Til bakaPrenta
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 116

Haldinn Fundarsalurinn Ásfjall, Norðurhellu 2,
12.08.2026 og hófst hann kl. 10:00
Fundinn sátu: Lilja Grétarsdóttir skipulagsfulltrúi,
Berglind Guðmundsdóttir arkitekt,
Anna Margrét Tómasdóttir arkitekt,
Anne Steinbrenner starfsmaður,
Fundargerð ritaði: Aleksandra Wegrzyniak, þjónustufulltrúi


Dagskrá: 
B-hluti skipulagserindi
1. 2607281 - Suðurbakki, þjónustuhús, breyting á deiliskipulagi
Kristján Ásgeirsson f.h. Hafnarfjarðarhafnar leggur 23.07.2026 inn tillögu að breyttu deiliskipulagi. Á Suðurbakka, á reit 4.1 norðan Fornubúða 5, verði ný lóð og byggingarreitur innan hennar fyrir þjónustuhús skemmtiferðaskipa. Stærð lóðarinnar er 325,2 fm.
Erindið verður grenndarkynnt með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Suðurbakki-Þjónustuhús skemmtiferðaskipa, reitur 4.1 - Breytt deiliskipulag í grennd.pdf
2. 2608001 - Títanhella 19, breyting á deiliskipulagi
Þorleifur Eggertsson f.h. lóðarhafa sækir 04.08.2026 um breytingu á deiliskipulagi. Breytingin felst í að innkeyrslan inn á lóðina er færð um 21 m, nýtingarhlutfall helst óbreytt.
Erindið verður grenndarkynnt með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Títanhella 19, deiliskipulagsbreyting, í grennd.pdf
3. 2607194 - Óseyrarbraut 12b, breyting á deiliskipulagi
Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 21.07.2026 var samþykkt að grenndarkynna með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga erindi Kristjáns Ásgeirssonar f.h. lóðarhafa um breytingu á deiliskipulagi. Breytingin felst í að skipta lóðinni Óseyrarbraut 12B í tvær lóðir, 12B og 12C. Byggingarreitur var heill og óskiptur en verður tvískiptur við þessa breytingu, eðli máls samkvæmt, einn fyrir hvora lóð fyrir sig.
Skriflegt samþykki þeirra er grenndarkynninguna fengu liggur fyrir. Grenndarkynningu telst því lokið.
Erindinu verður lokið í samræmi við skipulagslög.
Slóð á skipulagsgátt.pdf
4. 2606432 - Álfaskeið 16, breyting á deiliskipulagi
Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 24.06.2026 var samþykkt að grenndarkynna, í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að breytingu á deiliskipulagi Miðbæjar Hraun Vesturs vegna Álfaskeiðs 16. Breytingin felst í hækkun byggingarmagns úr 300 fm í 393 fm og nýtingarhlutfall er hækkað á lóðinni úr 0,23 í 0,31 í samræmi við samþykkta aðaluppdrætti, dags. 14.09.2016. Tillagan var grenndarkynnt frá 29.06.2026 til 27.07.2026. Engar athugasemdir bárust.
Erindinu verður lokið í samræmi við skipulagslög.
slóð á skipulagsgátt.pdf
5. 2606133 - Víkingastræti 1h, breyting á deiliskipulagi
Tekin fyrir að nýju umsókn HS Veitna um nýrri lóð fyrir dreifistöð þar sem inngangur erindisins var ranglega skráður.
Inngangur var: "Breytingin felst í nýrri lóð fyrir dreifistöð HS Veitna við lóðarmörk Suðurgötu 18 í landi bæjarins."
Inngangur verður: "Breytingin felst í nýrri lóð fyrir dreifistöð HS veitna á milli lóða við Suðurgötu 14 og 18 og liggur að lóðarmörkum Suðurgötu 14 í landi bæjarins."
Annað breytist ekki.
Leiðrétting á inngangstexta samþykkt.
Slóð á skipulagsgátt.pdf
D-hluti fyrirspurnir
6. 2607283 - Háaberg 13, fyrirspurn
Jóhannes Þór Ævarsson og Herdís Rúnarsdóttir leggja þann 23.07.2026 fram fyrirspurn þess efnis að byggja yfir svalir.
Tekið er jákvætt í erindið samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 04.08.2026.
Háaberg 13, umsögn skipulags.pdf
7. 2607216 - Borgahella 11, fyrirspurn
Unnur Ólafsdóttir leggur þann 21.07.2026 fram fyrirspurn um hvort heimilt væri til frekari stækkunar á lóð Borgahellu nr. 11, jafnvel að allt svæðið milli nr. 9 og 11. Eigandi lóðarinnar við Borgahellu 11 hefur áður fengið samþykki skipulagsyfirvalda fyrir stækkun lóðarinnar um 4 m í átt að lóð nr. 9.
Tekið er jákvætt í erindið samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28.07.2026.
Borgahella 11, umsögn skipulags.pdf
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:00 

Til bakaPrenta