Til bakaPrenta
Bæjarráð - 3706

Haldinn í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6,
30.04.2026 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Orri Björnsson formaður,
Margrét Vala Marteinsdóttir varaformaður,
Árni Rúnar Þorvaldsson aðalmaður,
Guðmundur Árni Stefánsson aðalmaður,
Kristinn Andersen aðalmaður,
Jón Ingi Hákonarson áheyrnarfulltrúi,
Fundargerð ritaði: Ívar Bragason, Bæjarlögmaður


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2404300 - Hellisgerði, Oddrúnarbær
6.liður úr fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 21.apríl sl.
Drög að samningi vegna rekstur á Oddrúnarbæ í Hellisgerði lagður fram.

Menningar- og ferðamálanefnd samþykkir fyrirliggjandi drög að samningi við Helliskaffi um rekstur í Oddrúnarbæ og vísar honum til endanlegrar staðfestingar í bæjarráði. Nefndin fagnar þessum áformum og þeim spennandi hugmyndum sem liggja fyrir um þróun svæðisins. Við hlökkum til að sjá enn meira líf og fjör í Hellisgerði á komandi árum, þar sem þessi nýja starfsemi mun stórbæta upplifun og þjónustu við bæði bæjarbúa og gesti í þessari einstöku perlu okkar.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög að samningi við Helliskaffi ehf.
Helliskaffi, samningur um afnot af húseigninni Reykjavíkurvegur 15 b (1).pdf
2. 2604438 - Kirkjuvegur 3, nýting forkaupsréttar
Lagt fram erindi varðandi nýtingu forkaupsréttar sveitarfélagsins.
Bæjarráð samþykkir að Hafnarfjarðarbær gangi til samninga um kaup á eigninni.
3. 2604460 - Bæjar- og tónlistarhátíð, Hjarta Hafnarfjarðar 2026
Lögð fram umsókn vegna Hjarta Hafnarfjarðar 2026
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar til úrvinnslu hjá umhverfis- og skipulagssviði.
Hjarta Hafnarfjarðar 2026 - Erindi til Bæjarráðs og teikningar.pdf
Hjarta Hfj. 2025 - Samantekt.pdf
4. 2604178 - Fluguskeið 18 og 18a, umsókn um lóð
Lögð fram umsókn Ellerts Ólafssonar um lóðinar nr. 18 og 18a við Fluguskeið.
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni samkvæmt umsókn og vísar til bæjarstjórnar til staðfestingar.
5. 2603647 - Byrgisás 5-7, umsókn um lóð
Lögð fram umsókn Ástþórs Reynis Guðmundssonar um lóðina nr. 5-7 við Byrgisás.
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni til MA verktaka ehf.
6. 2603646 - Byrgisás 5-7, umsókn um lóð
Lögð fram umsókn MA Verktaka ehf. um lóðina nr. 5-7 við Byrgisás.
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni samkvæmt umsókn og vísar til bæjarstjórnar til staðfestingar.
7. 2604468 - Reykjanesbraut, lóðarúthlutun, ósk um viðræður
Lagt fram
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar til frekari vinnslu og athugunar hjá skipulags- og byggingarráði.
Umsókn Egg fasteigna.pdf
Rissað í kringum lóðina stóru.pdf
8. 2604344 - Sörlaskeið 31, endurnýjun lóðarleigsamnings
Óskað eftir endurnýjun lóðarleigusamnings.
Bæjarráð samþykkir fyriliggjandi endurnýjun á lóðarleigusamning.
Sörlaskeið 31, lls., 22.04.2026 DRÖG.pdf
9. 2604204 - Strandgata 37B endurnýjun lóðarleigusamnings
Endurnýjun lóðarleigusamnings
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi endurnýjun á lóðarleigusamning.
Strandgata 37b, lls. 22.4.2026.pdf
10. 2510055 - Golfklúbburinn Keilir, stækkun golfskála
Lagt fram
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög að samningi og vísar til bæjarstjórnar til staðfestingar.
flytiframkvæmd_keilir_02_04_2026.pdf
kynning_HFNB_baejarrad_20260331 (1).pdf
Samningur Keilir - stækkun golfskála.pdf
11. 2405249 - Sléttuhlíð C3, beiðni lóðarhafa um 12 ára frest til að fjarlægja óleyfishús
2.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 27. júní 2024.
Lagt fram. Sigurður Haraldsson sviðsstjóri mætir til fundarins.

