Til bakaPrenta
Menningar- og ferðamálanefnd - 469

Haldinn Sólberg,
25.02.2026 og hófst hann kl. 08:30
Fundinn sátu: Guðbjörg Oddný Jónasdóttir formaður,
Jón Ingi Hákonarson áheyrnarfulltrúi,
Alexander Árnason aðalmaður,
Sigrid Foss varamaður,
Sunna Magnúsdóttir fundarritari, Árdís Ármannsdóttir sviðsstjóri.
Fundargerð ritaði: Sunna Magnúsdóttir, verkefnastjóri


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2512005 - Menningarstyrkir 2026
Farið yfir umsóknir vegna menningarstyrkja.
Afgreiðsla menningarstyrkja mun fara fram 4.mars n.k.
2. 2512006 - Bæjarlistamaður 2026
Ábendingar bæjarbúa vegna tilnefningar bæjarlistamanns Hafnarfjarðar árið 2026 lagðar fram.
3. 2508252 - Jólaþorpið 2025
Farið yfir framkvæmd Jólaþorpins 2025 og tengdra viðburða. Skýrsla undirbúningshóps lögð fram.
Menningar- og ferðamálanefnd þakkar góða yfirferð og hrósar starfsmönnum og öllum þeim sem komu að Jólaþorpinu árið 2025 fyrir glæsilegan jólabæ.
4. 1801249 - Strandgata 6, Bæjarbíó, erindi
Á fundi bæjarráðs 19. febrúar var endurnýjun rekstrarsamnings við Bæjarbíó á dagskrá. Óskað var eftir umsögn menningar- og ferðamálanefndar.
Menningar- og ferðamálanefnd fagnar erindinu og lýsir yfir mikilli ánægju með hversu vel hefur tekist til með rekstur Bæjarbíós undanfarin ár. Rekstraraðilum hefur tekist að byggja upp öfluga og lifandi menningarstarfsemi í hjarta Hafnarfjarðar, sem hefur eflt menningarlíf bæjarins til muna. Bæjarbíó hefur sannarlega fest sig í sessi sem framúrskarandi tónlistar- og menningarhús þar sem markmiðum um fjölbreytta starfsemi árið um kring hefur verið náð. Nefndin leggur mikla áherslu á að þessu farsæla samstarfi verði haldið áfram og mælir eindregið með því við bæjarráð að rekstrarsamningurinn við Bæjarbíó slf. verði endurnýjaður.
5. 2504736 - Bæjar- og tónlistarhátíð, Hjarta Hafnarfjarðar 2025
Greinargerð um bæjar- og tónlistarhátíðina Hjarta Hafnarfjarðar lögð fram.
Menningar- og ferðamálanefnd þakkar greinargerðina sem lögð er fram til upplýsingar. Nefndin fagnar innilega þeim glæsilega árangri sem Hjarta Hafnarfjarðar hefur náð á undanförnum árum. Hátíðin hefur vaxið úr því að taka á móti um 1.500 gestum fyrsta árið í um 65.000 gesti í dag og er orðin ein mest sótta bæjar- og tónlistarhátíð landsins.
Þessi viðburður lífgar verulega upp á miðbæinn, eflir mannlíf og skapar mikilvægar afleiddar tekjur fyrir veitingastaði og aðra þjónustuaðila í Hafnarfirði. Það er jafnframt mikið fagnaðarefni hversu fagleg og örugg framkvæmdin hefur verið öll þessi ár, ásamt því að frír aðgangur tryggir að allir bæjarbúar geti notið hennar. Nefndin tekur undir mikilvægi þess að hlúa vel að þessari frábæru hátíð svo hún geti haldið áfram að blómstra um ókomin ár.
6. 2602575 - Gaflaraleikhúsið, samstarfssamningur 2026-2028
Drög að samning við Gaflaraleikhúsið lögð fram.
Menningar- og ferðamálanefnd samþykkir fyrirliggjandi samningsdrög og fagnar því að tryggt sé áframhaldandi öflugt samstarf við Gaflaraleikhúsið. Nefndin lýsir yfir ánægju með það frábæra leiklistarstarf sem leikhúsið hefur haldið úti til að auðga menningarlíf bæjarins undanfarin 13 ár, ekki síst með ríkri áherslu á börn og ungmenni. Nefndin tekur jafnframt mjög jákvætt í þær skapandi lausnir sem leikhúsið hyggst nýta sér á meðan unnið er að framtíðarlausn í húsnæðismálum. Það sýnir metnað og þrautseigju að setja upp sýningar í samstarfi við Bæjarbíó, Borgarleikhúsið, Þjóðleikhúsið og jafnvel með útisýningu í Hellisgerði. Nefndin mælir eindregið með staðfestingu samningsins til að styðja áfram við þennan mikilvæga máttarstólpa í menningarlífi Hafnarfjarðar. Samningi vísað til samþykktar í bæjarráði.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00 

Til bakaPrenta