Til bakaPrenta
Skipulags- og byggingarráð - 847

Haldinn Fundarsalurinn Hamarinn, Norðurhellu 2 (1. hæð),
20.04.2026 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Orri Björnsson formaður,
Árni Rúnar Árnason varaformaður,
Lovísa Björg Traustadóttir aðalmaður,
Stefán Már Gunnlaugsson aðalmaður,
Hrund Biering Valsdóttir varamaður,
Jón Ingi Hákonarson varamaður,
Ívar Bragason bæjarlögmaður, Sigurður Haraldsson sviðsstjóri, Anna María Elíasdóttir fundarritari, Hildur Bjarnadóttir byggingafulltrúi, Anna Margrét Tómasdóttir starfsmaður, Berglind Guðmundsdóttir starfsmaður, Lilja Grétarsdóttir skipulagsfulltrúi, Anne Steinbrenner starfsmaður.
Fundargerð ritaði: Anna María Elíasdóttir, skrifstofustjóri
Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn: Lilja Grétarsdóttir skipulagsfulltrúi, Anna Margrét Tómasdóttir og Anne Steinbrenner verkefnastjórar og Sigurður Haraldsson sviðsstjóri.


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2503513 - Straumhella 6, breyting
Í kjölfar úrskurðar úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála var leitað umsagnar Lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu, Slökkviliðs Höfuðborgarsvæðisins og Landsnets. Framkomnar umsagnir lagðar fram.
Lagt fram.
Fulltrúar Samfylkingarinnar telja að fyrirhuguð geymsla fyrir flugelda á lóðinni að Straumhellu 6 sé með öllu óviðunandi í hefðbundnu iðnaðarhverfi. Slíkt samræmist illa ákvæðum skipulags hverfisins og þeim væntingum sem fyrirtæki og starfsfólk hafa til öryggis og umhverfisgæða á svæðinu.

Þá vekur sérstaka athygli að þessi starfsemi sem er í engu samræmi við þær kvaðir og takmarkanir sem aðrir aðilar í bænum þurfa að sæta, til dæmis Björgunarsveit Hafnarfjarðar, sem hefur þurft að uppfylla strangar kröfur vegna nálægðar við íbúðabyggð. Þótt staðsetning Straumhellu 6 sé ekki við íbúðarhúsnæði breytir það ekki þeirri staðreynd að geymsla fyrir flugelda fellur illa að þeirri tegund atvinnustarfsemi sem svæðið er ætlað fyrir.

Fulltrúar Samfylkingarinnar í skipulags- og byggingaráði taka undir með bókun Samfylkingarinnar í bæjarráði frá 5. mars þar sem áréttað er mikilvægi þess að botn fáist í málið hið allra fyrsta og það til lykta leitt með farsælum hætti.
2. 2505497 - Óseyrarbraut 1-3, breyting á deiliskipulagi
Á fundi skipulags- og byggingarráðs þann 26. júní 2025 var samþykkt að auglýsa breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðirnar Óseyrarbraut 1-3. Tillagan var í auglýsingu frá 17. júlí 2025. með frest til að skila inn athugasemdum til 1. september. Athugasemdir voru lagðar fram 4. september 2025. Þann 2. október var lögð fram greinargerð skipulagsfulltrúa dags. 19.09.2025 með samantekt athugasemda. Í kjölfar framkominna ábendinga og athugasemda var lagt til að tillagan yrði tekin til endurskoðunar og vísað til áframhaldandi vinnu sviðsins og skipulagshöfunda.
Lögð fram svör við athugasemdum ásamt uppfærðri tillögu.
Skipulags- og byggingarráð tekur undir svör við athugasemdum og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja framlagða breytingu á deiliskipulagi Óseyrarbrautar 1-3.

Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja áherslu á að tryggðar verði raunhæfar lausnir varðandi samgöngur og umferðarmál á svæðinu. Álag vegna bílaumferðar er nú þegar komið að þolmörkum, líkt og fram kemur í samgöngugreiningu Eflu frá janúar 2026. Þar kemur fram að umferð á Suðurhöfn hafi aukist verulega á undanförnum árum og að fyrirhuguð uppbygging á Óseyrarsvæðinu, ásamt tilkomu Tækniskólans, geti bætt allt að 17.700 bílferðum á sólarhring við núverandi álag.

Nauðsynlegt er að tryggja Borgarlínuleiðir um svæðið, bæta umferðarflæði á hringtorginu eða gera ný gatnamót, og skoða fjölgun akreina ásamt hjóla- og göngustígum. Slík útfærsla liggur ekki fyrir. Að mati fulltrúa Samfylkingarinnar er óhjákvæmilegt að ráðast í heildstæða lausn á þessum áskorunum áður en svæðið er byggt upp frekar, enda liggur fyrir að núverandi kerfi ræður varla við núverandi umferð.
Samantekt athugasemda og svör 17.4.2026.pdf
2204-óseyrarhverfi-lóð1-3-01.pdf
2204-óseyrarhverfi-lóð1-3-02.pdf
2204-greinargerð-Ób 1-3, útg-01.pdf
Fyrirspurnir
3. 2511196 - Strandgata 24, fyrirspurn
Lögð fram í upphafi fundar fyrirspurn Guðmundar Bjarna Harðarsonar fh. 220 Fjörður ehf. vegna fyrirhugaðra breytinga á hluta húsnæðis að Strandgötu 24.
Lagt fram.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 08:52 

Til bakaPrenta