fyrir eru. Sérstaklega er ánægjulegt að gert sé ráð fyrir rúmgóðum lóðum fyrir sérbýli, hefðbundnu byggingarformi, nægum bílastæðum og góðu rými fyrir útivist.
Þegar málið var til umræðu í bæjarstjórn fyrr á þessu ári gagnrýndu fulltrúar Samfylkingarinnar að eingöngu væri gert ráð fyrir sérbýli og vildu meiri þéttingu á svæðinu. Miðflokkurinn telur þvert á móti mikilvægt að Hafnarfjörður bjóði áfram upp á rúmgóðar sérbýlishúsalóðir. Það verður að vera raunhæfur kostur fyrir fjölskyldur að byggja eða kaupa sérbýli í Hafnarfirði. Ekki þarf að nýta hverja einustu lóð undir sem flestar íbúðir.
| | Þorlákstún_Deiliskipulagstillaga_uppdrattur.pdf | | Þorlákstún - Deiliskipulagstillaga 4 draft 12.pdf | | Greinargerð_Þorlákstún uppfært eftir kynningu.pdf | | |
|
| 2. 2601436 - Merkurgata, deiliskipulag | 4.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 14.október sl. Bæjarráð, í umboði bæjarstjórnar, samþykkti á fundi sínum 25.6.2026 að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Vesturbæjar Hafnarfjarðar vegna Merkurgötu. Breytingin felst í því að torgi hverfisins verður breytt í malbikað plan með bílastæðum og gróðurbeðum. Tillagan var í kynningu 23.7.2026 með athugasemdafresti til 6.9.2026. Athugasemdir bárust. Lögð fram samantekt athugasemda og svör.
Skipulags- og byggingarráð tekur undir svör við athugasemdum og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu að breytingu á deiliskipulagi Merkurgötu. | Einar Geir Þorsteinsson tekur til máls undir fundarstjórn forseta. Einnig Árni Rúnar Þorvaldsson.
Karólína Helga Símonardóttir tekur til máls.
Samþykkt samhljóða. | | |
|
| 3. 2609300 - Ofanvatnslausn við Reykjavíkurveg, deiliskipulagsbreyting | 5.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 14.október al. Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Norðurbæjar. Tillagan felst í að tekið sé frá svæði fyrir 880 m² ofanvatnslausn/geymslutank sem verður undir yfirborði á grænu svæði á milli Suðurvangs og Reykjavíkurvegs. Hverfisvernd fellur út að hluta. Jafnframt er bætt við kvöð um lögn sem tengir ofanvatnslausnina við ofanvatnskerfi frá Hraun vestur.
Skipulags- og byggingarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Norðurbæjar vegna ofanvatnslausnar milli Suðurvangs og Reykjavíkurvegar. | Karólína Helga Símonardóttir tekur til máls.
Samþykkt samhljóða. | | Deiliskipulagsuppdráttur Norðurbær 14_10_2026 (002).pdf | | |
|
| 4. 2610282 - Suðurholt 2b, breyting á deiliskipulagi | 6.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 14.október sl. Páll Poulsen f.h. Mílu hf. sækir 07.10.2026 um breytingu á deiliskipulagi. Breytingin felst í nýrri lóð undir farsímaloftnet, Suðurholt 2b. Aðkoma að lóð er um Suðurbraut líkt og er fyrir lóðina Suðurholt 2a. Stærð lóðar er 8 x 8m og stærð byggingarreits 6 x 6m. Stálstaur farsímaloftnets verður 16m að hæð.
Skipulags- og byggingarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hvaleyrarholts suð vesturs vegna nýrrar lóðar undir farsímaloftnet, Suðurholt 2b. | | Samþykkt samhljóða. | | Suðurholt 2b - Deiliskipulagsbreyting.pdf | | |
|
| 5. 2610220 - Blýhella 7-9, breyting á deiliskipulagi | 12.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 14.október sl. Snorri Steinn Þórðarson f.h. Flensborgar hf. sækir 07.10.2026 um breytingu á deiliskipulagi. Breytingin felst í að lóðirnar Blýhella 7 og Blýhella 9 verða sameinaðar í eina lóð sem mun heita Blýhella 7. Lóðarmörk til austurs stækka út að grænu svæði. Byggingarreitur er sameinaður og stækkaður til austurs í hlutfalli við lóðina. Hluti vegarins Blýhellu verður lagður niður. Innkeyrslur á lóð 7 og 9 frá Blýhellu verða lagðar niður og ný innkeyrsla á sameinaða lóð verður frá Stálhellu. Nýtingarhlutfall lóðar verður 0.77. Hæð byggingar innan byggingarreits fer úr 8,5m og verður allt að 14 m.
