Til bakaPrenta
Bæjarstjórn - 1971

Haldinn í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarborg,
25.02.2026 og hófst hann kl. 14:00
Fundinn sátu: Valdimar Víðisson bæjarstjóri,
Kristinn Andersen forseti,
Orri Björnsson aðalmaður,
Kristín María Thoroddsen aðalmaður,
Margrét Vala Marteinsdóttir aðalmaður,
Guðmundur Árni Stefánsson aðalmaður,
Árni Rúnar Þorvaldsson aðalmaður,
Hildur Rós Guðbjargardóttir aðalmaður,
Jón Ingi Hákonarson aðalmaður,
Stefán Már Gunnlaugsson aðalmaður,
Guðbjörg Oddný Jónasdóttir aðalmaður,
Fundargerð ritaði: Ívar Bragason, Ritari bæjarstjórnar og bæjarlögmaður


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2602303 - Axlarás 7 umsókn um lóð
19.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 19.febrúar sl.
Lögð fram umsókn Snorra Wium um lóðina nr. 7 við Axlarás.

Dregið úr umsóknum og dregin er út umsókn Snorra Wium. Til vara er dregin út umsókn Pálma Péturssonar. Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að lóðinni verði úthlutað til Snorra Wium.
Samþykkt samhljóða.
2. 2601111 - Vitinn við Vitastíg - lóð og fasteign
3.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 19.febrúar sl.

Lögð fram bókun Hafnarstjórnar þar sem óskað er eftir því við skipulags- og byggingaráð að unnið verði deiliskipulag fyrir lóð gamla innsiglingarvitans neðan við Vitastíg.Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi miðbæjar hraun vestur vegna stofnunar lóðar, Vitastígur 12a.

Skipulags- og byggingarráð samþykkir að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Miðbæjar hraun vesturs og vísar erindinu til staðfestingar í bæjarstjórn.
Samþykkt samhljóða.
DSK breyting_Vitinn við Vitastig.pdf
Vitinn teikning_VSB.pdf
Vitinn teikning VSB.pdf
Hafnarstjórn - 1698 (4.2.2026) - Vitinn við Vitastíg - lóð og fasteign.pdf
3. 2602248 - Miðlægt bráða- og viðbragðsteymi vegna ofbeldis meðal barna
Fjölskylduráð og fræðsluráð hafa fjallað um og samþykkt meðfylgjandi samning og verklagsreglur bráða og viðbragðsteymis vegna ofbeldis meðal barna.

Lagt fram til samþykktar.
Kristín Thoroddsen tekur til máls.

Samþykkt samhljóða.
3. Samstarfsyfirlýsing vegna þátttöku BOFS og Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu_.pdf
4. Styrktarsamningur mennta- og barnamálaráðuneytisins og Reykjavíkurborgar_.pdf
5. Umsókn um styrk til sveitarfélaga í þágu farsældar barna_.pdf
2. Drög að verklagsreglum bráða- og viðbragðsteymis og stýrihóps (2).pdf
1. Drög að samstarfssamningi sveitarfélaganna um miðlægt bráða- og viðbragðsteymi_.pdf
Fylgibréf HFJ - viðbragðsteymi vegna ofbeldis meðal barna.pdf
4. 2601425 - Frítt í strætó fyrir 12-17 ára ungmenni
Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir málinu á dagskrá. Umræður.

Úr fundargerð bæjarráðs frá 19. febrúar sl.

Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja eftirfarandi fram:
Á síðasta fundi bæjarstjórnar samþykkti meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks með stuðningi bæjarfulltrúa Viðreisnar að vísa tillögu Samfylkingarinnar um að frítt yrði í strætó fyrir 12-17 ára til umfjöllunar í stjórn Strætó bs. og hinu nýstofnaða félagi um almenningssamgöngur, auk þess að vísa henni til umfjöllunar hjá SSH. Í umræðum um málið á síðasta fundi bæjarstjórnar um tillöguna lýsti meirihlutinn yfir stuðningi við þá meginhugmynd að hafnfirsk ungmenni til 18 ára aldurs eigi kost á gjaldfrjálsri notkun Strætó. Þar var um ánægjulega stefnubreytingu að ræða hjá meirihlutanum því hann hefur fram til þessa fellt þessa tillögu Samfylkingarinnar við hverja afgreiðslu fjárhagsáætlunar á kjörtímabilinu. Í ljósi orða fulltrúa meirihlutans á síðasta bæjarstjórnarfundi bindum við því vonir við að meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks muni nú loksins undir lok kjörtímabilsins sjá ljósið og samþykkja tillögu Samfylkingarinnar um þetta hagsmunamál 12-17 ára ungmenna í bænum og fjölskyldna þeirra. Það er orðið löngu tímabært. Tæknileg framkvæmd málsins er vel gerleg og ekki eftir neinu að bíða að samþykkja þessa stefnumörkun í bæjarstjórn til hagsbóta fyrir ungmenni í Hafnarfirði og barnafjölskyldur.

Árni Rúnar Þorvaldsson tekur til máls.

Kristín Thoroddsen kemur til andsvars. Árni Rúnar svarar andsvari.

Guðmundur Árni Stefánsson tekur til máls. Kristín kemur til andsvars. Guðmundur Árni svarar andsvari.

Stefán Már Gunlaugsson tekur til máls.

Árni Rúnar tekur til máls öðru sinni. Valdimar Víðisson kemur að andsvari. Árni Rúnar svarar andsvari. Valdimar kemur að andsvari öðru sinni sem Árni Rúnar svarar.

Árni Rúnar kemur að svohljóðandi bókun:

Fulltrúar Samfylkingarinnar árétta bókun sína á síðasta fundi bæjarráðs en á þeim fundi kom fram að engar hindranir eru í vegi fyrir því að Hafnarfjörður taka þetta skref til að veita ungmennum bæjarins til 18 ára aldurs endurgjaldslausan aðgang að almenningssamgöngum. Hér er einfaldlega á ferðinni spurning um pólitískan vilja og forgangsröðun. Samfylkingin vill efla almenningssamgöngur og með aðkomu ríkisins að rekstri Strætó aukast enn frekar möguleikar í þeim efnum. Sérrými fyrir strætisvagna í tengslum við uppbyggingu Borgarlínu er enn frekari hvati til þess að taka markviss skref í þessa veru. Meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks hefur hins vegar stundað tafapólitík í málinu, þar sem fulltrúar meirihlutans segjast efnislega sammála tillögunni en leita síðan logandi ljósi að afsökunum og meintum vandamálum til að drepa málinu á dreif og tejfa framgang þess. Við afgreiðslu hverrar fjárhagsáætlunar á kjörtímabilinu hefur Samfylkingin lagt fram þessa tillögu en meirihlutinn jafnharðan fellt hana. Einnig hafa ungmennaráð og foreldraráð Hafnarfjarðar lagt fram sambærilegar tillögur án þess að nokkuð hafi gerst í málinu á kjörtímabilinu. Það hafa því verið næg tækifæri fyrir meirihlutann til þess að vinna að þessu mikilvæga framfaramáli en hann hefur hins vegar setið með hendur í skauti. Samfylkingin mun halda málinu til streitu til hagsbóta fyrir hafnfirsk ungmenni og barnafjölskyldur í bænum. Ef núverandi meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks þvælist fyrir málinu á þessum síðustu vikum kjörtímabilsins þá mun Samfylkingin einfaldlega koma því í höfn í nýjum meirihluta strax að loknum kosningum í vor.

