Til bakaPrenta
Fjölskylduráð - 559

Haldinn í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6,
29.09.2026 og hófst hann kl. 08:30
Fundinn sátu: Árni Rúnar Þorvaldsson formaður,
Hjördís Lára Hlíðberg aðalmaður,
Jóhanna Erla Guðjónsdóttir aðalmaður,
Margrét Vala Marteinsdóttir varaformaður,
Lena Karen Andreasdóttir aðalmaður,
Fundargerð ritaði: Erna Aradóttir, ritari fjölskylduráðs
Í upphafi fundar lagði formaður til að mál nr. 2609177 - Árshlutareikningur 2026 verði tekið inn á dagskrá fundarins. Er þetta samþykkt samhljóða.


Einnig sat Guðlaug Ósk Gísladóttir, sviðsstjóri, fundinn.


Dagskrá: 
Kynning
1. 2609177 - Árshlutareikningur 2026
Helga Benediktsdóttir, sviðsstjóri fjármálasviðs Hafnarfjarðar fer yfir árshlutauppgjör bæjarins fyrir fyrstu sex mánuði ársins.
Fjölskylduráð þakkar sviðsstjóra fjármálasviðs yfirferðina.
2. 2608196 - Fjölskyldu- og barnamálasvið - kynning á starfsemi
Elín Ósk Baldursdóttir, deildarstjóri þjónustu og úrræðateymis, mætir til fundar undir þessum lið.
Fjölskylduráð þakkar Elínu Ósk, deildarstjóra þjónustu- og úrræðateymis fyrir kynninguna.
Almenn erindi
3. 2606576 - Þjónustusamningur um starfsendurhæfingu
Samningur við Stendur starfsendurhæfingu lagður fram til afgreiðslu.
Fjölskylduráð samþykkir fyrirliggjandi samning við Stendur starfsendurhæfingu og vísar honum til staðfestingar í bæjarstjórn.
Stendur - samstarfssamningur - greinargerð 29.9.2026.pdf
Stendur - samstarfssamningur - greinargerð 15.9.2026.pdf
4. 2603459 - Samþætting heimahjúkrunar og félagslegrar heimaþjónustu
Lagt fram minnisblað.
Lagt fram til kynningar.

Framsókn þakkar fyrir framlagt minnisblað og bendir á að umræða um samþættingu þessara þjónustuþátta hefur staðið yfir um nokkurt skeið og því mikilvægt að málið komist í skýrari farveg. Sérstaklega er brýnt að leyst verði úr þeim álitaefnum sem snúa að verkaskiptingu og ábyrgð milli þjónustukerfa, enda geta óskýr skil haft neikvæð áhrif á gæði þjónustunnar og upplifun notenda.

Framsókn telur mikilvægt að áfram verði unnið markvisst með öllum hlutaðeigandi aðilum að því að finna farsælustu lausnina, með þarfir íbúa að leiðarljósi. Jafnframt leggur Framsókn áherslu á að horft verði til leiða sem styðja við aukið þjónustuframboð, ekki síst hvað varðar kvöld- og helgarþjónustu, og tryggja skýra ábyrgð og skilvirka framkvæmd til framtíðar.

Framsókn mun áfram fylgja málinu eftir og leggur áherslu á að niðurstaða um framtíðarfyrirkomulag samþættrar þjónustu liggi fyrir sem fyrst þannig að ávinningur íbúa af verkefninu geti orðið að veruleika.
Minnisblað fyrir fjölskylduráð 29.09.26.pdf
5. 2609196 - Samningur um samræmda móttöku flóttafólks
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
Samræmd móttaka - samningur 29.9.2026.pdf
6. 2609470 - Atvinna með stuðningi
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
Atvinna með stuðningi greinargerð 29.9.2026.pdf
7. 2304615 - Málefni heimilislausra
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.

