Til bakaPrenta
Fræðsluráð - 582

Haldinn í Krosseyri, Linnetsstíg 3,
14.10.2026 og hófst hann kl. 14:00
Fundinn sátu: Kristín María Thoroddsen formaður,
Kolbrún Magnúsdóttir aðalmaður,
Aron Eydal Sigurðarson varamaður,
Óskar Steinn Ómarsson varamaður,
Fundargerð ritaði: Hugrún Valtýsdóttir, 
Auk ofantalinna sátu fundinn:
Árný Steindóra Steindórsdóttir sviðsstjóri, Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir þróunarfulltrúi grunnskóla, Jenný D. Gunnarsdóttir þróunarfulltrúi leikskóla, Eiríkur Stephensen skólastjóri tónlistarskóla, Berglind Kristjánsdóttir fulltrúi leikskólastjóra, Margrét Össurardóttir áheyrnarfulltrúi grunnskólakennara, Jóhanna Sigrún Jensdóttir áheyrnarfulltrúi leikskólakennara, Logi Rafn Buchholz fulltrúi ungmennaráðs, Svanhildur Ýr Sigurþórsdóttir áheyrnarfulltrúi foreldra grunnskólabarna, Margrét T. L. Hallgrímsdóttir áheyrnarfulltrúi foreldra leikskólabarna.


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2201751 - Skóladagatal 2022-2023 leikskólar
Breyting á fyrirkomulagi skertra daga
Fræðsluráð samþykkir að leiðrétta fyrri bókun ráðsins um fyrirkomulag skertra skipulagsdaga í leikskólum, þar sem orðalag hennar endurspeglaði ekki að fullu þá ákvörðun sem tekin var.
Leiðrétt bókun er svohljóðandi:
Fræðsluráð samþykkir breytingar á fyrirkomulagi skertra skipulagsdaga í leikskólum fyrir næsta skólaár þannig að skólastjórnendum verði heimilt að ákveða, í samræmi við skipulag og þarfir hvers leikskóla, á hvaða tíma dags skerðing á starfsemi leikskólans kemur til framkvæmda.

Bókun leikskólastjóra vegna skertra daga.pdf
2. 2602248 - Miðlægt bráða- og viðbragðsteymi vegna ofbeldis meðal barna
Andrea Marel, teymisstjóri Púlsins, bráða- og viðbragðsteymi höfuðborgarsvæðisins mætir til fundarins og kynnir Púlsinn.
Fræðsluráð þakkar teymisstjóra Púlsins fyrir góða kynningu á metnaðarfullu verkefni og því faglega verklagi sem þar hefur verið þróað. Fræðsluráð lýsir yfir ánægju með verkefnið og telur mikilvægt að tryggja áframhaldandi starfsemi Púlsins að loknu tveggja ára tilraunatímabili. Ráðið leggur áherslu á að unnið verði að því að festa starfsemina í sessi til framtíðar að loknu reynslutímabili.
Púlsinn_kynning á verkefninu 2026.pdf
3. 2503150 - Barnvænt sveitarfélag, fræðsla
Þórunn Þórarinsdóttir verkefnastjóri barnvæns sveitarfélags kynnir stöðu innleiðingarferils
Fræðsluráð þakkar verkefnastjóra barnvæns sveitarfélags kynninguna
Kynning fyrir ráð og nefndir haust 2026.pdf
4. 2306049 - Barnvænt sveitarfélag samstarfssamningur Rannung réttindi og þátttöku barna í leikskólum, yngsta stigi grunnskóla og frístundaheimilum
Þórunn Þórarinsdóttir verkefnastjóri barnvæns sveitarfélags kynnir samstarfssamning
Fræðsluráð þakkar verkefnastjóra barnvæns sveitarfélags kynninguna.
Réttindi og þátttaka barna_samstarf við RannUng_kynning.pdf
5. 2610329 - Fjármagn til úrbóta í öryggis- og aðgengismálum grunnskóla og tónlistarskóla Hafnarfjarðar
Erindi frá skólastjórum grunnskóla og tónlistarskóla Hafnarfjarðar lagt fram.
Erindi vísað til fjárhagsáætlunarvinnu fyrir árið 2027.

