| |
| 1. 2605484 - Ráð og nefndir 2026-2030, kosningar | | Kosning varamanns í innkauparáð. | | Óskar Steinn Jónínusson Ómarsson Kirkjuvegi 11B kosinn varamaður. | | |
|
| 2. 2602450 - Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2027 og 2028-2030. | | Lagt fram minnisblað. | | Minnisblað til bæjarráðs varðandi forsendur fjárhagsáætlana sveitarfélaga fyrir árin 2027-2031.pdf | | |
|
| 3. 2011571 - Samþykkt um gatnagerðargjald í Hafnarfjarðarkaupstað | | Tekið fyrir breytingar á gjaldskrá vegna bílakjallara | Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögur að breytingum þar sem gatnagerðargjald vegna bílkjallara er fellt niður að öllu leyti.
Bókun fulltrúa Miðflokksins
Fulltrúi Miðflokksins styður að gatnagerðargjald vegna bílakjallara og sameiginlegra bifreiðageymslna verði fellt niður.
Ef halda á áfram þéttingu byggðar í Hafnarfirði, að minnsta kosti að einhverju marki, er nauðsynlegt að beita úrræðum af þessu tagi. Ekki verður byggt þéttar án þess að jafnframt sé tryggt að fullnægjandi bílastæði fylgi uppbyggingunni. Annars er bílastæðavandanum aðeins velt yfir á nærliggjandi götur og eldri hverfi eða skipulagið byggt á þeirri óskhyggju að íbúar breyti einfaldlega ferðavenjum sínum vegna skorts á bílastæðum.
Bílakjallarar eru kostnaðarsamir í uppbyggingu og því óskynsamlegt að sveitarfélagið leggi sérstök gjöld á mannvirki sem tryggja nauðsynleg bílastæði, bæta nýtingu lóða og skapa aukið rými fyrir græn svæði og sameiginleg útirými. Breytingin er því skynsamlegt skref og í samræmi við þær áherslur sem Miðflokkurinn lagði á í bílastæðamálum fyrir kosningar.
| | Greinargerð með breytingum á samþykkt um gatnagerðargjald_Lagt fyrir í bæjarráði 3 september 2026.pdf | | Samþykkt um gatnagerðargjald_endurskoðun_lagt fyrir í bæjarráði 3 september 2026.pdf | | |
|
| 4. 2604411 - Gullhella 1 og aðliggjandi lóðir, Colas Ísland ehf. | | Lagt fram | | Bæjarstjóra falið að vinna málið áfram. | | |
|
| 5. 2609013 - Gullhella 1, ósk um nýjan lóðarleigusamning | | Lögð fram beiðni um nýjan lóðarleigusamning | | Bæjarstjóra falið að vinna málið áfram. | | |
|
| 6. 2605175 - Dverghella 2, stækkun lóðar | | Lögð fram umsókn um stækkun lóðar. Umsögn umhverfis- og skipulagssviðs liggur fyrir. | Karólína Helga víkur af fundi undir þessu máli.
Bæjarráð samþykkir lóðarstækkun um 5.868,8 m². | | Dverghella 2, umsögn skipulags.pdf | | |
|
| 7. 2607017 - Hverfisgata 37 og Vitastígur 10, stækkun lóða | | Lögð fram beiðni um lóðarstækkun. | | Beiðni hafnað. | | Hverfisgata 37 og Vitastígur 10, umsögn skipulags.pdf | | |
|
| 8. 2605351 - Drangahraun 7, stækkun lóðar | | Lögð fram beiðni um lóðarstækkun | | Beiðni hafnað. | | Drangahraun 7, ósk um lóðarstækkun..pdf | | |
|
| 9. 2603148 - Hryggjarás 23, umsókn um lóð | | Lögð fram umsókn Gísla Más Guðmundssonar um lóðina nr. 23 við Hryggjarás. | | Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar og vísar til bæjarstjórnar til staðfestingar. | | |
|
| 10. 2607073 - Hryggjarás 9, umsókn um lóð | | Lögð fram umsókn Egils Björnssonar um lóðina nr. 9 við Hryggjarás. | | Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar og vísar til bæjarstjórnar til staðfestingar. | | |
|
| 11. 2608410 - Háholt 11, sala eignar 0202 | | Tekið fyrir | | Bæjarráð samþykkir að selja íbúðina og söluverð verði nýtt til kaupa á íbúð. | | |
|
| 12. 2605078 - St. Jósefsspítali, 100 ára, útgáfa bókar | 3.liður úr fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 26.ágúst sl. Björn Pétursson, bæjarminjavörður mætir til fundarins.
Menningar- og ferðamálanefnd tekur jákvætt í erindið og telur mikilvægt að saga St. Jósefsspítala, St. Jósefssystra og starfseminnar sem þar hefur farið fram verði varðveitt og miðlað.
Nefndin leggur til að kannaðir verði tveir möguleikar á útfærslu verkefnisins. Annars vegar að Byggðasafn Hafnarfjarðar gefi út smárit um sögu St. Jósefsspítala í anda fyrri smárita safnsins. Hins vegar, ef stefnt er að umfangsmeiri bókaútgáfu, að Hafnarfjarðarbær styðji við verkefnið og hollvinasamtökin kanni leiðir að útgáfu í samræmi við fyrirkomulag sambærilegra verkefna, svo sem útgáfu sögu í tilefni 100 ára afmæli Hafnarfjarðarhafnar.
Umsögninni er vísað til bæjarráðs. | | Bæjarstjóra falið að vinna málið áfram. | | |
|
| |
| 13. 2608005F - Menningar- og ferðamálanefnd - 477 | | Lögð fram fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 26.ágúst sl. | | |
|
| 14. 2601435 - Stjórn SSH, fundargerðir 2026 | | Lögð fram fundargerð stjórnar SSH frá 17. ágúst sl. | | |
|