| |
| 1. 2208015 - Aðalskipulag Hafnarfjarðar 2026-2038 | | Lögð fram uppfærð tillaga að nýju aðalskipulagi Hafnarfjarðarbæjar 2025-2040 í kjölfar niðurstöðu athugunar HMS dags. 24.3.2026. Skipulagsráðgjafi mætir til fundarins. | | Skipulags- og byggingarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja uppfærða tillögu að aðalskipulagi Hafnarfjarðarbæjar 2025-2040 í auglýsingu og kynningu. | | Slóð á skipulagsgátt.pdf | | |
|
| 2. 2604031 - Undirhlíðar breyting á deiliskipulag | | Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Undirhlíðanámu. | | Skipulags- og byggingarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja að auglýsa vinnslutillögu deiliskipulags Undirhlíðanámu. | | Undirhlíðar, dsk, greinargerð.pdf | | Undirhlíðar, dsk, uppdráttur.pdf | | |
|
| 3. 2603502 - Hraun Vestur Hjallar, reitur 3.3, breyting á deiliskipulagi | | Sveinn Bjarki Þórarinsson fh. lóðarhafa sækir 18.3.2026 um breytingu á deiliskipulagi Hrauns vesturs, Hjallar, reitur 3.3. Tillagan gerir ráð fyrir 6 fjölbýlishúsum á 4-5 hæðum auk kjallara samtals 240 íbúðir og 600 fm. atvinnuhúsnæði. Skipulagshöfundar mæta til fundarins og kynna. | | Skipulags- og byggingarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja að auglýsa tillögu að deiliskipulagi reitar 3.3, Hraun vestur Hjallar. | | 1910-deiliskipulag-01.pdf | | 1910-deiliskipulag-02-1.pdf | | 1910-Greinargerð-útg.01.pdf | | |
|
| 4. 2603640 - Vatnshlíð lífsgæðakjarni deiliskipulag | | Lögð fram tillaga um að hefja vinnu við deiliskipulag í Vatnshlíð á svæði sem ætlað er fyrir Lífsgæðakjarna í Vatnshlíð. | | Skipulags- og byggingarráð samþykkir að hefja vinnu við deiliskipulag í Vatnshlíð á svæði sem ætlað er fyrir Lífsgæðakjarna. | | |
|
| 5. 2603163 - Hjallahraun 2, breyting á deiliskipulagi | | Lögð fram beiðni um endurskoðun ákvörðunar afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 18. mars sl. um synjun um hækkun gólfkóta um 75 cm. | | Skipulags- og byggingarráð tekur undir ákvörðun afgreiðslufundar og hafnar beiðni um hækkun gólfkóta umfram heimild sem kveðið er á um í deiliskipulagi. | | |
|
| 6. 2506152 - Skólabraut 5, breyting á deiliskipulagi | Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 01.10.2025 var samþykkt að grenndarkynna erindi Jóns Grétars Magnússonar f.h. lóðarhafa um breytingu á deiliskipulagi. Tillaga gerir ráð fyrir breytingu á legu byggingarreits þannig að hann verði samsíða Hverfisgötu 56 og 58. Hámarksnýtingarhlutfall hækkar í 0,45. Fyrirhugað er að reisa einnar hæða hús með kjallara og risi á lóðinni. Erindið var grenndarkynnt frá 25.02.2026 til 25.03.2026. Athugasemdir lagðar fram. | | Lagt fram og sviðinu falið að svara athugasemdum. | | slóð á skipulagsgátt.pdf | | |
|
| 7. 2512025 - Snókalönd, breyting á deiliskipulagi | | Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti þann 11. febrúar 2026 að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Snókalanda við Bláfjallaveg. Tillagan gerir ráð fyrir nýjum byggingarreit fyrir allt að 18 kúluhúsum fyrir stjörnu- og norðurljósaskoðun, en hvert hús er allt að 18 fm að stærð ásamt 10 fm viðbyggingu með salernisaðstöðu. Á núverandi byggingarreit er einnig gert ráð fyrir 2 þjónustubyggingum til viðbótar. Tillagan var í kynningu 20. febrúar til 3. apríl 2026. Lagðar fram athugasemdir og svör við framkomnum athugasemdum. Uppfærður uppdráttur lagður fram. | | Skipulags- og byggingarráð tekur undir svör við athugasemdum og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja framlagða breytingu á deiliskipulagi Snókalanda. | | Snókalönd slóð á skipulagsgátt.pdf | | 25116-Snokalond-Aurora-dskbr-br-e-augl.pdf | | umsögn.pdf | | |