Fulltrúi grunnskólakennara tekur undir erindi skólastjóra og ítrekar hversu mikilvægt það sé að auka öryggis tilfinningu nemenda og starfsmanna í skólum bæjarins fyrir utanaðkomandi áreiti. Öryggi barna fellur undir barnvænt samfélag og nú er lag fyrir bæjinn að taka það skref að auka öryggi bæði barna og starfsmanna bæjarins.
Bréf til fræðsluráðs.pdf
6. 2610380 - Bráðabirgðaákvæði um notkun talnakvarða í námsmati við lok grunnskóla skólaárið 2026-2027
Til umræðu.
Slóð á samráðsgátt: https://island.is/samradsgatt/mal/4340
Fræðsluráð samþykkir að senda inn umsögn varðandi bráðabirgðaákvæði um notkun talnakvarða í námsmati inn á samráðsgátt vegna máls merkt nr. S-193/2026.

Umsögn fræðsluráðs Hafnarfjarðar um drög að bráðabirgðaákvæði um notkun talnakvarða í námsmati við lok grunnskóla skólaárið 2026-2027
Fræðsluráð Hafnarfjarðar lýsir yfir verulegum áhyggjum af þeirri leið sem farin er við innleiðingu fyrirhugaðra breytinga á einkunnagjöf í grunnskólum.
Ráðið telur að aðferðarfræðin við undirbúning og framsetningu breytinganna sé ábótavant. Breytingarnar eru lagðar fram án nægilegs fyrirvara og án þess að tryggt hafi verið viðeigandi samráð við sveitarfélög, skólastjórnendur, kennara og aðra hagsmunaaðila sem bera ábyrgð á framkvæmd skólastarfs í daglegum rekstri.
Fræðsluráð telur jafnframt að verið sé að hefja vinnuna á röngum stað. Áður en ráðist er í svo umfangsmiklar breytingar á mati og einkunnagjöf nemenda þarf að fara fram heildstæð endurskoðun á Aðalnámskrá grunnskóla. Aðalnámskráin er grundvöllur alls skólastarfs og þar eru skilgreind markmið náms, hæfni nemenda og viðmið um námsmat. Án slíkrar endurskoðunar er hætta á að breytingar á einkunnagjöf verði ekki nægilega vel tengdar þeim markmiðum sem skólastarfið byggir á.
Fræðsluráð Hafnarfjarðar leggur því áherslu á að:
? Endurskoðun Aðalnámskrár fari fram áður en teknar eru ákvarðanir um umfangsmiklar breytingar á einkunnagjöf enda þarf einkunnagjöf að vera í samræmi við aðalnámskrá grunnskóla.
? Tryggt verði raunverulegt samráð við sveitarfélög og fagfólk í skólakerfinu áður en endanlegar ákvarðanir verða teknar.
? Innleiðing breytinga verði undirbúin með skýrum hætti, með eðlilegum aðlögunartíma og fullnægjandi stuðningi við skólasamfélagið.
Fræðsluráð Hafnarfjarðar hvetur því mennta- og barnamálaráðuneytið til að endurskoða fyrirhugaða framkvæmd og leggja áherslu á heildstæða stefnumótun um markmið grunnskólans og námsmat áður en breytingar á einkunnagjöf eru ákveðnar.
7. 2602450 - Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2027 og 2028-2030.
Til umræðu.
Tillögum sem vísað hefur verið til fjárhagsáætlunar til umræðu.
8. 2312207 - PISA
Til umræðu.
Niðurstöður úr PISA 2025 valda áhyggjum og kalla á að við skoðum með markvissum hætti námsárangur nemenda í leik- grunnskólum Hafnarfjarðar. Fræðsluráð telur mikilvægt að horfa ekki eingöngu til niðurstaðna PISA heldur nýta heildstætt þau gögn og þá þekkingu sem þegar liggja fyrir um námsárangur og námsframvindu nemenda á undanförnum árum. Jafnframt er mikilvægt að greina þá styrkleika sem eru til staðar í skólastarfinu og byggja áfram á því sem vel er gert. Ráðið leggur því áherslu á að ráðist verði í ítarlega greiningu á námsárangri nemenda í öllum árgöngum. Sérstaklega verði horft til niðurstaðna úr lesfimiprófum, samræmdum könnunarprófum, matsferli og öðru námsmati sem liggur fyrir. Jafnframt verði skoðað hvernig námsárangur hefur þróast yfir tíma, bæði innan árganga og milli þeirra og hvort greina megi ákveðin mynstur, breytingar eða vísbendingar um þörf fyrir aukinn stuðning, einkum í íslensku, lesskilningi og stærðfræði. Við greininguna verði jafnframt tekið mið af ólíkum þörfum nemenda og aðstæðum hvers skóla.