Kristín Thoroddsen kemur að svohljóðandi bókun:

Sjálfstæðisflokkur og Framsókn ítreka bókun sína frá síðasta fundi bæjarstjórnar þar sem lögð var áhersla á að málið verði skoðað heildstætt með tilliti til fjárhagslegra áhrifa og samræmingar á höfuðborgarsvæðinu.
Ákvörðun um gjaldfrjálsar almenningssamgöngur fyrir ungmenni þarf að byggjast á traustum gögnum og vera tekin í samráði við viðeigandi aðila. Málið hefur verið rætt í stjórn Strætó en beðið er frekari gagna. Þá er mikilvægt að umræðu innan hins nýstofnaða félags um almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu og hjá SSH ljúki áður en endanleg afstaða er tekin.
Gögn sem lögð voru fram í bæjarráði um fjárhagsleg áhrif á Hafnarfjörð sýna að greina þarf betur mögulega ásókn í gjaldfrjáls kort, sérstaklega ef eitt sveitarfélag ákveður að fara sérleið í málinu.

Frítt í strætó, punktar.pdf
5. 2206161 - Íbúðir fyrir eldra fólk
Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir málinu á dagskrá. Tillaga lögð fram.
Guðmundur Árni Stefánsson tekur til máls og leggur fram svohljóðandi tillögu:

Bæjarstjórn samþykkir að hefja undirbúning vegna uppbyggingar á lífsgæðaíbúðum fyrir eldri borgara á Sólvangssvæðinu á grundvelli tillagna starfshóps um uppbyggingu á íbúðum fyrir eldri borgara í Hafnarfirði. Umhverfis- og skipulagssviði er falið að að undirbúa nauðsynlegar breytingar á skipulagi svæðisins og fjölskyldusviði samhliða gert að móta fyrirkomulag þjónustu og halda utan um verkefnið að öðru leyti, en hafa samráð við Öldungaráð og Félag eldri borgara í Hafnarfirði um málið. Undirbúningi verði lokið fyrir 1. maí næstkomandi og verði það síðan verkefni bæjarráðs að koma verkefninu af stað, þannig að úthlutun lóðar og síðan framkvæmdir megi hefjast síðar á yfirstandandi ári.

Greinargerð:
Á fundi bæjarstjórnar í desember 2023 lagði Samfylkingin til að settur yrði á fót starfshópur um uppbyggingu á íbúðum fyrir eldra fólk í Hafnarfirði. Tillögunni var vísað til bæjarráðs og eftir nokkra umræðu var tillagan loksins samþykkt í bæjarráði tæpu ári síðar, eða í október 2024 og bæjarráð skipaði starfshópinn í sama mánuði og setti honum erindisbréf. Það kvað á um að meginverkefni hópsins væri að móta tillögur varðandi uppbyggingu á íbúðum fyrir eldra fólk í Hafnarfirði, að leita leiða til að gera eldra fólki kleift að búa lengur í sjálfstæðri búsetu og skoða bestu leiðir við uppbyggingu húsnæði og þjónustu fyrir eldra fólk við skipulagningu nýrra byggingarsvæða. Hópurinn fjallaði talsvert um lífsgæðaíbúðir fyrir eldra fólk og í stuttu máli má segja að um sé að ræða íbúðir sem samþætta öryggi, aðgengi, félagslega þátttöku og sjálfstæði og er ætlað að stuðla að sem bestu lífsgæðum á efri árum fólks.

Hópurinn skoðaði þörfina fyrir uppbyggingu á lífsgæðaíbúðum fyrir eldra fólk í Hafnarfirði. Í þeirri greiningu var litið til þess hvaða uppbygging hefur átt sér stað í Hafnarfirði á íbúðum sem byggðar voru sérstaklega með þarfir eldra fólks í huga. Í skýrslu starfshópsins kemur fram að árið 1989 voru byggðar 59 íbúðir á Hjallabraut 33 en íbúar bæjarins voru þá rétt rúmlega 14.500 talsins og 67 íbúðir voru byggðar á Sólvangsvegi 1-3 árið 1992 en íbúar bæjarins þá voru rétt rúmlega 16.000. í dag eru íbúar Hafnarfjarðar rúmlega 30 þúsund og jafnframt liggur fyrir að á næstu árum muni eldri borgurum fjölga. Það er því mat starfshópsins að uppbygging lífsgæðaíbúða sé brýnt hagsmunamál fyrir eldri íbúa í Hafnarfirði og bæjarfélagið í heild til framtíðar.