Skipulags- og byggingarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Iðnaðarsvæðis Kapelluhrauns vegna lóðanna að Blýhellu 7 og 9. Fulltrúi Miðflokksins situr hjá við afgreiðslu máls. | Samþykkt samhljóða.
| | Blýhella 7-9 Deiliskipulagsbreyting uppf..pdf | | Bæjarráð - 3717 (1.10.2026) - Blýhella 7-9, fyrirspurn um deiliskipulagsbreytingu.pdf | | Blýhella 7-9, umsögn 2.9.2026.pdf | | Skipulags- og byggingarráð - 853 : 2607231 - Blýhella 7-9, fyrirspurn um deiliskipulagsbreytingu.pdf | | Skipulagsmál - Deiliskipulag / framkvæmdarleyfi.pdf | | |
|
| 6. 2610165 - Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, gjaldskrá 2027 | 7.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 15.október sl. Lögð fram til afgreiðslu gjaldskrá slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins. Samþykkt og vísað til bæjarstjórnar til staðfestingar. | | Samþykkt samhljóða. | | SHS 284 2.1 Gjaldskrá SHS 2027.pdf | | 2026 1006 Hafnarfjörður v. gjaldskrár SHS.pdf | | |
|
| 7. 2610072 - Svæðisskipulagsnefnd SSH, starfs- og fjárhagsáætlun 2027 | 9.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 15. október sl. Lögð fram starfs- og fjárhagsáætlun svæðisskipulagsnefndar 2027. Samþykkt og vísað til bæjarstjórnar til staðfestingar. | | Samþykkt samhljóða. | | Fylgibréf HAF Fjárhagsáætlun svæðisskipulag 2027.pdf | | Tillaga að fjárhagsáætlun svæðisskipulagsnefndar fyrir árið 2027.pdf | | Tillaga að starfsáætlun nefndarinnar ágúst 2026 til júní 2027.pdf | | |
|
| 8. 2609215 - Þróun og úthlutun lóðar fyrir tímabundna búsetu, samkomulag | Til afgreiðslu. Tekið fyrir að nýju. Áður á dagskrá bæjarstjórnar 29. september sl. 5.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 17.september sl. Þróun og úthlutun lóðar fyrir tímabundna búsetu, samkomulag.
Meirihluti bæjarráðs samþykkir með fjórum atkvæðum gegn einu frá fulltrúa Miðflokks fyrirliggjandi samkomulag og felur bæjarstjóra að undirrita samkomulagið sem verður svo sent bæjarstjórn til endanlegrar staðfestingar.
Fulltrúar Framsóknar og Miðflokks leggja fram eftirfarandi tillögu til afgreiðslu á fundi bæjarstjórnar 21.10.2026: Bæjarstjórn Hafnarfjarðar hafnar staðfestingu samkomulags við Styrkás Fasteignir ehf. um þróun og úthlutun lóða fyrir tímabundna búsetu við Krýsuvíkurveg og Hvaleyrarvatnsveg og ákveður jafnframt að falla frá fyrirhugaðri uppbyggingu starfsmannahverfis á grundvelli þess. Með ákvörðuninni er tekið mið af þeim skýru sjónarmiðum og áhyggjum sem íbúar hafa komið á framfæri, meðal annars á fjölmennum íbúafundi þann 13. október sl. Bæjarstjóra er falið að tilkynna Styrkás Fasteignum ehf. ákvörðun bæjarstjórnar og annast nauðsynlega eftirfylgni.
| Orri Björnsson tekur til máls og leggur fram tillögu um að bæjarstjórn felli fyrirliggjandi samkomulag. Valdimar Víðisson kemur til andsvars. Orri svarar andsvari. Valdimar kemur að andsvari öðru sinni. Orri svarar andsvari. Valdimar kemur að stuttri athugasemd.
Einar Geir Þorsteinsson tekur til máls. Karólína Helga Símonardóttir kemur að andsvari. Einar Geir svarar andsvari.
Valdimar Víðisson tekur til máls. Árni Stefán Guðjónsson kemur að andsvari úr stól forseta. Valdimar svarar andsvari. Árni Stefán kemur að andsvari öðru sinni. Orri kemur næst að andsvari við ræðu Valdimars sem svarar andsvari.
