| |
| 1. 2602450 - Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2027 og 2028-2030. | | Fjárhagsáætlun 2027-2030 tekin til umræðu. | Fulltrúi Framsóknar bókar:
Framsókn styður tillögu umhverfis og framkvæmdaráðs um að málið verði lagt fyrir bæjarráð en vill jafnframt taka fram að Framsókn leggur áherslu á að vinna að fjárhagsáætlun sveitarfélagsins í góðu og uppbyggilegu samstarfi við meirihluta, stjórnendur og starfsfólk sviðsins. Til þess að slíkt samstarf skili árangri þurfa kjörnir fulltrúar hins vegar að hafa aðgang að nauðsynlegum gögnum og upplýsingum sem liggja að baki þeim tillögum og forsendum sem kynntar eru. Framsókn lýsir því yfir áhyggjum af því að kynningar og umræður um fjárhagsáætlun fari fram án þess að fullnægjandi gögn liggi fyrir. Vilji er til staðar af hálfu flokksins til jákvæðs samstarfs og málefnalegrar vinnu við fjárhagsáætlunina, en slíkt samstarf verður að byggja á gagnsæi og því að fulltrúum séu afhent gögn fyrir fundi í ráðum svo þeir geti sinnt lögbundnu hlutverki sínu með ábyrgum hætti.
Fulltrúi Miðflokksins tekur undir bókun fulltrúa Framsóknar.
Fulltrúar meirihluta Samfylkingar, Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar þakka sviðinu góða vinnu við gerð fjárfestingaráætlunar þar sem lögð er áhersla á ábyrga ráðstöfun fjármuna, viðhald mikilvægra innviða bæjarins og að byggja í haginn fyrir framtíðina. Samkvæmt núverandi umgjörð um fjárfestingaráætlun er hún á ábyrgð bæjarráðs og í kjölfarið bæjarstjórn til samþykktar en er hér eingöngu til kynningar. | | |
|
| 2. 2601564 - Reykjanesfólkvangur, endurskoðun friðlýsingar | | Berglind Guðmundsdóttir mætir til fundarins og fer yfir stöðu endurskoðunarinnar. | | Umhverfis- og framkvæmdaráð þakkar kynninguna. | | |
|
| 3. 2510170 - Víðistaðakirkja, endurbætur á nánasta umhverfi | | Lagt fram erindi sóknarnefndar Víðistaðarkirkju dags. 26.8.2026. | | Umhverfis- og framkvæmdaráð þakkar fyrir erindið en getur ekki orðið við beiðninni á næsta fjárhagsári og bendir jafnframt á að almennt framkvæmir bærinn ekki innan lóðar. | | 2026_08_26_Bæjarstjóri_Víðistaðakirkja.pdf | | |
|
| 4. 2609354 - Innkaupareglur Hafnarfjarðar 2026 | | Innkaupareglur Hafnarfjarðarkaupstaðar lagðar fram. | | Lagt fram til kynningar. | | Innkaupareglur_Hafnarfjardarkaupstaðar samþykktar 15.10.2026.pdf | | |
|
| 5. 2610702 - Krýsuvíkurvegur, framkvæmdarleyfi | | Lögð fram umsókn Vegagerðarinnar um framkvæmdaleyfi fyrir lagfæringu öryggissvæðis meðfram Krýsuvíkurvegi frá Leiðarendavegi að námuvegi við Vatnsskarðsnámum tekin til umræðu. | | Lagt fram. | | Krýsuvíkurvegur 42_01 Lagfæring öryggissvæðis.pdf | | |
|
| 6. 2501521 - Krýsuvík, samningur um beitarhólf fyrir sauðfé úr Grindavík og Vogum | | Lagt fram erindi Grindavíkur dags. 9. nóvember 2026 þar sem óskað er eftir óbreyttu fyrirkomulagi um notkun á beitarhólfi í Krýsuvík á komandi sumri. | | Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir framlengingu samnings um eitt ár með skilyrðum og óskar jafnframt eftir greinargerð í síðasta lagi í september 2027 frá Grindavík um næstu skref varðandi breytingar á beitarhólfinu í Krýsuvík. | | Sauðfjárbeit í Krísuvík.pdf | | |
|
| 7. 2610515 - Starfshópur um tilfærslu verkefna heilbrigðiseftirlits | | Tekið til umræðu. | | |
|
| 8. 1809488 - Tjaldstæðið, Víðistaðatúni | | Tekinn til umræðu rekstur tjaldstæðis á Víðistaðatúni. | Umhverfis- og framkvæmdaráð hyggst ekki leggja til fjármagn til reksturs tjaldsvæðis á Víðistaðatúni. Fulltrúi Framsóknar harmar það að ekki sé tryggt að það verði áfram tjaldsvæði á Víðistaðatúni. | | |
|
| 9. 0703337 - Fráveitukerfi, tenging við Garðabæ | | Tekið til umræðu. | Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að endurgjald vegna móttöku skólps frá Garðabæ verði tímabundið ákveðið 4,5 m.kr. á mánuði, með hliðsjón af fyrirliggjandi útreikningum á kostnaði Hafnarfjarðarbæjar vegna þjónustunnar.
Jafnframt verði óskað eftir viðræðum við Garðabæ um nýjan samning um þjónustuna og framtíðarfyrirkomulag gjaldtöku. Hið tímabundna gjald gildi þar til nýtt samkomulag sveitarfélaganna liggur fyrir. | | |
|
| 10. 2611421 - Tillaga verkefnisstjórnar rammaáætlunar um virkjanahugmyndir í verndarflokk og átta verndarsvæði | | Lögð fram umsögn Hafnarfjarðarkaupstaðar. | | Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir framlagða umsögn. | | Slóð á samráðsgátt.pdf | | Umsögn Hafnarfjarðarbæjar vegna tillögu verkefnastjórnar rammaáætlunar um virkjanahugmyndir í verndarflokk og átta verndarsvæði.pdf | | |
|
| 11. 2504185 - Samþykkt um bílastæðasjóð | | Tekið til umræðu. | | |
|
| |
| 12. 2601553 - Sorpa bs., fundargerðir 2026 | | Lögð fram fundargerð 536. fundar stjórnar Sorpu bs. | | Fundargerð 536. fundar stjórnar SORPU.pdf | | Fylgiskjal 536.pdf | | |
|