Til bakaPrenta
Íþrótta- og tómstundanefnd - 432

Haldinn í Lóninu Linnetsstíg 3,
03.11.2026 og hófst hann kl. 14:00
Fundinn sátu: Júlíus Andri Þórðarson aðalmaður,
Oddný Helga Einarsdóttir aðalmaður,
Kristjana Ósk Jónsdóttir áheyrnarfulltrúi,
Stefán Sveinn Gunnarsson áheyrnarfulltrúi,
Fannar Freyr Guðmundsson aðalmaður,
Tinna Rós Steinsdóttir starfsmaður.
Fundargerð ritaði: Tinna Rós Steinsdóttir, Íþróttafulltrúi
Auk ofantaldra og undirritaðra sátu fundinn Oddvör Skorasten Sigurðardóttir fyrir hönd Ungmennaráðs Hafnarfjarðar og Bjarney Jóhannsdóttir fyrir hönd foreldraráðs Hafnarfjarðar.


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2605484 - Ráð og nefndir 2026-2030, kosningar
Fannar Freyr Guðmundsson (S) var samþykktur aðalmaður í nefndina í stað Heklu Sóleyjar Arnarsdóttur (S) á fundi bæjarráðs 15.okt. Kjósa þarf nýjan varaformann nefndar í stað Heklu Sóleyjar.
Fannar Freyr Guðmundsson samþykktur einróma sem nýr varaformaður ÍTH.
3. 2609079 - Íþrótta- og viðurkenningarhátíð 2026
Farið yfir mögulegar dagsetningar fyrir hátíðina, sem og fyrirkomulag vegna kjörs á íþróttakarli, íþróttakonu og íþróttaliði ársins.
Ákveðin dagsetning fyrir íþrótta- og viðurkenningarhátíð 2026 sem haldin verður 10.janúar 2027 í íþróttahúsinu Strandgötu.
Lagt fram og samþykkt fyrirkomulag vegna framkvæmdar á kjöri á íþróttakarli, íþróttakonu og íþróttaliði ársins og íþróttafulltrúa og formanni ÍTH falið að hefja undirbúning. ÍBH falið að kalla eftir tilnefningum frá íþróttafélögum. Reglur um hátíðina og fyrirkomulag hennar verða lagðar fram til samþykkis á næsta fundi.
4. 2611100 - Álagsstýring barna í íþróttum
Ungmennaráð Hafnarfjarðar leggur fram erindi varðandi álag á ungmennií íþróttum.
Lagt fram og íþróttafulltrúa falið að kanna hjá íþróttafélögum hvort fylgst sé með álagsstýringu á börn í íþrótta- og tómstundaiðkun. Niðurstöður könnunar kynntar á næsta nefndarfundi ÍTH.
Fundargerðir
6. 2509651 - Fundargerðir ungmennaráðs
Lögð fram fundargerð Ungmennaráðs frá 20.október sl.
Lagt fram.
7. 2401611 - Íþróttabandalag Hafnarfjarðar, fundargerðir
Lögð fram fundargerð ÍBH frá 6.október 2026.
Lagt fram
8. 2401609 - Skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins (SHB) fundargerðir
Fundargerð Skíðasvæða Höfuðborgarsvæðisins nr. 442 frá 20.október sl. lögð fram.
Lagt fram
Kynningar
2. 2602450 - Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2027 og 2028-2030.
Farið yfir tillögu að greiningarvinnu á fjármálum til íþróttafélaga.
Nefndin þakkar kynninguna og felur íþróttafulltrúa að ljúka heildstæðri og rekjanlegri greiningu á framlögum bæjarins til íþróttafélaga. Greiningin nái bæði til beinna og óbeinna framlaga og sýni framlag á hvern iðkanda hjá hverju félagi, sundurliðað eftir yngri og eldri iðkendum. Jafnframt verði gerð grein fyrir eignarhaldi og leigusamningum vegna mannvirkjanna. Þá verður tímaúthlutun ÍBH sérstaklega skoðuð, bæði þegar kemur að úthlutunarferli og nýtingu á tímum sem úthlutað er til ÍBH, og þeir tímar raktir til þeirra félaga sem nýta þá. Niðurstöður verði kynntar nefndinni.
5. 2503150 - Barnvænt sveitarfélag, fræðsla
Oddvör Skorastein Sigurðardóttir, fulltrúi ungmennaráðs í ÍTH, segir frá þátttöku ungmennaráðs á áhrifadögum barna á Akureyri 28.-29. október sl.
Nefndin þakkar Oddvöru fyrir góða kynningu og fagnar góðu öflugu starfi ungmennaráðs Hafnarfjarðar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:00 

Til bakaPrenta