Til bakaPrenta
Skipulags- og byggingarráð - 843

Haldinn Fundarsalurinn Hamarinn, Norðurhellu 2 (1. hæð),
19.02.2026 og hófst hann kl. 14:30
Fundinn sátu: Orri Björnsson formaður,
Árni Rúnar Árnason varaformaður,
Lovísa Björg Traustadóttir aðalmaður,
Guðrún Lísa Sigurðardóttir aðalmaður,
Stefán Már Gunnlaugsson aðalmaður,
Sigurjón Ingvason áheyrnarfulltrúi,
Fundargerð ritaði: Anna María Elíasdóttir, skrifstofustjóri
Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn: Berglind Guðmundsdóttir, Anne Steinbrenner verkefnastjórar og Sigurður Haraldsson sviðsstjóri.


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 1705380 - Kinnar, deiliskipulag, endurskoðun
Tekin til umræðu staða vinnu við endurskoðun deiliskipulags Kinna.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að hafin verði vinna við endurskoðun deiliskipulags Kinna.
Kinnar minniblað - kvistar.pdf
2. 2602334 - Erindi vegna deiliskipulags Kinna
Lagt fram erindi Einars Pálssonar vegna óframkvæmdrar ákvörðunar Skipulags- og byggingarráðs frá 5. september 2017 um að kynna og leita umsagna við endurskoðað deiliskipulag Kinna.
Lagt fram og vísað í bókun í fyrsta máli á dagskrá.
Kvörtun vegna deiliskipulagstillögu.pdf
3. 2601111 - Vitinn við Vitastíg - lóð og fasteign
Lögð fram bókun Hafnarstjórnar þar sem óskað er eftir því við skipulags- og byggingaráð að unnið verði deiliskipulag fyrir lóð gamla innsiglingarvitans neðan við Vitastíg.Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi miðbæjar hraun vestur vegna stofnunar lóðar, Vitastígur 12a.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Miðbæjar hraun vesturs og vísar erindinu til staðfestingar í bæjarstjórn.
DSK breyting_Vitinn við Vitastig.pdf
Hafnarstjórn - 1698 (4.2.2026) - Vitinn við Vitastíg - lóð og fasteign.pdf
4. 2306477 - Hvaleyrarholt suðaustur, Þorlákstún, Lyngbarð, deiliskipulag
Farið yfir stöðu vinnu við deiliskipulags Þorlákstúns.
Tekið til umræðu.
5. 2310246 - Undirhlíðanáma, matskylda, fyrirspurn
Lagt fram álit Skipulagsstofnunar um umhverfismat framkvæmda.
Lagt fram.
Efnistaka úr Undirhlíðum_álit um umhverfismatsskýrslu.pdf
Undirhlíðar, slóð á skipulagsgátt.pdf
7. 2510626 - Fagrakinn 4, kæra 163/2025
Lagður fram úrskurður Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli nr. 163 2025.
Lagt fram og sviðinu falið að vinna málið áfram.
Úrskurður í kæru 163_2025.pdf
8. 2601055 - Straumhella 6, stjórnsýslukæra nr. 2512014
Lagður fram úrskurður Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli nr. 2512014.
Lagt fram og sviðinu falið að vinna málið áfram.
Straumhella 6 slóð á úrskurð úua.pdf
Fyrirspurnir
6. 2512722 - Herjólfsgufan, Herjólfsgötu
Lögð fram fyrirspurn forsvarsmanna Herjólfsgufunnar um áframhaldandi starfsemi.
Skipulags- og byggingarráð tekur undir umsögn verkefnastjóra og vísar því til fyrirspyrjanda að sækja um stöðuleyfi til byggingarfulltrúa að nýju vegna áframhaldandi starfsemi Herjólfsgufunnar.
Herjólfsgufan, umsögn.pdf
9. 2101532 - Skipulags- og byggingarráð, fyrirspurnir kjörinna fulltrúa
Lögð fram fyrirspurn fulltrúa Viðreisnar um trjágróður í skipulagi Áslands.
Lagt fram.
Fyrirspurn um trjágróður.pdf
Fundargerðir
10. 2601030F - Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 92
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar.
Lagt fram.
https://hafnarfjordur.is/fundagerd/?meeting_id=cwvXD29yHUC0oMtATXM4uQ1
11. 2602006F - Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 93
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar.
Lagt fram.
https://hafnarfjordur.is/fundagerd/?meeting_id=Cxn9N_2x9kq5OYwu8wb5pQ1
12. 2601029F - Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 97
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar.
Lagt fram.
https://hafnarfjordur.is/fundagerd/?meeting_id=h6exCKCx0k29Af1Q85_aRQ1
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:20 

Til bakaPrenta