Í skýrslu sinni leggur starfshópurinn til uppbygging lífsgæðaíbúða á þremur reitum verði sett í forgang til þess að framkvæmdir geti hafist sem fyrst. Sá reitur sem er kallaður byggingarreitur 1 í skýrslunni er Álfaskeið 62 á Sólvangsreitnum. Þar er gott aðgengi að þjónustu í næsta nágrenni og stutt er í miðbæinn, græn svæði og almenningssamgöngur. Að mati starfshópsins býður þessi reitur upp á góða möguleika fyrir að minnsta kosti 48 lífsgæðaíbúðir fyrir eldri borgara í Hafnarfirði.

Það er því orðið mjög brýnt mál að hefja uppbyggingu á íbúðum sem sérstaklega eru hannaðar með þarfir eldra fólks í huga. Það var síðast gert í Hafnarfirði fyrir rúmum þrjátíu árum þegar íbúar í Hafnarfirði voru rétt rúmlega 16 þúsund. Af þeim sökum leggur Samfylkingin það til að hafinn verði undirbúningur að uppbyggingu íbúða fyrir eldra fólk í samræmi við tillögur fyrrnefnds starfshóps með það að markmiði að framkvæmdir geti hafist á árinu.

Valdimar Víðisson kemur til andsvars. Guðmundur Árni svarar andsvari. Valdimar kemur til andsvars öðru sinni sem Guðmundur Árni svarar.

Margrét Vala Marteinsdóttir tekur til máls og leggur fram svohljðandi tillögu:

Bæjarstjórn samþykkir að fela bæjarráði að vinna að gerð 10 ára uppbyggingaráætlunar um lífsgæðaíbúðir fyrir eldra fólk á grundvelli niðurstaðna starfshóps um uppbyggingu íbúða fyrir eldra fólk. Áætlunin taki til greiningar á raunþörf og uppsafnaðri þörf, forgangsröðunar byggingarreita,samspils við aðalskipulag og húsnæðisáætlun bæjarins og mögulegra samstarfs- og fjármögnunarleiða.

Guðmundur Árni kemur til andsvars. Stefán Már Gunnlaugsson kmeur einnig til andsvars. Margrét Vala svarar andsvari. Stefán Már kemur að andsvari öðru sinni.

Orri Björnsson tekur til máls. Guðmundur Árni kemur til andsvars. Orri svarar andsvari. Guðmundur Árni kemur til andsvars öðru sinni sem Orri svarar. Stefán Már kemur að andsvari.

Árni Rúnar Þorvaldsson tekur til máls. Orri kemur að andsvari. Árni Rúnar svarar andsvari.

Guðmundur Árni tekur til máls öðru sinni.

Stefán Már tekur til máls.

Forseti ber næst framkomna tillögu frá fulltrúum Samfylkingar upp til atkvæða. Er tillagan felld þar sem sex fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar greiða atkvæði gegn tillögunni. Fulltrúar Samfylkingar greiða atkvæði með tillögunni. Fulltrúi Viðreisnar situr hjá.

Forseti ber næst upp framkomna tillögu Margrétar Völu og er hún samþykkt þar sem sex Sjálfstæðisflokks og Framsóknar greiða atkvæði með tillögunni. Fulltrúar Samfylkingar og Viðreisn sitja hjá.

