| Til baka | Prenta |
| Bæjarráð - 3718 |
Haldinn í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6,
02.10.2026 og hófst hann kl. 15:00 | | Fundinn sátu: Orri Björnsson formaður,
Hildur Rós Guðbjargardóttir varaformaður,
Karólína Helga Símonardóttir aðalmaður,
Einar Geir Þorsteinsson aðalmaður,
Kolbrún Magnúsdóttir varamaður,
Sigurður Nordal sviðsstjóri, Helga Benediktsdóttir sviðsstjóri, Þórður Þórarinsson bæjarstjóri. | | Fundargerð ritaði: Sigurður Nordal, sviðsstjóri | | | |
| | Dagskrá: | | | | | 1. 2510271 - Fimleikafélagið Björk, fjármál | | Fulltrúar stjórnar Fimleikafélagsins Bjarkar mæta til fundarins. | | Bæjarráð Hafnarfjarðarbæjar leggur áherslu á mikilvægi starfs Fimleikafélagsins Bjarkar og vilja bæjarins til þess að styðja áfram við störf félagsins. Félagið hefur glímt við rekstrarvanda um alllangt skeið og hefur Hafnarfjarðarbær á undanförnum árum veitt því margvíslega fyrirgreiðslu og ráðgjöf svo það nái rekstrarhæfi að nýju. Bæjarráð hefur áhyggjur af stöðu félagsins eins og hún kemur fram í skýrslu eftirlitsnefndar um fjármála íþróttafélaga í Hafnarfirði og lögð var fyrir bæjarráð á síðasta fundi. Bæjarráð þakkar stjórn félagsins fyrir fundinn þar sem sammælst var um að vinna áfram saman að lausn á vanda félagsins. | | |
| | 2. 2608128 - Afsláttur af leikskólagjöldum | | Lagðar fram breytingar | Bæjarráð samþykkir samhljóða eftirfarandi bókun:
Eins og fram kom í bókun á fundi bæjarráðs Hafnarfjarðar hinn 1. október hyggst sveitarfélagið við gerð fjárhagsáætlunar fylgja ályktun Landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga og áskorunum aðila vinnumarkaðarins um að gjaldskrárhækkanir verði ekki umfram 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabankans. Í samræmi við það dregur bæjarráð til baka gjaldskrárbreytingu leikskólagjalda sem samþykkt var í bæjarráði hinn 17. september síðastliðinn.
Hafnarfjörður vill þannig stuðla að lækkun verðbólgu með hag heimila og fyrirtækja í landinu að leiðarljósi og leggja sitt að mörkum til að tryggja ró á vinnumarkaði.
Fulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram eftirfarandi bókun: Fulltrúi Framsóknar fagnar því að fallið hafi verið frá fyrirhuguðum breytingum á systkinaafslætti og styður þá niðurstöðu. Framsókn hefur um árabil lagt ríka áherslu á að systkinaafsláttur sé mikilvægur þáttur í því að styðja við barnafjölskyldur og stuðla að fjölskylduvænu samfélagi. Það er því ánægjulegt að sú leið hafi verið valin að halda núverandi fyrirkomulagi óbreyttu.
Fulltrúi Miðflokksins leggur fram eftirfarandi bókun: Fulltrúi Miðflokksins fagnar því að nú sé lagt til að draga til baka breytingar á leikskólagjöldum sem samþykktar voru í bæjarráði 17. september. Miðflokkurinn lagði þá fram breytingartillögu um að halda afsláttarhlutföllum og systkinaafslætti óbreyttum, en henni var hafnað. Nú er komið til móts við þá kröfu og er það ánægjulegt.
| | |
|
| | Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:30 |
|
|
| Til baka | Prenta |