Til bakaPrenta
Hafnarstjórn - 1714

Haldinn á hafnarskrifstofu,
25.11.2026 og hófst hann kl. 11:00
Fundinn sátu: Viktor Pétur Finnsson formaður,
Guðmundur Fylkisson aðalmaður,
Jón Grétar Þórsson aðalmaður,
Sigrún Jónsdóttir aðalmaður,
Þórður Hugo Björnsson aðalmaður,
Fundargerð ritaði: Lúðvík Geirsson, hafnarstjóri
Til fundarins mætti Þórður Þórarinsson bæjarstjóri.


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2611429 - Strandgata 82-84 lóðarsamningur.
Lagt fram erindi þrotabús Hafnarfells ehf., dags. 2. febrúar 2026, um gerð nýrra lóðarleigusamninga um Strandgötu 82 og 84. Undir lið 1-3 mætti til fundarins Gizur Bergsteinsson hrl.
Hafnarstjórn vísar til áskorunar hafnarinnar til þrotabúsins, dags. 27. júlí 2026. Ekki verða gerðir nýir lóðarleigusamningar við þrotabúið. Hafnarstjórn synjar erindinu og felur lögmanni hafnarinnar að tilkynna skiptastjóra um afgreiðsluna.

Erindi þb. Hafnarfells 02_02_2026.pdf
2. 2611428 - Óseyrarbraut 5-7 lóðarsamningur
Lagt fram erindi þrotabús Hafnarfells ehf., dags. 2. febrúar 2026, um gerð nýs lóðarleigusamninga um Óseyrarbraut 5-7.
Hafnarstjórn vísar til áskorunar hafnarinnar til þrotabúsins, dags. 27. júlí 2026. Ekki verður gerður nýr lóðarleigusamningur við þrotabúið. Hafnarstjórn synjar erindinu og felur lögmanni hafnarinnar að tilkynna skiptastjóra um afgreiðsluna.

Erindi þb. Hafnarfells 02_02_2026.pdf
3. 2611427 - Fornubúðir 3 - lóðarleigusamningur
Lagt fram erindi UTS fasteigna ehf., dags. 26. október 2026, um framlengingu lóðarleigusamnings um Fornubúðir 3.
Gildistími lóðarleigusamnings um Fornubúðir 3, dags. 19. mars 1997, rann út 31. desember 2022. Hafnarstjórn vísar til áskorunar hafnarinnar til félagsins, dags. 13. júlí 2026, synjar erindinu og felur lögmanni hafnarinnar að svara því.

Erindi UTS 26_10_2026.pdf
4. 2502919 - Hamarshöfn - deiliskipulag
Lögð fram tillaga að endurskoðuðu deiliskipulagi fyrir Hamarshöfn.
Hafnarstjórn leggur til við skipulagsráð að meðfylgjandi tillaga að endurskoðuðu deiliskipulagi fyrir Hamarshöfn verði lögð fram til kynningar og afgreiðslu.
Hamarshöfn - 2026 Deiliskipulagsbreyting 19. nóv 2026.pdf
Kynningar
5. 2601111 - Vitinn við Vitastíg - lóð og fasteign
Hafnarstjóri skýrði frá samtali við byggðasafnsvörð varðandi gamla vitahúsið við Vitastíg.
6. 2611394 - Óseyrarbraut 8-14
Farið yfir stöðu lóðamála á hafnarsvæði og brýna þörf fyrir aukið geymslurými ofan við Hvaleyrarbakka.
Hafnarstjórn samþykkir að óska eftir því við umhverfisráð og skipulagsráð að endurskoðuð verði notkun á lóðunum Óseyrarbraut 8-14. Fyrir liggur að fyrri áform um nýtingu lóðanna fyrir starfsemi Tækniskólans eru ekki lengur til staðar.
Núverandi nýting lóðanna sem geymslusvæði fyrir bifreiðar, vinnutæki og bílvagna var hugsuð til bráðabirgða og mikilvægt að koma slíkri aðstöðu sem fyrst fyrir á öðrum hentugri stað. Lóðin er í dag ógirt að stórum hluta og bíla- og tækjageymsla fellur illa að nærliggjandi umhverfi, fyrirhugaðri íbúðabyggð og almennri starfsemi á hafnarsvæðnu.
Vöruflutningar um Hafnarfjarðarhöfn hafa aukist umtalsvert á síðustu árum og mikilvægt að höfnin hafi land fyrir vörugeymslu og tollgeymslusvæði í næsta nágrenni við hafnarbakka. Því er óskað eftir því að núverandi notkun á þessum lóðum verði endurskoðuð og færð á annan hentugri stað og lóðunum breytt að nýju í hafnarsvæði.
7. 2608093 - Siglingaklúbburinn Þytur, grunnaðstaða, endurnýjun
Hafnarstjóri skýrði frá fundi með formanni Þyts varðandi starfsemi siglingaklúbbsins og samstarf við Hafnarfjarðarhöfn.
8. 2611422 - Dráttarbátar 2026
Hafnarstjóri fór yfir stöðu dráttarbáta hafnarinnar og tillögur um frekari yfirferð og endurnýjun.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:00 

Til bakaPrenta