| |
| 1. 2409352 - Nýtt húsnæði fyrir bókasafn Hafnarfjarðar | | Bókasafn Hafnarfjarðar opnaði dyrnar að nýju safni 4. ágúst 2026 í Firði. Formleg opnunarhátíð verður haldin fimmtudaginn 13. ágúst frá kl.16-18. | | Menningar- og ferðamálanefnd fagnar opnun nýs og glæsilegs Bókasafns Hafnarfjarðar á annarri hæð í Firði. Nefndin þakkar starfsfólki safnsins fyrir gott starf við flutninginn á nýjan stað. Eins og gengur við stóra flutninga mun taka safnið dálítinn tíma að hreiðra að fullu um sig og mun rýmið því halda áfram að mótast og fá enn hlýlegri blæ á komandi vikum. Með nýjum og fjölbreyttum rýmum á borð við hljóðver, rabbrými, lærdómsaðstöðu og glæsilegt barnahorn er safnið þó þegar orðið að enn öflugri hjartslætti í menningarlífi bæjarins. Við hvetjum alla Hafnfirðinga til að mæta á formlega opnunarhátíð á morgun, fimmtudaginn 13. ágúst, og skoða nýja bókasafnið okkar. | | |
|
| 2. 2605083 - Viðburðir, sumarið 2026 | | Verkefnastjóri fer yfir þá viðburði sem liðnir eru og þá sem eftir eru sumars. | | Menningar- og ferðamálanefnd þakkar verkefnastjóra fyrir góða yfirferð. Það er mikið gleðiefni hversu vel þessir frábæru viðburðir sumarsins hafa heppnast og hversu vel þeir hafa verið sóttir, bæði af Hafnfirðingum og öðrum gestum bæjarins. Nefndin vill jafnframt nota tækifærið, minna á Álfahátíðina í Hellisgerði sem fram fer næstkomandi sunnudag, 16. ágúst, og hvetja fólk til að fjölmenna. | | |
|
| 3. 2603176 - Þjóðhátíðardagur 2026, 17.júní | | Umræður um þjóðhátíðardaginn í ár. | | Menningar- og ferðamálanefnd fagnar einkar vel heppnuðum og fjölsóttum hátíðarhöldum í Hafnarfirði á þjóðhátíðardeginum, 17. júní síðastliðinn. Dagurinn var í alla staði frábær, dagskráin fjölbreytt frá morgni til kvölds og virkilega gaman að sjá bæinn okkar í blóma og iðandi af mannlífi. Nefndin vill koma á framfæri hrósi og þökkum fyrir framúrskarandi skipulag, útfærslu og utanumhald. Einnig fær fegrun bæjarins sérstakt hrós, en hún gerði hátíðisdaginn einkar glæsilegan. | | |
|
| 4. 2509841 - Almyrkvi 12. ágúst 2026, aðgerðarhópur | | Hamarinn og Ástjörn við Ásvelli meðal þeirra staða sem bæjarbúar og gestir eru hvattir til að velja til að njóta augnabliksins þegar almyrkvi verður á sólu. Einnig er hægt að koma saman á bílastæðinu við golfvöll Keili. | | |
|
| 5. 2512005 - Menningarstyrkir 2026 | | Auglýst hefur verið eftir umsóknum um menningarstyrki í seinni úhlutun ársins 2026. | | Menningar- og ferðamálanefnd vekur athygli á að umsóknarfrestur í síðari úthlutun menningarstyrkja er til og með 7.september n.k. | | |
|