Árni Rúnar kemur að svohljóðandi bókun:

Fulltrúar Samfylkingarinnar furða sig á því að meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks skuli fella fyrirliggjandi tillögu Samfylkingarinnar um að hafist verði handa við uppbyggingu nýrra lífsgæðaíbúða á Sólvangssvæðinu. Meirihlutinn er á slíkum flótta undan málinu og sínum eigin orðum að hann leggur fram sjálfstæða tillögu á fundinum um gerð 10 ára upbbyggingaráætlunar um lífsgæðaíbúðir fyrir eldra fólk. Allt er gert til þess að komast hjá því að ganga í verkin.
Þjónustuíbúðir fyrir eldra fólk hafa ekki verið byggðar í Hafnarfirði í rúm 30 ár og þá undir forystu jafnaðarmanna. Á fyrsta fundi bæjarstjórnar á þessu kjörtímabili þá lagði meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks að hraða vinnu við uppbyggingu íbúða fyrir eldra fólk og hjúkrunarheimila í ólíkum hverfum bæjarins, t.a.m. á Sólvangssvæðinu. Skemmst er frá því að segja að ekkert gerðist í málinu fyrr en Samfylkingin lagði fram tillögu um að setja á fót starfshóp til þess að rýna þessi mál á fundi bæjarstjórnar í desember 2023. Henni var vísað til bæjarráðs og var samþykkt í bæjarráði tæpu ári síðar. Starfshópurinn var skipaður og skilaði af sér mjög gagnlegum tillögum í þessu mikilvæga máli. Brýnt er að vinna við útfærslu á tillögum starfshópsins hefjist sem fyrst svo framkvæmdir vegna lífsgæðaíbúða fyrir eldra fólk geti hafist á árinu. Í ljósi orða og tillögu meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í upphafi kjörtímabilsins kemur afstaða fulltrúa meirihlutans verulega á óvart og undirstrikar áhugaleysi hans á málinu og sýnir að fyrirætlanir hans í byrjun kjörtímabilsins voru í besta falli sýndarmennska. Nú á síðustu metrum kjörtímabilsins hafnar meirihlutinn tillögu sem byggir á tillögu fulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins í sérstökum starfshópi um málið. Og fellir tillöguna og í stað hennar verði bæjarráði falið að gera 10 ára áætlun um málið! Uppgjöfin er algjör hjá þessum sitjandi meirihluta! Samfylkingin mun halda málinu til streitu og ef núverandi meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks heykist áfram á því að vinna að þessari mikilvægu uppbyggingu þá mun Samfylkingin einfaldlega tryggja það að byggðar verði lífsgæðaíbúðir í nýjum meirihluta á næsta kjörtímabili.

Margrét Vala kemur að svohljóðandi bókun:

Meirihlutinn leggur áherslu á að uppbygging lífsgæðaíbúða fyrir eldra fólk er verkefni sem krefst vandaðrar greiningar og skýrs skipulags. Með tillögu meirihlutans er verið að festa niðurstöður starfshóps um uppbyggingu íbúða fyrir eldra fólk í formlegan farveg. Markmiðið er að tryggja að uppbyggingin verði raunhæf, tímasett og samræmd heildarstefnu bæjarins í skipulags- og húsnæðismálum.















6. 23031026 - Skipulagsmál - nýbyggingarsvæði
Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir málinu á dagskrá. Tillaga lögð fram
Stefán Már Gunnlaugsson tekur til máls og leggur fram svohljóðandi tillögu:

Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi tillögu:
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að fela fulltrúum Hafnarfjarðarbæjar í svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins að leggja fram hið allra fyrsta tillögu um útvíkkun vaxtamarka höfuðborgarsvæðisins. Jafnhliða verði umhverfis- og skipulagssviði falið að leggja fram drög að skipulagi hins nýja byggingarsvæðis. Þar verði gert ráð fyrir fjölbreyttu framboði lóða sem hentar m.a. fyrir hagkvæmt húsnæði, óhagnaðardrifin leigufélög eins og stúdentaíbúðir og félög á borð við Bjarg, Búseta og Búmenn oþh. Jafnframt er sviðinu falið að skoða samstarf við ríkið um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis með möguleika á stofnun innviðafélags sambærilegt húsnæðisátaki ríkistjórnarinnar og Reykjavíkurborgar í Úlfarsárdal. Innviðafélag sem fjármagnar og hefur umsjón með uppbyggingu ákveðins fjölda íbúða og þar með talið uppbyggingu innviða eins og gatnagerð, leik- og grunnskóla ofl.