Árni Rúnar Þorvaldsson tekur til máls. Valdimar kemur að andsvari sem Árni Rúnar svarar. Einar Geir kemur næst að andsvari við ræðu Árna Rúnars. Árni Rúnar svarar andsvari.
Valdimar tekur til máls öðru sinni. Karólína Helga kemur að andsvari sem Valdimar svarar. Árni Rúnar kemur næst að andsvari sem Valdimar svarar. Árni Rúnar kemur að andsvari öðru sinni sem Valdimar svarar. Orri kemur að andsvari við ræðu Valdimars. Þá kemur Einar Geir til andsvars við ræðu Valdimars. Orri kemur að stuttri athugasemd.
Fundarhlé kl. 15:19. Fundi framhaldið kl. 15:42.
Forseti ber næst upp svohljóðandi sameiginlega tillögu bæjarstjórnar:
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar hafnar staðfestingu samkomulags við Styrkás Fasteignir ehf. um þróun og úthlutun lóða fyrir tímabundna búsetu við Krýsuvíkurveg og Hvaleyrarvatnsveg og ákveður jafnframt að falla frá fyrirhugaðri uppbyggingu starfsmannahverfis á grundvelli þess.
Er tillagan samþykkt samhljóða.
Orri Björnsson kemur að svohljóðandi bókun fyrir hönd meirihluta Sjálfstæðisflokks, Samfylkingar og Viðreisnar:
Eftir endurskoðun á forsendum verkefnisins og með hliðsjón af athugasemdum íbúa ákvað meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Samfylkingar að leggja til við bæjarstjórn að fyrirliggjandi samkomulag við Stólpa verði ekki samþykkt. Markmiðið með verkefninu var að mæta þörf fyrir öruggt og vandað húsnæði fyrir fólk sem starfar til skemmri tíma á landinu og auka framboð af hagkvæmum íbúðum. Hins vegar hafa komið fram athugasemdir og andstaða við áformin frá því þau voru kynnt, m.a á íbúafundi sem haldinn var að frumkvæði bæjarins 13. október síðastliðinn á Ásvöllum. Mikilvægt er að hlusta á raddir íbúa þegar svona staða kemur upp og bregðast við og því hefur meirihlutinn nú tekið ákvörðun um að fallið verði frá áformunum. Þörfin fyrir öruggt og viðunandi húsnæði er þó enn til staðar, og mikilvægt er að sveitarfélög leiti leiða til að bregðast við henni. Of margir búa við þröngan kost í óleyfis húsnæði sem uppfyllir ekki kröfur um öryggi og aðbúnað. Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Samfylkingar telur mikilvægt að sveitarfélög leiti allra leiða til þess að leysa úr þessum vanda.
Valdimar Víðissson kemur að svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Framsóknar fagna þeirri niðurstöðu að fallið verði frá fyrirhugaðri uppbyggingu tímabundinnar íbúðabyggðar við Krýsuvíkurveg og Hvaleyrarvatnsveg.
Upphaflegur stuðningur fulltrúa Framsóknar í bæjarráði við verkefnið byggði meðal annars á sjónarmiðum um öruggt og mannsæmandi húsnæði fyrir starfsfólk og mögulegum fjárhagslegum ávinningi fyrir Hafnarfjarðarbæ. Þegar umfang verkefnisins varð betur ljóst og fram komu málefnalegar áhyggjur íbúa af staðsetningu, áhrifum á nærumhverfið og skorti á samráði var hins vegar fullt tilefni til að endurmeta afstöðuna. Raunverulegt íbúalýðræði felst í því að hlusta á sjónarmið íbúa og tryggja að þeir hafi áhrif á ákvarðanir sem varða þeirra nærumhverfi. Það hefur þetta mál sýnt með skýrum hætti.
Fulltrúar Framsóknar gera jafnframt verulegar athugasemdir við málsmeðferð meirihlutans. Endurteknar og fyrirvaralausar breytingar á fyrirhugaðri afgreiðslu málsins, skortur á upplýsingagjöf og sú staðreynd að fulltrúar minnihlutans fréttu af breyttri stöðu málsins í fjölmiðlum skömmu eftir fund forsetanefndar eru óásættanleg vinnubrögð. Slík málsmeðferð ber merki um ómarkviss vinnubrögð og samskiptaleysi og er ekki til þess fallin að skapa traust á stjórnsýslu bæjarins. Góð niðurstaða afsakar ekki slæma málsmeðferð.
