Til bakaPrenta
Skipulags- og byggingarráð - 848

Haldinn Fundarsalurinn Hamarinn, Norðurhellu 2 (1. hæð),
30.04.2026 og hófst hann kl. 14:00
Fundinn sátu: Árni Rúnar Árnason varaformaður,
Lovísa Björg Traustadóttir aðalmaður,
Guðrún Lísa Sigurðardóttir aðalmaður,
Stefán Már Gunnlaugsson aðalmaður,
Bjarni Lúðvíksson varamaður,
Jón Ingi Hákonarson varamaður,
Fundargerð ritaði: Anna María Elíasdóttir, skrifstofustjóri
Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn: Lilja Grétarsdóttir skipulagsfulltrúi, Anna Margrét Tómasdóttir, Anne Steinbrenner og Berglind Guðmundsdóttir verkefnastjórar og Sigurður Haraldsson sviðsstjóri.


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2501113 - Suðurhöfn, breyting á deiliskipulagi
Uppfærð greinargerð lögð fram til upplýsinga. Tekið hefur verið mið af ábendingum Skipulagsstofnunar.
Skipulags- og byggingarráð vísar uppfærðri greinargerð og tillögu Suðurhafnar til staðfestingar í bæjarstjórn.
Suðurhöfn, nýr Tækniskóli- skipulagsstofnun.pdf
112103-D001-C DSK - SUÐURHÖFN v. TÆKNISKÓLA.pdf
112003-GRG-001-V05 DSK Suðurhöfn.pdf
2. 2603640 - Vatnshlíð lífsgæðakjarni deiliskipulag
Lögð fram skipulagslýsing fyrir lífsgæðakjarna á um 7ha svæði í vesturhluta Vatnshlíðar.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að leita umsagna við skipulagslýsingu lífsgæðakjarna í Vatnshlíð og vísar erindinu til staðfestingar í bæjarstjórn.
260422 Vatnshlíð, skipulagslýsing.pdf
3. 2511390 - Óseyrarbraut 26, breyting á deiliskipulagi
Á fundi bæjarstjórnar þann 11. febrúar sl. var samþykkt að auglýsa breytingu á deiliskipulagi Suðurhafnar vegna Óseyrarbrautar 26. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits, aukningu nhl., hámarkshæð verði 16m, kvöð um lagnir í jörð á lóðinni aflögð, þakform verði frjálst og gólfkóti hækkar. Tillagan var í auglýsingu 19. febrúar til 6. apríl 2026. Lögð fram svör við athugasemdum.
Skipulags- og byggingarráð tekur undir svör við athugasemdum og vísar því til bæjarstjórnar að samþykkja framlagða breytingu að deiliskipulagi Óseyrarbrautar 26.
Fulltrúar Samfylkingarinnar vísa til bókunar sinnar í Hafnarstjórn 21.1.2026.
Slóð á skipulagsgátt.pdf
Samantekt athugasemda og svör.pdf
25033 deiliskipulag Óseyrarbraut 26, breyting.pdf
4. 2601512 - Flensborgarhöfn, deiliskipulag
Á fundi bæjarstjórnar þann 11. febrúar sl. var samþykkt að auglýsa breytingu á deiliskipulagi Suðurhafnar vegna Flensborgarhafar. Tillagan gerir ráð fyrir nýrri uppbyggingu á svæðinu fyrir verslun, þjónustu og íbúðarbyggð. Gert er ráð fyrir að Siglingaklúbburinn, Íshúsið og Fornubúðir 8-12 verði áfram á sínum stað. Ný gata Flensborgarstræti liggur í gegnum svæðið. Tillagan var í auglýsingu 19. febrúar til 6. apríl 2026. Lögð fram svör við athugasemdum ásamt uppfærðri tillögu.
Meirihluti skipulags- og byggingarráðs tekur undir svör við athugasemdum og vísar því til bæjarstjórnar að samþykkja uppfærða breytingu í samræmi við svör við athugasemdum að deiliskipulagi Flensborgarhafnar. Fulltrúar Samfylkingarinnar sitja hjá við afgreiðslu málsins.

Fulltrúar Samfylkingarinnar benda á að öll gögn vegna málsins lágu ekki fyrir fyrr en rétt fyrir fundinn sem er ekki í samræmi við samþykktir Hafnarfjarðarbæjar. Því var ekki hægt að kynna sér málið til hlítar eða taka upplýsta afstöðu til málsins. Því sitja fulltrúar Samfylkingarinnar hjá við afgreiðslu málsins.