Framsókn þakkar fyrir framlagt minnisblað um stöðu mála er varðar uppbyggingu smáhýsa við Lónsbraut. Ljóst er að mikil þörf er á úrræðum fyrir einstaklinga sem búa við heimilisleysi og því afar mikilvægt að verkefnið gangi fram sem fyrst.
Framsókn hefur ítrekað lagt áherslu á að hraða uppbyggingu smáhýsanna og fagnar því að deiliskipulag hafi verið unnið og að málið sé komið á það stig að einungis sé beðið staðfestingar bæjarstjórnar áður en framkvæmdir geti hafist. Smáhýsin hafa verið tilbúin um nokkurt skeið og því mikilvægt að festa endanlega staðsetningu þeirra og koma þeim niður án frekari tafa.

Framsókn leggur jafnframt áherslu á að samhliða uppbyggingunni verði tryggð öflug þjónusta og stuðningur við íbúa smáhýsanna þannig að úrræðið verði raunverulegur vettvangur til aukins stöðugleika, sjálfstæðis og betri lífsgæða.
Málefni heimilislausra 29.9.2026.pdf
8. 2406062 - Samþætting þjónustu í þágu farsældar barna
Sviðsstjóri leggur fram minnisblað.
Fjölskylduráð tekur undir áhyggjur samtaka stjórnenda í velferðarþjónustu og félags fræðslustjóra um að erfitt geti verið að halda úti lögbundinni þjónustu án sérstaks fjármagns frá ríkinu. Í nýframlögðu fjárlagafrumvarpi eru framlög til sveitarfélaga vegna innleiðingar farsældarlaga að fjárhæð 1,1 milljarður króna afnumin en mikilvægt er að eyða allri óvissu um framkvæmd farsældarlaga í þágu barna.

Framsókn tekur heilshugar undir þær áhyggjur sem koma fram i bokun fjölskylduráðs um fjármögnun innleiðingar farsældarlaga. Framsókn lýsir yfir verulegum áhyggjum af þeim áformum sem fram koma í frumvarpi til fjárlaga 2027 um að fella niður sérstakt viðbótarframlag ríkisins til sveitarfélaga vegna innleiðingar laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Þrátt fyrir að innleiðingartímabili laganna sé að ljúka er verkefninu hvergi nærri lokið og ljóst að sveitarfélög bera áfram verulega ábyrgð á framkvæmd laganna og þeirri þjónustu sem þeim fylgir.

Í Hafnarfirði nema framlögin á árinu 2026 rúmum 92 milljónum króna og standa meðal annars undir þremur stöðugildum á fjölskyldu- og barnamálasviði auk starfsemi tengiliða innan mennta- og lýðheilsusviðs. Brottfall þessa fjármagns getur haft veruleg áhrif á getu sveitarfélagsins til að viðhalda þeirri þjónustu sem byggð hefur verið upp í þágu barna og fjölskyldna á grundvelli laganna. Mikilvægt er að tryggja að fjármögnun fylgi þeim verkefnum og lagaskyldum sem sveitarfélögum eru falin. Ekki verður séð að ásættanlegt sé að draga úr fjárhagslegum stuðningi á sama tíma og fyrir Alþingi liggur stefna um áframhaldandi uppbyggingu farsældarkerfisins til ársins 2030.
Farsæld barna greinargerð 29.9.2026.pdf
Skýrsla Ríkisendurskoðunar - farsæld barna 2026.pdf
9. 2308785 - Óleyfisíbúðir, fjöldi og stefnumörkun
Lagt fram.
Fjölskylduráð óskar eftir nýjum upplýsingum um fjölda óleyfisíbúða í Hafnarfirði og áætlaðan íbúafjölda í þeim. Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram.
20250326 Samantekt fyrir SH.pdf
Fundargerðir
10. 2412078 - Fundargerðir til kynningar í fjölskylduráði
Lögð fram fundargerð SSH frá 2. september sl.
Lagt fram til kynningar.
SSH - Fundargerð samráðshóps 2. sept. 2026.pdf
11. 0701243 - Málskot
Lögð fram niðurstaða málskotsnefndar í máli nr. 30-32/2026.
Fjölskylduráð staðfestir afgreiðslu málskotsnefndar.

Hrafnhildur Ágústsdóttir, lögfræðingur í velferðarmálum greindi frá nýju verklagi málskotsnefndar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:30 

Til bakaPrenta