| Til baka | Prenta |
| Menningar- og ferðamálanefnd - 481 |
Haldinn í Bungalow, Vesturgötu 32,
21.10.2026 og hófst hann kl. 08:30 | | Fundinn sátu: Guðbjörg Oddný Jónasdóttir aðalmaður,
Alexander Árnason aðalmaður,
Kristín Þóra L. Reynisdóttir áheyrnarfulltrúi,
Steinar Bragi Sigurjónsson áheyrnarfulltrúi,
Ragnar Már Jónsson varamaður,
Sunna Magnúsdóttir fundarritari, Árdís Ármannsdóttir sviðsstjóri. | | Fundargerð ritaði: Sunna Magnúsdóttir, verkefnastjóri | | | |
| | Dagskrá: | | | | | 1. 2608319 - Aðgerðaráætlun menningar- og ferðamálanefndar 2026-2029 | | Umræður um aðgerðaráætlun menningar- og ferðamálanefndar 2026-2030. | | |
| | 2. 2608181 - Jólaþorpið 2026 | | Verkefnastjóri fer yfir undirbúning Jólaþorpsins. | | Menningar- og ferðamálanefnd fagnar miklum áhuga á þátttöku í Jólaþorpinu, en alls bárust 106 umsóknir um sölurými. Nefndin hlakkar til að sjá Jólaþorpið lifna við á aðventunni með fjölbreyttu úrvali og góðri stemningu. | | Umsóknir og úthlutun jólahúsa á Thorsplani 2026.pdf | | |
| | 3. 2610500 - Heimsókn menningar- og ferðamálanefndar í Byggðasafn Hafnarfjarðar | | Björn Pétursson, bæjarminjavörður, fer yfir starfsemi Byggðasafns Hafnarfjarðar. | | Menningar- og ferðamálanefnd þakkar bæjarminjaverði fyrir góða kynningu á Byggðasafni Hafnarfjarðar. Nefndin fagnar því öfluga og fjölbreytta starfi sem þar fer fram og þakkar starfsfólki safnsins fyrir mikilvægt starf við að varðveita og miðla sögu Hafnarfjarðar. | | |
|
| | Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00 |
|
|
| Til baka | Prenta |