Markmiðið er að nýta fyrirliggjandi gögn til að fá skýrari mynd af stöðu nemenda, greina hvar tækifæri til umbóta liggja og meta hvort hægt sé að bregðast fyrr við með markvissum hætti þegar vísbendingar koma fram um að námsárangur sé ekki í samræmi við væntingar. Mikilvægt er að fagþekking og reynsla kennara og skólastjórnenda nýtist í þessari vinnu og að niðurstöðurnar verði grundvöllur sameiginlegrar umbótavinnu í skólasamfélaginu. Fræðsluráð felur sviðsstjóra mennta- og lýðheilsusviðs að leggja fram tillögu að fyrirkomulagi slíkrar greiningar, þar sem fram komi hvaða gögn eru tiltæk, hvernig nýta megi þau til að meta námsframvindu nemenda og hvernig niðurstöðurnar geti nýst við að móta markvissar aðgerðir til að efla skólastarf og námsárangur til framtíðar. Jafnframt verði lagt til hvernig niðurstöðum greiningarinnar verði fylgt eftir með tímasettri aðgerðaáætlun, skýrum árangursmælikvörðum og reglulegri upplýsingagjöf til fræðsluráðs.
9. 2601013 - Skóladagatal 2026 - 2027 grunnskólar
Breyting á skóladagatali Hraunvallaskóla lögð fram til afgreiðslu.
Samþykkt.
Hraunvallaskóli_samþykkt skólaráðs.pdf
Hraunvallaskóli_uppfært skóladagatal_2026-2027.pdf
10. 2609182 - Starfsáætlanir grunnskóla 2026-2027
Starfsáætlanir lagðar fram.
Fræðsluráð staðfestir starfsáætlanir Engidalsskóla, Áslandsskóla, Skarðshlíðarskóla og Lækjarskóla.
Engidalsskóli_drög að starfsáætlun_2026-2027.pdf
Áslandsskóla_drög að starfsáætlun_2026-2027.pdf
Starfsáætlun Skarðshlíðarskóla I-III hluti_2026_2027.pdf
Starfsáætlun Skarðhlíðarskóla_IV hluti, áætlanir_2026_2027.pdf
Starfsaaetlun_Laekjarskola_2026-2027.pdf
11. 2605219 - Rekstrar- og þjónustusamningar
Rekstrarsamningur við Ferðbúann og þjónustusamningur við Skátafélagið Hraunbúa lagðir fram.
12. 1804550 - Nú framsýn menntun, þjónustusamningur
Afturkönnun erindis um fjölda hafnfiskra barna lögð fram.
Afturköllun erindis um fjölda hafnfirskra nemenda í NÚ.pdf
Fundargerðir
13. 2603378 - Barnvænt sveitarfélag, fundargerðir
Fundargerð lögð fram.
Barnvænt sveitarfélag_fundargerð_fundur5.pdf
14. 2509651 - Fundargerðir ungmennaráðs
Fundargerð lögð fram.
Fundur Ungmennaráðs Hafnarfjarðar_286.pdf
15. 2609019F - Íþrótta- og tómstundanefnd - 429
Fundargerð lögð fram.
15.1. 2604302 - Vinnuskóli Hafnarfjarðar 2026
Maríanna Wathne Kristjánsdóttir, umsjónarmaður Vinnuskóla Hafnarfjarðar, fer yfir skýrslu sumarsins.
ÍTH þakkar Maríönnu fyrir góða yfirferð og umræður. Nefndin leggur áherslu á að skoðað sé fyrirkomulag afreksstyrkja Vinnuskólans og rétt barna á veikindardögum. Einnig leggur nefndin áherslu á að skoðað verði hvernig komið verði til móts við börn á 17. og 18. aldursári með störf.
15.2. 1812064 - Reglur um frístundastyrki
Farið yfir stöðu mála varðandi breytingar á frístundastyrk.
ÍTH leggur áhersu á að fundin verði farsæl lausn á breyttu fyrirkomulagi frístundastyrks.
15.3. 2609177 - Árshlutareikningur 2026
Helga Benediktsdóttir, sviðsstjóri fjármálasviðs Hafnarfjarðar fer yfir árshlutauppgjör bæjarins fyrir fyrstu sex mánuði ársins.
ÍTH þakkar fyrir kynninguna.
15.4. 2401611 - Íþróttabandalag Hafnarfjarðar, fundargerðir
Lagðar fram fundargerðir ÍBH frá 10. og 11. fundi stjórnar.
Lagt fram.
15.5. 2401609 - Skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins (SHB) fundargerðir
Lagðar fram fundargerðir samstarfsnefndar skíðasvæðanna nr. 439 og 440, ásamt 6 mánaða uppgjöri skíðasvæðanna.
Lagt fram.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:00 

Til bakaPrenta