|
| 8. 2511390 - Óseyrarbraut 26, breyting á deiliskipulagi | | Á fundi bæjarstjórnar þann 11. febrúar sl var samþykkt að auglýsa breytingu á deiliskipulagi Suðurhafnar vegna Óseyrarbrautar 26. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits, aukningu nhl., hámarkshæð verði 16m, kvöð um lagnir í jörð á lóðinni aflögð, þakform verði frjálst og gólfkóti hækkar. Tillagan var í kynningu 19. febrúar til 6. apríl 2026. Athugasemdir lagðar fram. | | Lagt fram og sviðinu falið að svara athugasemdum. | | Slóð á skipulagsgátt.pdf | | |
|
Sigurjón Ingvason víkur af fundi við afgreiðslu níunda dagskrárliðar
| | 9. 2601512 - Flensborgarhöfn, deiliskipulag | | Á fundi bæjarsstjórnar þann 11. febrúar sl. var samþykkt að auglýsa breytingu á deiliskipulagi Suðurhafnar vegna Flensborgarhafar. Tillagan gerir ráð fyrir nýrri uppbyggingu á svæðinu fyrir verslun, þjónustu og íbúðarbyggð. Gert er ráð fyrir að Siglingaklúbburinn, Íshúsið og Fornubúðir 8-12 verði áfram á sínum stað. Ný gata Flensborgarstræti liggur í gegnum svæðið. Tillagan var í kynningu 19. febrúar til 6. apríl 2026. Athugasemdir lagðar fram. | | Lagt fram og sviðinu falið að svara athugasemdum. | | Slóð á skipulagsgátt.pdf | | |
|
| 10. 2209095 - Tónlistarskóli Hafnarfjarðar, framtíðarhúsnæði | | Lögð fram bókun fræðsluráðs frá 18. febrúar sl. óskað er umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs. | Lagt fram.
Fulltrúar Samfylkingarinnar og Viðreisnar vekja athygli á því að þann 15. júní, 2022, var samþykkt í bæjarstjórn að hefja vinnu við stækkun tónlistarskólans. Ekkert gerðist í málinu fyrr en fulltrúar Samfylkingarinnar lögðu fram tillögu í bæjarstjórn 9. apríl 2025 um að setja á stofn starfshóp sem hefði það hlutverk að hefja undirbúning og stækkun tónlistarskólans. Meirihluti Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks hafnaði tillögunni.
Nú örfáum vikum fyrir kosningar er meirihlutinn að vakna af djúpum dvala og reynir nú á síðustu stundu að efna gömul fyrirheit. Hér er enn eitt dæmið um hringlandann og doðann sem hefur einkennt meirihlutann allt kjörtímabilið. Á sama tíma er ljóst að breiður stuðningur er við það innan bæjarstjórnar Hafnarfjarðar að Tónlistarskóla Hafnarfjarðar verði sköpuð eins góð og traust umgjörð og mögulegt er hverju sinni. Nú reynir á að láta verkin tala. | | |
|
| 11. 2505497 - Óseyrarbraut 1-3, breyting á deiliskipulagi | | Tekið til umræðu. | | Tekið til umræðu og afgreiðslu frestað til næsta fundar. | | |
|
| |
| 12. 2603141 - Óttarsstaðir, fyrirspurn | | Lögð fram umsögn sviðsins. | | Lagt fram. | | |
|
| |
| 13. 1901181 - Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins, fundargerðir | | Lögð fram fundargerð 144. fundar. | | Svæðisskipulagsnefnd 144.pdf | | |
|
| 14. 2603014F - Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 98 | | Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar. | | https://hafnarfjordur.is/fundagerd/?meeting_id=xtjAyENRQ02kep_q7rmnug1
| |
|
| 15. 2603020F - Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 99 | | Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar. | | https://hafnarfjordur.is/fundagerd/?meeting_id=DSGwMxpl40oh1QidxeW5Q1
| |
|
| 16. 2603011F - Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 102 | | Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar. | | https://hafnarfjordur.is/fundagerd/?meeting_id=30vp2RLz20i3B870IlwVuQ1
| |
|
| 17. 2603023F - Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 103 | | Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar. | | https://hafnarfjordur.is/fundagerd/?meeting_id=TL00skJZ90qh7mVfKJjRAQ1
| |
|