Bæjarráð samþykkir að lóðarhafar fái frest til 1. október 2026 til að fjarlægja óleyfishús af lóðinni.
Bæjarráð samþykkir að framlengja lóðarleigusamning og hann gildi til 1. október 2034.
Bréf til bæjarráðs vegna lóðarleigusamnings.pdf
Minnisblað vegna beiðni lóðarhafa á lóð C3 í Sléttuhlíð um 12 ára frest til að fjarlægja óleyfishús. Málsnúmer 2405249..pdf
12. 2208003 - Strandgata 82-84, lóðarleigusamningar, endurnýjun, erindi
Lagt fram.
Strandgata 82-84, lóðarleigusamningar, endurnýjun, erindi.pdf
Strandgata 82-84 og aðrar lóðir þrotabús Hafnarfells ehf., ósk um gerð lóðarleigusamninga og uppbyggingarsamninga.pdf
13. 2511210 - Hellnahraun 4, vilyrði um lóð
Lagt fram
Bæjarráð samþykkir að veita vilyrði um í samræmi við beiðni. Vilyrðið gildir í 12 mánuði.
20260424142020033.pdf
14. 2106263 - Hafnarfjarðarbær, heildstæð stefnumótun, heimsmarkmið
Uppfærsla á heildarstefnu Hafnarfjarðar lögð fram til samþykktar.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi uppfærslu á heildarstefnu og vísar til bæjarstjórnar til staðfestingar.
Stefna Hafnarfjarðarbæjar v03.pdf
15. 2602465 - Kaldárselsvegur L121316, 4760-4000, ósk um breytingu og leiðréttingu kvaða á lóð
Sigurður Haraldsson sviðsstjóri mætir til fundarins.
Bæjarráð vísar málinu til SSH til umsagnar.
Kaldárselsvegur L121316, 4760-4000, ósk um breytingu og leiðréttingu kvaða á lóð.pdf
MB-25.17_Kaldarbotnar_forsendur_vatnsverndar.pdf
16. 2511483 - Krýsuvík, kynning
Lögð fram drög að viljayfirlýsingu
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi viljayfirlýsingu.

Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi bókun:
Samfylkingin telur mikilvægt að hefja undirbúning að fjölbreyttir uppbyggingu í Krýsuvík sem lengi á að standa fyrir Hafnfirðinga og gesti og gangandi. Þar eru ýmsir möguleikar til staðar við nýja uppbyggingu, svo sem göngu- og hjólaleiðir, baðlón, veitingastaður og fleira, sem verður að vera í góðum takti við einstæða náttúru og umhverfi. Fyrirliggjandi hugmyndir eru athyglisverðar og ástæða til að skoða þær nánar. Hins vegar leggur Samfylkingin áherslu á að ekki verði fjárhagslega skuldbindandi ákvarðanir teknar á þessum tímapunkti, hálfum mánuði fyrir kosningar, þegar ný bæjarstjórn verður kjörin og núverandi bæjarstjórn hefur lokið störfum.
Krysuvik.pdf
17. 2006304 - Suðurgata, samfélagsgarður, land í fóstur, umsókn
Beiðni um framlengingu samnings.
Bæjarráð samþykkir að framlengja samkomulag um land í fóstur og hann gildi til 1. maí 2031.
Afnot af landi samningur Ýr Káradóttir.pdf
18. 2602638 - Hólshraun 5, breyting á deiliskipulagi vegna stækkunar lóðar
Lagt fram
Bæjarráð samþykkir stækkun lóðarinnar.
Hólshraun 5 Hafnarfirði breytt deiliskipulag amt.pdf
19. 2505012 - Einkaframkvæmdasamningar, fyrirspurn
Lagt fram minnisblað.
Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir upplýsingum um heildrleigugreiðslur bæjarsjóðs til eiganda fasteigna Áslandsskóla og leikskólans Hörðuvöllum og Tjarnaráss sem gerðir voru á árunum 2000 og 2001 frá, sundurliðað og uppfært til núverandi verðlags og þær upplýsingar liggi fyrir við afgreiðslu ársreiknings 2025.

Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi bókun:
Á síðasta ári voru greiddar rúmar 288 milljónir vegna einkaframkvæmdarsamninga. Nú eru að renna upp skuldadagar þegar kemur að lokum leigutíma á umdeildri einkaframkvæmd í grunn- og leikskólum sem ráðist var í upp úr síðustu aldamótum, þegar sömu flokkar Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur fóru með meirihlutastjórn í bænum. Leigutími vegna Áslandsskóla og Hörðuvalla rennur út á vormánuðum 2027. Á leigutímanum hefur bæjarsjóður greitt eigendum himinháar fjárhæðir, og það er einnig ljóst að verði það niðurstaðan að bærinn kaupi skólana, sem er æskilegt, þá mun það kosta bæjarsjóð milljarða króna. Þetta bentu jafnaðarmenn á fyrir 25 árum, þegar lagt var upp í þessa einkaframkvæmdavegferð af Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki; sumsé há leigugjöld í 25 ár og síðan nýr og mikill kostnaður við uppkaup. Fyrirliggjandi svör við fyrirspurn okkar á síðasta fundi bæjarráðs sýna að lítið hefur þokast í málinu frá því að Samfylkingin spurðist fyrir um stöðu þess fyrir ári síðan.


20. 2511294 - Ársreikningur Hafnarfjarðarkaupstaðar 2025 og fyrirtækja hans
Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir málinu á dagskrá og óska eftir upplýsingum um stöðu viðræðna vegna uppkaupa/samninga um Áslandsskóla og Leikskólanum Hörðuvöllum. Einnig lögð fram fyrirspurn vegna síðari umræðu um ársreikning í bæjarstjórn.
Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi fyrirspurn:

1. Hvað hafa lán og aðrar skuldbindingar bæjarsjóðs hækkað á kjörtímabilinu 2022 - 2026 sundurliðað eftir árum?

2. Skuldbindingar vegna útgjalda vegna nýs Tækniskóla eru færðar utan efnahagsreiknings, sbr. skýringar nr. 24 með ársreikningi bæjarins 2025. Hverjar eru ógreiddar skuldbindingar Hafnarfjarðarbæjar vegna samnings frá júní 2024 milli bæjar, ríkis og Tækniskólans um verkefnið - uppreiknaðar til verðlags í apríl 2026.

3. Hverjar hafa tekjur bæjarsjóðs verið af lóðaúthlutun/lóðasölu á kjörtímabilinu, sundurliðað eftir árum og eðli gjalda; gatnagerðargjöld, byggingarréttargjöld og önnur gjaldtaka?

21. 1809298 - Tækniskólinn, nýbygging, erindi
Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir málinu á dagskrá. Umræður um stöðu málsins, m.a. um stöðu uppkaupa á lóðum vegna nýs Tækniskóla á Suðurhöfn og aðrar fjárhagslegar skuldbindingar Hafnarfjarðar vegna verkefnisins.
Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi bókun:
Fulltrúar Samfylkingarinnar benda á meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks hefur ekki lokið þessu máli og það bíður nýrrar bæjarstjórnar að leiða þetta mikilvæga mál til lykta.
22. 2409352 - Nýtt húsnæði fyrir bókasafn Hafnarfjarðar
Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir málinu á dagskrá og óska eftir upplýsingum um stöðu framkvæmda.
Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi bókun:
Ljóst virðist af fyrirliggjandi upplýsingum að kostnaður við kaup og gerð á nýju bókasafni í Firði, því þakkláta verkefni, hefur farið fram úr áætlun. MIkilvægt er að áætlanir um svona mikilvæg verkefni standist. En óskum eftir minnisblaði frá fjármálastjóra og sviðstjóra umhverfis- og skipulagssviðs um málið.
Fundargerðir
23. 2604002F - Hafnarstjórn - 1702
Lögð fram fundargerð hafnarstjórnar frá 15.apríl sl.
24. 2604004F - Menningar- og ferðamálanefnd - 473
Lögð fram fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 21.apríl sl.
25. 2601550 - Samband íslenskra sveitarfélaga, fundargerðir 2026
Lögð fram fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 17.apríl sl.
26. 2601435 - Stjórn SSH, fundargerðir 2026
Lögð fram fundargerð stjórnar SSH frá 20.apríl sl.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:38 

Til bakaPrenta