Fulltrúar Framsóknar þakka íbúum fyrir virka þátttöku, málefnalega umræðu og mikilvægt framlag til málsins. Við fögnum því að sjónarmið þeirra hafi haft raunveruleg áhrif á niðurstöðuna. Það er lýðræðið í verki.
Einar Geir Þorsteinsson kemur að svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Miðflokksins fagnar því að bæjarstjórn hafi fallið frá samkomulaginu. Miðflokkurinn stóð einn gegn samkomulaginu í bæjarráði 17. september og hefur síðan þá fylgt þeirri afstöðu eftir, meðal annars með þeirri tillögu sem lögð var fram á þessum fundi um að hafna staðfestingu samkomulagsins. Niðurstaðan er í samræmi við þá tillögu. Íbúum Hafnarfjarðar er hrósað fyrir láta málið sig varða, sem og meirihlutanum fyrir að taka undir með Miðflokknum á endanum.
| | Samkomulag ásamt fylgiskjölum.pdf | | |
|
| 9. 2602450 - Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2027 og 2028-2030. | | Til umræðu | Þórður Þórarinsson bæjarstjóri tekur til máls. Einnig Valdimar Víðisson og Árni Rúnar Þorvaldsson.
Orri Björnsson tekur til máls.
Hildur Rós Guðbjargardóttir kemur að svohljóðandi bókun:
Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Samfylkingar og Viðreisnar bókar: Skoðun á ársreikningi 2025 og árshlutareikningi fyrir fyrri helming þessa árs sýnir fram á verulegar áskoranir í rekstri Hafnarfjarðarbæjar. Verkefnið er að gera rekstur bæjarins sjálfbæran og það er meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Samfylkingar staðráðinn í að gera. Árið 2025 var A hluti Hafnarfjarðarbæjar rekinn með 1.165 m.kr. halla en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir 107 m.kr. afgangi. Á fyrri helmingi þessa árs var rekstrarniðurstaðan A hluta neikvæð um 2,360 m.kr. en áætlun gerði ráð fyrir 435 m.kr. afgangi. Frávikið er um 2,8 milljarðar króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Stærsta frávikið er í tekjum af byggingarréttargjöldum, sem voru rúmum 1,5 milljörðum króna undir áætlun. Háir vextir, viðvarandi verðbólga og hægari uppbygging hafa breytt forsendum fjárhagsáætlunarinnar verulega. Kostnaður hefur jafnframt farið fram úr áætlun. Sem dæmi má nefna að vistgjöld voru 480 milljónum króna yfir áætlun og aðkeypt kennslu- og sérkennsluþjónusta var einnig 233 milljónum yfir áætlun og launakostnaður fór einnig fram úr áætlun. Veltufé frá rekstri í A-hluta nam 58 m.kr. í lok júní sem er 344 m.kr. undir áætlun en það er mikilvægur mælikvarði um getu bæjarins til að standa undir afborgunum lána og fjárfestingu. Veltufé frá rekstri hefur verið undir 4% síðastliðin fimm ár og verið 1,6% að meðaltali. Á sama tíma hefur fjárfesting farið úr 6-7% af tekjum í 17%, sem hefur að mestu verið fjármögnuð með lántöku og lóðasölu. Skuldaviðmið hefur einnig farið úr 84% í 104% á tveimur árum. Árið 2025 námu afborganir langtímalána um 1,9 ma.kr. eða um 4% af tekjum á sama tíma og veltufé frá rekstri var 1,4% af tekjum. Það þýðir að ekki aðeins fjárfesting heldur einnig um tveir þriðju hlutar afborgana voru því fjármagnaðir með nýjum lánum, lóðatekjum og lækkun handbærs fjár. Þetta er skýrt dæmi um þau verkefni sem bæjarstjórn Hafnarfjarðar þarf að takast á við. Samfara þessu hefur rekstrarumhverfi sveitarfélaga þyngst undanfarin ár með yfirtöku útgjaldafrekra málaflokka og rekstur þeirra hefur verið þyngri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Fjármagnsliðir eru einnig þungir eins og hjá öðrum sveitarfélögum þegar verðbólga er þrálát og vaxtastig hátt. Mikilvægt er fyrir rekstur sveitarfélaga og þjóðfélagið allt að árangur náist í þeirri baráttu sem allra fyrst. Í því augnamiði er mikilvægt að kjarasamningar héldu, að ríkisstjórnin stefnir að hallalausum fjárlögum og að sveitarfélögin hafa samþykkt að almennar gjaldskrárhækkanir verði ekki umfram 2,5% til þess að styðja við verðstöðugleika í landinu. Þessi staða og þróun mála kallar á ábyrgð, aðhald og skýra forgangsröðun. Fjárhagsáætlun ársins 2027 þarf að byggja á raunhæfum forsendum, ekki óvissum framtíðartekjum eða von um hraðar vaxtalækkanir. Greina þarf kostnað, einfalda stjórnsýslu og nýta fjármuni betur, um leið og grunnþjónusta bæjarins er tryggð. Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Samfylkingar hefur þegar hafið markvisst starf til þess að bregðast við þessari stöðu og við væntum góðs árangurs af þeim aðgerðum. Strax var brugðist við breyttum og versnandi horfum snemmsumars með því að ráðast í stjórnsýslu- og fjármálaúttektir á rekstri bæjarins ásamt greiningarvinnu stjórnenda og starfsfólks bæjarins. Niðurstöður þeirrar vinnu munu liggja fyrir á næstunni og verða mikilvægt innlegg í ákvarðanir um nauðsynlegt aðhald, bætta nýtingu fjármuna og traustan rekstur til framtíðar. Aðgerðir þurfa að vera markvissar og stuðla að traustari og sjálfbærari rekstri til framtíðar. Það er sameiginleg ábyrgð bæjarstjórnar allrar að bæta og efla rekstur bæjarins. Það verður ekki létt verk og krefst þess að við séum tilbúin að taka erfiðar ákvarðanir þar sem markmiðið er skýrt: Að ná tökum á rekstrinum, standa vörð um grunnþjónustuna og tryggja fjárhagslegt jafnvægi Hafnarfjarðar til framtíðar.
Einar Geir Þorsteinsson kemur að asvohljóðandi bókun:
Bærinn verður að sníða sér stakk eftir vexti og draga úr útgjöldum. Miðflokkurinn mun við vinnu við fjárhagsáætlun leggja fram tillögur um niðurskurð, hagræðingu í stjórnsýslu og að verkefni utan lögbundinnar grunnþjónustu verði endurmetin. Ekki kemur til greina af hálfu Miðflokksins að mæta rekstrarvandanum með auknum álögum á bæjarbúa.
| | |
|
| |
| 10. 2601097 - Fundargerðir 2026, til kynningar í bæjarstjórn | Fundargerð bæjarráðs frá 25.október sl. a. Fundargerð hafnarstjórnar frá 30.september sl. b. Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 28.september sl. c. Fundargerðir innkauparáðs frá 27.ágúst, 24.september og 8.október sl. d. Fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 7.október sl. e. Fundargerðir stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 18.september og 2.október sl. f. Fundargerð 57.eigendafundar Sorpu bs. frá 5. október sl. Fundargerð fræðsluráðs frá 14.október sl. a. Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 22.september sl. Fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 14.október sl. Fundargerð fjölskylduráðs frá 13.október sl. Fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 14.október sl. Fundargerð forsetanefndar frá 19.október sl. | Kristín Thoroddsen tekur til máls undir liðum 5 og 8 í fundargerð fræðsluráðs frá 14. október sl.
Kolbrún Magnúsdóttir tekur einnig til máls undir liðum 2 og 5 í fundargerð fræðsluráðs frá 14. október sl.
Hildur Rós Guðbjargardóttir tekur til máls undir fundargerð bæjarráðs þar sem fjallað var um erindi foreldra um íþróttaaðatöðu í Öldutúnssskóla.
Einar Geir Þorsteinsson tekur til máls undir lið 5 í fundargerð fræðsluráðs frá 14. október sl. Árni Rúnar Þorvaldsson kemur að andsvari. Einar Geir svarar andsvari. Árni Rúnar kemur að stuttri athugasemd. Einar Geir kemur einnig að stuttri athugasemd. Hildur Rós kemur að andsvari. Einar Geir svarar andsvari. Hildur Rós kemur að stuttri athugasemd. Einar Geir kemur einnig að stuttri athugasemd. Kristín kemur einnig að andsvari við ræðu Einars Geirs sem svarar andsvari. Kristín kemur að stuttri athugasemd. | | |
|