Til bakaPrenta
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 102

Haldinn Fundarsalurinn Ásfjall, Norðurhellu 2,
18.03.2026 og hófst hann kl. 10:00
Fundinn sátu: Lilja Grétarsdóttir skipulagsfulltrúi,
Anna Margrét Tómasdóttir arkitekt,
Anne Steinbrenner starfsmaður,
Aleksandra Julia Wegrzyniak starfsmaður,
Fundargerð ritaði: Aleksandra Wegrzyniak, þjónustufulltrúi


Dagskrá: 
B-hluti skipulagserindi
1. 2603164 - Álfhella 9-11, breyting á deiliskipulagi
Smári Björnsson f.h. lóðarhafa leggur 06.03.2026 inn tillögu að breytingu á deiliskipulagi. Tillagan gerir ráð fyrir færslu lóðarmarka á milli Álfhellu 9 og 11 um 3 metra til vesturs auk þess sem innkeyrsla færist til.
Erindið verður grenndarkynnt með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga, þegar uppfærður uppdráttur hefur borist.
2. 2603450 - Óseyrarbraut 12B, breyting á deiliskipulagi
Kristján Ásgeirsson f.h. lóðarhafa sækir 18.03.2026 um breytingu á deiliskipulagi. Breytingin felst í því að suð-austur hlið byggingarreits lóðar Óseyrarbrautar 12B stækkar til norð-austurs.
Erindið verður grenndarkynnt með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Óseyrarbraut 12B, reitur 4.2, breytt deiliskipulag, í grennd.pdf
3. 2510628 - Hjallabraut 45-49C, breyting á deiliskipulagi
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum 08.01.2026 að auglýsa breytingu á deiliskipulagi íbúðarhverfis í Norðurbæ Hafnarfjarðar vegna Hjallabrautar 45-49C í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Breytingin felur í sér að aðkoma að íbúðarsvæðinu verður beint frá Hjallabraut, en aðkoma frá bílastæðum skátaheimilisins verður lokað. Gestabílastæðum verður fjölgað. Í stað djúpgáma verður sorpflokkun leyst með sorptunnum við hvert hús. Tillagan var í auglýsingu frá 27.01.2026-15.03.2026. Opið hús var haldið 10.02.2026. Engar athugasemdir bárust.
Erindinu verður lokið í samræmi við skipulagslög.
Slóð á skipulagsgátt.pdf
4. 2603163 - Hjallahraun 2, breyting á deiliskipulagi
Kristinn Ragnarsson f.h. lóðarhafa leggur 06.03.2026 inn tillögu að breytingu á deiliskipulagi. Tillagan gerir ráð fyrir hækkun gólfkóta jarðhæðar um 75 cm úr Gk:24,10 m. í Gk:24,85 m. Hámarks hæðarkóti byggingar eftir breytingu verður K:47,75.
Erindinu er synjað samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16.03.2026.
Hjallahraun 2, umsögn skipulags.pdf
D-hluti fyrirspurnir
5. 2512326 - Suðurholt 2, fyrirspurn
Tekin er fyrir að nýju fyrirspurn Strendings ehf. fyrir hönd Mílu hf. þar sem óskað er eftir að fá að reisa 16 metra háan stálstaur undir farnetssenda á milli núverandi húss á lóð og lóðarmarka í suður. Staðsetning á lóð Suðurholt 2 kom ekki til greina og nú liggur fyrir ný tillaga að staðsetningu fyrir lóð undir mastrinu samanber umsögn.
Tekið er jákvætt í stofnun lóðar fyrir mastur, staðsetning samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13.03.2026.
Suðurholt 2, umsögn skipulags, ný tillaga.pdf
6. 2602581 - Reykjavíkurvegur 3, fyrirspurn
Þórður Valdimarsson leggur fram þann 24.02.2026 fyrirspurn þar sem óskað er eftir staðfestingu og leiðréttingu á skráningu fasteignarinnar að Reykjavíkurvegi 3, þannig að þar verði skráðar tvær sjálfstæðar íbúðir annars vegar á fyrstu hæð og hins vegar á annarri og þriðju hæð.
Tekið er jákvætt í erindið samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13.03.2026.
Reykjavíkurvegur 3, umsögn skipulags.pdf
7. 2603308 - Óseyrarbraut 27b, fyrirspurn
Páll Poulsen f.h. Sólgarður slf., leggur 12.03.2026 inn fyrirspurn þar sem óskað er eftir að fá að reisa glerhjúp undir pálmatré í sýningargarði á lóðinni Óseyrarbraut 27b.
Tekið er jákvætt í erindið samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 17.03.2026.
Óseyrarbraut 27b, umsögn skipulags.pdf
8. 2603129 - Tunguhella 1-7, sameining lóða, fyrirspurn
Þorleifur Eggertsson f.h. Gröfu og grjót ehf. leggur fram þann 04.03.2026 fyrirspurn um sameiningu lóða Tunguhellu 1, 3, 5 og 7.
Tekið er jákvætt í erindið samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 17.03.2026.
Tunguhella 1-7, umsögn skipulags.pdf
9. 2603253 - Lækjarberg 36, fyrirspurn
Birgir Kristmar Finnbogason leggur 09.03.2026 inn fyrirspurn er varðar byggingarreit vestan við hús nr. 36 við Lækjarberg.
Tekið er neikvætt í erindið samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10.03.2026.
Lækjarberg 36, umsögn skipulags.pdf
10. 2603321 - Kaplahraun 11, fyrirspurn
Gunnþóra Guðmundsdóttir f.h. Púst ehf., leggur 12.03.2026 fram fyrirspurn þar sem óskað er eftir breytingum á húsnæði við Kaplahraun 11. Fyrirhugaðar breytingar á húsnæðinu felast í því að hækka það að hluta til um eina hæð ásamt því að móta framhlið þess út mót Drangahrauni.
Tekið er jákvætt í erindið samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 17.03.2026.
Kaplahraun 11, umsögn skipulags.pdf
F-hluti önnur mál
11. 2603195 - Ljósatröð, Lækjargata, framkvæmdaleyfi
Hákon Róbert Jónsson f.h. Orkuveitu Reykjavíkur sækir 09.03.2026 um framkvæmdaleyfi vegna aukningu á flutningsgetu flutningsæða Hitaveitu Veitna inn í Hafnarfjörð. Vinnan mun eiga sér stað á svæðinu frá Lækjarskóla yfir Lækjargötu og inn í enda Ljósatraðar þar sem rísa mun stjórnlokahús Veitna.
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa samþykkir að gefa út framkvæmdaleyfi.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:00 

Til bakaPrenta