Greinargerð:
Nú eru liðin meira en tvö ár frá því tillaga Samfylkingarinnar um útvíkkun vaxtamarka höfuðborgarsvæðisins var lögð fram í bæjarráði og vísað til skipulags- og byggingaráðs. Í desember sama ár var hún kynnt í svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins. Tillaga Samfylkingarinnar sem lögð var fram í bæjarstjórn í september 2025 um sama efni var svo samþykkt í skipulags- og byggingaráði 30. október 2025 og samkvæmt henni átti tillaga um útvíkkun vaxtamarka höfuðborgarsvæðisins að liggja fyrir í svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins í janúar síðastliðnum. Ekkert bólar á slíkri tillögu.

Samkvæmt áætlunum hefst skipulagsvinna vegna íbúðasvæðis í Vatnshlíð á þessu ári og eftir það eru ekki fleiri ný íbúðasvæði innan skipulags Hafnarfjarðar. Hafnarfjörður á þó land sem hentar vel fyrir nýbyggingarsvæði og mikilvægt að bæjarfélagið hafi á að skipa fjölbreyttum kostum til húsbygginga bæði á nýjum svæðum og á þéttingarreitum sbr. endurskoðað aðalskipulag sem nú er í auglýsingu.

Í tillögunni er einnig lagt til að skoðað verði hvort flötur sé á samstarfi við ríkið um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis með möguleika á stofnun innviðafélags. Nýlega var kynnt samstarf ríkis og borgar um uppbyggingu í Úlfarsárdal með stofnun innviðafélags. Innviðauppbygging í nýjum hverfum hefur reynst sveitarfélögum erfið hindrun þegar kemur að uppbyggingu íbúðarhúsnæðis á nýjum svæðum, en nú kemur ríkið að því og því nauðsynlegt að þessi kostur verði skoðaður hjá Hafnarfjarðarbæ.

Gera má ráð fyrir að breytingar eins og útvíkkun svæðisskipulags geti tekið nokkurn tíma í vinnslu. Þess vegna er nauðsynlegt að hefjast handa sem fyrst við slíka áætlanagerð og undirbúa samhliða uppbyggingu á svæðinu svo framkvæmdir geti hafist sem fyrst.

Orri Björnsson kemur að andsvari. Stefán Már svarar andsvari.

Guðmundur Árni Stefánsson tekur til máls. Orri kemur að andsvari. Guðmundur Árni svarar andsvari. Orri kemur andsvari öðru sinni sem Guðmundur Árni svarar. Orri kemur að stuttri athugasemd.

Stefán Már tekur til máls öðru sinni. Valdimar Víðisson kemur að andsvari. Stefán Már svarar andsvari. Valdimar kemur að andsvari öðru sinni. Stefán Már svarar andsvari. Valdimar kemur að stuttri athugasemd það gerir einnig Stefán Már.

Guðmundur Árni tekur til máls öðru sinni.

Forseti ber næst framkomna tillögu frá fulltrúum Samfylkingar upp til atkvæða. Er tillagan felld þar sem sex fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar ásamt fulltrúa Viðreisnar greiða atkvæði gegn tillögunni. Fulltrúar Samfylkingar greiða atkvæði með tillögunni.

