| |
| 1. 2605484 - Ráð og nefndir 2026-2030, kosningar | Lögð fram samþykkt bæjarstjórnar 3.6.2026 um skipan ráða og nefnda.
Menningar- og ferðamálanefnd
Aðalfulltrúi Guðbjörg Oddný Jónasdóttir Hraunbrún 48 (D) Aðalfulltrúi Sigurður Þórður Ragnarsson, Móabarði 14 (S) Aðalfulltrúi Alexander Árnason, Birkihlíð 21a (B)
Varafulltrúi Birkir Snær Brynleifsson, Norðurvangur 25 (D) Varafulltrúi Ragnar Már Jónsson, Þrastarási 39 (S) Varafulltrúi Ásdís Jóhannesdóttir, Suðurvangi 12 (B)
Áheyrnarfulltrúi Kristín Þóra L. Reynisdóttir, Norðurvangi 5 (M) Áheyrnarfulltrúi Steinar Bragi Sigurjónsson, Norðurvangi 40 (C) Varaáheyrnarfulltrúi Sigurður Orri Kristjánsson, Hjallabraut 49b (C) Varaáheyrnarfulltrúi, Stefán Sveinn Gunnarsson, Burknavöllum 19 (M) | | Menningar- og ferðamálanefnd skipar Guðbjörgu Oddnýju Jónasdóttur, formann og Sigurð Þ Ragnarsson, varaformann. | | |
|
| 2. 2606149 - Erindisbréf ráða og nefnda | | Erindisbréf lagt fram. | | Sviðsstjóra þjónustu- og þróunarsviðs falið að uppfæra erindisbréfið og leggja fram á næsta fundi. | | |
|
| 3. 2606265 - Þjónustu- og þróunarsvið. Kynning á starfsemi | | Sviðsstjóri fer yfir verkefni þjónustu- og þróunarsviðs. | | Menningar- og ferðamálanefnd þakkar sviðsstjóra þjónustu- og þróunarsviðs fyrir góða kynningu. Sérstakt fagnaðarefni er glæsilegur árangur í þjónustukönnun Gallup 2026, þar sem 83% íbúa eru ánægð með menningarmál bæjarins. Með einkunnina 4,1 kemur Hafnarfjörður afar vel út í samanburði við önnur sveitarfélög, sem staðfestir þann mikla kraft og grósku sem einkennir menningarlífið. | | StarfsemiÞogÞ2026.pdf | | |
|
| 4. 2409352 - Nýtt húsnæði fyrir bókasafn Hafnarfjarðar | | Sviðsstjóri fer yfir stöðuna á nýju bókasafni sem flytur í Fjörð í júlí. | | Menningar- og ferðamálanefnd þakkar veittar upplýsingar um stöðu flutninga Bókasafnsins í Fjörð og fagnar þeim stóra áfanga að bæjarbúar fái nýtt og öflugt samfélagshús. Sérstaklega er ánægjulegt að sjá fram á aukna þjónustu, rýmri opnunartíma og nýja sunnudagsopnun. Jafnframt vill nefndin koma á framfæri sérstöku hrósi og þökkum til starfsfólks safnsins fyrir mikla vinnu við flutningana. Við hlökkum mikið til opnunarinnar í júlí. | | |
|
| 5. 2605084 - Sjómannadagurinn 2026 | | Verkefnastjóri fer yfir hátíðarhöldin sem haldin voru í Hafnarfirði á Sjómannadaginn, 7.júní síðastliðinn. | Menningar- og ferðamálanefnd þakkar fyrir fjölbreytta og frábæra dagskrá á Sjómannadeginum síðastliðinn sunnudag. Það er virkilega ánægjulegt að sjá hversu margir gestir mættu á höfnina til að taka þátt í gleðinni. Nefndin vill koma á framfæri hrósi og þökkum til verkefnastjóra menningarmála, Hafnarfjarðarhafnar, Björgunarsveitarinnar, Hafrannsóknarstofnunar og annarra aðila á svæðinu fyrir þeirra þátt í hátíðarhöldunum. Hátíðin hefur vaxið jafnt og þétt á undanförnum árum og er sá glæsilegi árangur beinn afrakstur af þessari góðu samvinnu.
| | |
|
| 6. 2605083 - Viðburðir, sumarið 2026 | | Verkefnastjóri fer yfir hvað er framundan í sumar í Hafnarfirði, viðburðir og menningar- og heilsugöngur. | | Menningar- og ferðamálanefnd fagnar þeirri metnaðarfullu og fjölbreyttu viðburðadagskrá sem fram undan er í Hafnarfirði í sumar. Nefndin hrósar starfsfólki fyrir gott skipulag og fagnar því að menningargöngurnar verði á sínum stað alla miðvikudaga. Við hvetjum alla Hafnfirðinga til að kynna sér dagskrána vel á vef bæjarins, fjölmenna á þessa glæsilegu viðburði og njóta menningarinnar og sumarsins í bænum okkar. | | |
|
| 7. 2603176 - Þjóðhátíðardagur 2026, 17.júní | | Verkefnastjóri fer yfir dagskrá þjóðhátíðardagsins í Hafnarfirði, 17.júní 2026. | | Menningar- og ferðamálanefnd fagnar fjölbreyttri og glæsilegri dagskrá þjóðhátíðardagsins 17. júní í Hafnarfirði. Við hvetjum alla Hafnfirðinga til að fjölmenna á viðburði um allan bæ og njóta þessa hátíðardags saman frá morgni til kvölds. | | |
|
| 8. 2606272 - Ábendingar til þjónustu- og þróunarsviðs | | Hugmynd sem barst í gegnum ábendingagátt bæjarins varðandi glerhýsi á Víðistaðatúni lagt fram til umræðu. | | Menningar- og ferðamálanefnd þakkar íbúanum kærlega fyrir ábendinguna og tekur jákvætt í þessa hugmynd um uppsetningu á glerhýsi á Víðistaðatúni. Nefndin felur starfsfólki að kostnaðarmeta verkefnið og koma með hugmyndir að útfærslu. | | |
|
| 9. 2605078 - St. Jósefsspítali, 100 ára, útgáfa bókar | | Þann 12. maí síðastliðinn vísaði bæjarráð erindi frá Hollvinasamtökum St.Jósefsspítala vegna 100 ára afmælis spítalans til menningar- og ferðamálanefndar. Erindi lagt fram. | Menningar- og ferðamálanefnd felur starfsmönnum sviðsins að vinna að tillögu um verkefnið í samráði við bæjarminjavörð.
| | |
|
| 10. 2306463 - Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins | | Verkefnastjóri segir frá HITTUMST 2026. | | Menningar- og ferðamálanefnd fagnar frábærri þátttöku á ferðasýningunni HITTUMST 2026 sem Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins stóð fyrir. Sérstaklega er ánægjulegt að sjá hversu vel bás Hafnarfjarðarbæjar á sýningunni var sóttur. Það er mikilvægt fyrir bæinn að vera sýnileg á þessum vettvangi, kynna hið glæsilega framboð sem bærinn hefur upp á að bjóða og styrkja tengslanet á svæðinu. | | |
|
| |
| 11. 1410251 - Bæjarbíó, bíóráð, fundargerðir | | Fundargerð Bíóráðs frá 5.maí 2026 lögð fram. | | |
|