Ennfremur ítreka fulltrúar Samfylkingarinnar athugasemd Vegagerðarinnar þar sem bent er á að yfirstandanda vinna Vegagerðarinnar og Hafnarfjarðarbæjar er ólokið um útfærslu samgangna á svæðinu og þar með liggur ekki fyrir endanleg rýmisþörf samgöngumannvirkja. Því mælir Vegagerðin með að deiliskipulagið verði unnið samhliða slíkri vinnu eða eftir að henni lýkur, m.ö.o. að fresta samþykkt deiliskipulagsins. Þetta er í samræmi við tillögu jafnaðarfólks í skipulags- og byggingaráði og í bæjarstjórn, sem hafa ítrekað bent á að samkvæmt samgöngugreiningu Eflu er samgöngukerfi á svæðinu komið að þolmörkum og m.a. lagt til frestun á málinu þar til vinnu bæjarins og Vegagerðarinnar ljúki á endanlegri útfærslu samgöngumannvirkja.
Slóð á skipulagsgátt.pdf
2220-deiliskipulag Flensborgarhöfn-01.pdf
5. 2602471 - Hringbraut 54A, breyting á deiliskipulagi
Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 04.03.2026 var samþykkt að grenndarkynna með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga erindi Kára Eiríkssonar f.h. lóðarhafa um breytingu á deiliskipulagi. Breytingin snýr að færslu og stækkun á byggingarreit. Ástæða deiliskipulagsbreytingar er ósamræmi milli byggingarreits í gildandi deiliskipulagi og á útgefnu lóðarblaði.
Erindið var grenndarkynnt frá 17.03.2026 til 20.04.2026. Athugasemdir lagðar fram.
Lagt fram og vísað til skipulagsdeildar að svara athugasemdum.
slóð á skipulagsgátt.pdf
Stefán Már Gunnlaugsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.
6. 2602585 - Drangsskarð 15, Hádegisskarð 24, breyting á deiliskipulagi
Á fundi skipulags- og byggingarráðs þann 05.03.2026 var samþykkt að grenndarkynna tillögu að breytingu á deiliskipulagi Drangsskarðs 15 og Hádegisskarðs 24 vegna fjölgunar eigna. Tillagan var grenndarkynnt frá 18.03.2026 til 21.04.2026. Athugasemd barst. Lögð fram samantekt athugasemda og svör.
Skipulags- og byggingarráð tekur undir svör við athugasemdum og vísar því til bæjarstjórnar að samþykkja framlagða breytingu að deiliskipulagi Drangsskarðs 15 og Hádegisskarðs 24.
slóð á skipulagsgátt.pdf
Samantekt athugasemda og svör.pdf
Drangsskarð 15, Hádegisskarð 24, deiliskipulagsbreyting.pdf
Drangsskarð 15, Hádegisskarð 24, skýringauppdráttur-1.pdf
7. 2604387 - Lónsbraut, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram tillaga um að hafin verði vinna við breytingu á deiliskipulagi Lónsbrautar vegna lóðar fyrir smáhýsi.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að hafin verði vinna við breytingu á deiliskipulagi Lónsbrautar vegna nýrrar lóðar fyrir smáhýsi.
8. 2604141 - Hringrásargarður
Lagt fram erindi Gröfu og Grjót ehf. um uppbyggingu Hringrásargarðs sunnan við Hellnahraun 3. Erindinu var vísað til ráðsins úr bæjarráði 16. apríl 2026.
Skipulags- og byggingarráð tekur jákvætt í erindið.
Bæjarráð - 3705 (16.4.2026) - Hringrásargarður.pdf
Hringrásargarðurinn-kynning.pdf
9. 24011110 - Hættumat vegna jarðskjálfta og eldgosavár á höfuðborgarsvæðinu
Lagðar fram skýrslur Veðurstofu Íslands, Hraunavá á höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesi ásamt samskiptastefnu.
Lagt fram.
260421 AHS samskiptastefna_2159.pdf
Hraunavá á höfuðborgarsvæðinu_20260409 (2).pdf
Skýrsla_Hraunavá á Reykjanesi_20260409 (1).pdf
Fyrirspurnir
10. 2602651 - Flugvellir 1, MHL.01-03, fyrirspurn
Alba Solis fh. lóðarhafa leggur inn fyrirspurn er varðar lóðastækkun um allt að 6.000 fm. til vesturs og 6.500 fm. til austurs í samræmi við viljayfirlýsingu dags. 14.1.2021.
Skipulags- og byggingarráð tekur jákvætt í fyrirspurnina og bendir lóðarhafa á að vinna tillögu að deiliskipulagi í samstarfi við skipulagsdeild m.a. vegna kvaða.
20260225_Flugvellir_Fyrirspurn.pdf
Fundargerðir
11. 1901181 - Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins, fundargerðir
Lögð fram 145. fundargerð.
Svæðisskipulagsnefnd - 145.pdf
12. 2604008F - Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 100
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar.
https://hafnarfjordur.is/fundagerd/?meeting_id=JFkyDEA7NkaJF5wrJJZeVw1
13. 2604014F - Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 101
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar.
14. 2604006F - Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 104
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar.
https://hafnarfjordur.is/fundagerd/?meeting_id=jkNs0ZZ9mEitvXNyE543yA1
15. 2604013F - Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 105
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar.
https://hafnarfjordur.is/fundagerd/?meeting_id=YUaQyFQ6HE2q1znBnNrPBw1
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:11 

Til bakaPrenta