Stefán Már kemur að svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Samfylkingarinnar furða sig á því að fulltrúar Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks treysti sér ekki til að samþykkja þessa tillögu jafnaðarmanna. Tillagan snýr að því að fulltrúum bæjarins í svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins er falið að leggja fram hið fyrsta tillögu um útvíkkun vaxtamarka höfuðborgarsvæðisins. Jafnaðarfólk hefur reglulega hreyft við þessu máli bæði í bæjarstjórn og skipulags- og byggingaráði og fulltrúar meirihlutans jafnan tekið undir mikilvægi málsins en þrátt fyrir það hefur lítið gerst í málinu á kjörtímabilinu. Fyrirliggjandi tillaga snýr einnig að því að umhverfis- og skipulagssviði verði falið að leggja fram drög að skipulagi hinna nýju byggingarsvæða þar sem gert verði ráð fyrir fjölbreyttu framboði lóða m.a. fyrir hagkvæmt húsnæði, óhagnaðardrifin leigufélög eins og stúdentaíbúðir og félög á borð við Bjarg, Búseta og Búmenn svo dæmi séu tekin. Samfylkingin leggur áherslu á að unnið sé að undirbúningi nýrra byggingarsvæða og að framboði fjölbreytts húsnæðis í bænum. Enn á ný staðfestir meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks áhugaleysi sitt hvað þessi mál varðar. Hann skilar einu sinni enn auðu hvað varðar samstarf við óhagnaðardrifin leigufélög, uppbyggingu íbúða fyrir eldra fólk, námsmenn og þá sem eiga í erfiðleikum með að komast inn á húsnæðismarkaðinn. Það sýnir svo ekki verður um villst að það er stefna Sjálfstæðisflokksins sem stýrir málum í húsnæðisuppbyggingu Hafnarfjarðar þar sem markaðnum er öllu æðra en félagshyggjuáherslur Framsóknarflokksins eru hverfandi. Hér eru lögð til fyrstu skref að uppbyggingu, en um leið verður þess gætt að fyllst öryggis verði gætt í nútíð og framtíð, þegar kemur að áhættumat hraunflæðis á svæði Hafnarfjarðar sem liggur vonandi fyrir síðar í vor. Tillagan gerir ráð fyrir því mati, en samt fellir meirihlutinn tillöguna sem miðar að því að vinna í haginn fyrir Hafnfirðinga ekki síst varðandi ódýrar íbúðir í bænum.

7. 2508284 - Reykjavíkurvegur, gangandi vegfarendur, umferðaröryggi
Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir málinu á dagskrá. Tillaga lögð fram.
Hildur Rós Guðbjargardóttir tekur til másl og leggur fram svohljóðandi tillögu:

Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi tillögu:
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að sveitarfélagið hefji viðræður við Betri samgöngur og Vegagerðina um umferðarlausnir sem tryggja betri samgöngur og umferðaröryggi fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur yfir Reykjavíkurveg til framtíðar.

Greinargerð:
Mikilvægt er að tryggja öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda yfir Reykjavíkurveg til framtíðar. Á næstu árum byggist upp íbúðahverfi í Hraun vestur hverfinu þar sem stefnt er að blandaðri byggð. Umferð mun því aukast verulega á svæðinu og börn á grunnskólaaldri koma til með að þurfa að þvera veginn í meira mæli en nú til þess að sækja skóla, íþróttir og tómstundir.

Í skipulagi er gert ráð fyrir undirgöngum á tveimur stöðum og aðrir fýsilegir samgöngukostir eins og mislægar gönguþveranir verið lagðir til. Nú er mikilvægt að hefja frekari vinnu að framtíðarlausn á svæðinu og tryggja að mikilvægir og nauðsynlegir samgönguinnviðir séu tilbúnir þegar hverfið rís.

Hins vegar er ekki gert ráð fyrir þessum endurbótum í áformum Betri samgangna og Vegagerðarinnar í tengslum við Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og væntanlegar framkvæmd við aukaakbrautir fyrir almenningsvagna vegna borgarlínuverkefnisins. Þess vegna er nauðsynlegt að skýr skilaboð komi frá Hafnarfirði um vilja bæjarstjórnar Hafnarfjarðar í umboði bæjarbúa um nauðsynlegar aðgerðir sem tryggi öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda nú þegar framkvæmdir eru framundan. Hafnarfjörður verður og á að tala skýrt í þessum efnum.

