| 1. 2505497 - Óseyrarbraut 1-3, breyting á deiliskipulagi |
| 2. liður úr fundargerð skipulags og byggginarráðs 20. apríl 2026. Skipulags- og byggingarráð tekur undir svör við athugasemdum og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja framlagða breytingu á deiliskipulagi Óseyrarbrautar 1-3. |
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir fyrirliggjandi breytingu á deiliskipulagi Óseyrarbrautar 1-3.
Bókun frá fulltrúa Miðflokksins:
Fulltrúi Miðflokksins í bæjarráði styður uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í Hafnarfirði, þar á meðal skynsamlega þéttingu á vannýttum svæðum, og leggst því ekki gegn því málinu. Athugasemdir Miðflokksins lúta að umferðarlausnum, málsmeðferð og forsendum málsins, en ekki því markmiði að byggja upp svæðið.
Fyrir liggur að tillagan var tekin til endurskoðunar eftir auglýsingu vegna framkominna ábendinga og athugasemda. Þrátt fyrir uppfærða tillögu liggur ekki fyrir fullnægjandi heildarlausn á umferðarmálum Suðurhafnarsvæðisins.
Í samningi við lóðarhafa er vísað til þess að rammahluti aðalskipulags og aðalskipulag Hafnarfjarðar fyrir svæðið séu í anda svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins, þar sem lögð sé áhersla á að draga úr útþenslu byggðar, efla skilvirkar almenningssamgöngur og byggja upp meginsamgönguás, þ.e. Borgarlínu, með þéttingu og blöndun byggðar meðfram honum.
Miðflokkurinn gerir athugasemd við að aukið byggingarmagn, lægri bílastæðakröfur og aukið umferðarálag séu í reynd réttlætt með slíkum forsendum án þess að raunhæf, fjármögnuð og tímasett samgöngulausn liggi fyrir. Þétting byggðar getur ekki komið í staðinn fyrir virkt gatnakerfi og Borgarlína sem liggur ekki fyrir í útfærðri mynd leysir ekki umferðarmál Hafnfirðinga í dag.
Fulltrúi Miðflokksins leggur áherslu á að mikilvægt sé að fram fari heildstæð umferðargreining fyrir Suðurhafnarsvæðið, útfærð samgöngulausn og kostnaðarmat vegna nauðsynlegra innviðaframkvæmda.
|
| 2204-greinargerð-Ób 1-3, útg-01.pdf |
| 2204-óseyrarhverfi-lóð1-3-01.pdf |
| 2204-óseyrarhverfi-lóð1-3-02.pdf |
| Samantekt athugasemda og svör 17.4.2026.pdf |
| Samningur um uppbyggingu - Óseyrarbraut 1-3 undirritaður.pdf |
|
|