Guðbjörg Oddný Jónasdóttir tekur til máls og leggur fram svohljóðandi tillögu:

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar fagnar þeirri ítarlegu greiningarvinnu sem umhverfis- og framkvæmdaráð hefur látið vinna á vegum EFLU varðandi umferðaröryggi og brúarvalkosti yfir Reykjavíkurveg.
Með fyrirliggjandi gögn til hliðsjónar felur bæjarstjórn bæjarstjóra að hefja viðræður við Betri samgöngur og Vegagerðina, til að tryggja að hönnun og fjármögnun á mislægum þverunum verði fléttað inn í áform um Borgarlínu og uppbyggingu Hraun Vestur.

Málinu er jafnframt vísað aftur til umhverfis- og framkvæmdaráðs til frekari umfjöllunar og úrvinnslu.


Guðmundur Árni Stefánsson kemur að andsvari. Hildur Rós kemur að andsvari. Guðbjörg Oddný svarar andsvari. Hildur Rós kemur að andsvari öðru sinni.

Guðmundur Árni tekur til máls. Guðbjörg Oddný kemur til andsvars. Guðmundur Árni svarar andsvari.

Fundarhlé kl. 17:13. Fundi framhaldið kl. 17:19.

Hildur Rós tekur til máls og leggur fram svohljóðandi sameiginlega tillögu bæjarstjórnar:

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar vísar til þeirrar ítarlegu greiningarvinnu sem umhverfis- og framkvæmdaráð hefur látið vinna á vegum EFLU varðandi umferðaröryggi og brúarvalkosti yfir Reykjavíkurveg.
Með þessi gögn til hliðsjónar felur bæjarstjórn bæjarstjóra að hefja viðræður við Betri samgöngur til að tryggja að hönnun og fjármögnun á samgöngulausnum sem tryggja betri samgöngur og umferðaröryggi fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur yfir Reykjavíkurveg til framtíðar

Er framangreind tillaga samþykkt samhljóða.

Fundargerðir
8. 2601097 - Fundargerðir 2026, til kynningar í bæjarstjórn
Fundargerð fræðsluráðs frá 18.febrúar sl.
Fundargerð fjölskylduráðs frá 17.febrúar sl.
Fundargerð bæjarráðs frá 19.febrúar sl.
a. Fundargerð hafnarstjórnar frá 4.febrúar sl.
b. Fundargerðir heilbrigðisnefndar frá 29.desember og 3. febrúar sl.
c. Fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 11. febrúar sl.
d. Fundargerðir innkauparáðs frá 16.apríl, 13.júní og 17.september ´24. 7. janúar, 18.febrúar, 20. maí, 26. ágúst, 31. október og 3. nóvember sl.
Fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 19.febrúar sl.
Fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 18.febrúar sl.
Fundargerð forsetanefndar frá 23.febrúar sl.
Árni Rúnar Þorvaldsson tekur til máls undir 2. lið í fundargerð fjölskyldurráðs frá 17. febrúar sl. Margrét Vala Marteinsdóttir kemur að andsvari. Árni Rúnar svarar andsvari.

Guðbjörg Oddný Jónasdóttir tekur til máls undir fundargerð menningar - og ferðamálanefndar frá 11. febrúar sl.

Stefán Már Gunnlaugsson tekur til máls 1. lið í fundargerð fjölskylduráðs frá 17. febrúar sl. Margrét Vala kemur að andsvari. Stefán Már svarar andsvari.

Árni Rúnar tekur til máls öðru sinni undir 6. lið í fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 11. febrúar sl. Guðbjörg Oddný kemur til andsvars. Árni Rúnar svarar andsvari.

Guðmundur Árni Stefánsson tekur til máls undir liðum 22 og 23 frá fundi bæjarráðs frá 19. febrúar sl.

Valdimar Víðisson vék af fundi kl. 17:27.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:48 

Til bakaPrenta