| |
| 1. 2601508 - Kórsjóður Hafnarfjarðar | | Umsóknir sem bárust kórsjóði Hafnarfjarðar lagðar fram til afgreiðslu. | | Menningar- og ferðamálanefnd samþykkir að úthluta 500.000 kr. styrk til Barbörukórsins, Gaflarkórsins og Karlakórsins Þrasta úr nýstofnuðum Kórsjóði Hafnarfjarðar. Nefndin felur verkefnastjóra að gera þriggja ára samstarfssamninga við kórana um framlögin í samræmi við samþykktar reglur sjóðsins. | | |
|
| 2. 2509841 - Almyrkvi 12. ágúst 2026, aðgerðarhópur | | Verkefnastjóri fer yfir undirbúning vegna Almyrkva 12.ágúst n.k. Hafnarfjarðarbær mun gefa öllum börnum 17 ára og yngri sérstök sólmyrkvagleraugu. | | Menningar- og ferðamálanefnd þakkar verkefnastjóra fyrir kynninguna á undirbúningi vegna almyrkva á sólu þann 12. ágúst næstkomandi. Nefndin fagnar því að Hafnarfjarðarbær muni gefa öllum börnum 17 ára og yngri sérstök sólmyrkvagleraugu. Þetta er frábært framtak sem tryggir að yngri kynslóðin geti fylgst með sólmyrkvanum á öruggan hátt. | | |
|
| 3. 2603176 - Þjóðhátíðardagur 2026, 17.júní | | Verkefnastjóri fer yfir undirbúning hátíðarhaldanna á þjóðhátíðardaginnn. | | Menningar- og ferðamálanefnd þakkar verkefnastjóra fyrir kynninguna á undirbúningi hátíðarhaldanna 17. júní. Nefndin fagnar því að skipulagning dagsins sé nú eflt samvinnuverkefni menningar- og ferðamálanefndar og íþrótta- og tómstundanefndar, undir yfirumsjón verkefnastjóra menningar- og ferðamála. Þetta samstarf þvert á svið mun styrkja umgjörð hátíðarinnar og tryggir um leið eðlilega dreifingu ábyrgðar og hagkvæmari samnýtingu fjármagns við framkvæmdina. Að lokum hvetur nefndin alla Hafnfirðinga til að taka þátt í fjölbreyttum skemmtiatriðum og njóta þjóðhátíðardagsins í Hafnarfirði. | | |
|
| 4. 2605083 - Viðburðir, sumarið 2026 | | Verkefnastjóri fer yfir viðburði sumarsins. Minnisblað lagt fram. | | Menningar- og ferðamálanefnd þakkar yfirferðina um viðburði sumarsins. Það er virkilega ánægjulegt að sjá hversu fjölbreytt og metnaðarfull dagskrá er framundan þar sem öll ættu að finna eitthvað við sitt hæfi, allt frá tónlist og leikhúsi yfir í stórar hátíðir og heilsueflandi viðburði. Nefndin þakkar öllum þeim stofnunum, félagasamtökum og einstaklingum sem koma að því að skapa þetta blómlega mannlíf og hvetur bæjarbúa til að taka virkan þátt og njóta sumarsins í Hafnarfirði. | | |
|
| 5. 2605084 - Sjómannadagurinn 2026 | | Verkefnastjóri fer yfir undirbúning Sjómannadagsins í Hafnarfirði. | | Menningar- og ferðamálanefnd þakkar kynninguna á undirbúningi Sjómannadagsins. Nefndin lýsir yfir mikilli ánægju með það öfluga samstarf sem verkefnastjóri leiðir við skipulagningu hátíðarhaldanna í ár, í náinni samvinnu við Hafnarfjarðarhöfn, aðra hagaðila og Björgunarsveit Hafnarfjarðar. Þetta samflot tryggir glæsilega og örugga hátíð fyrir alla fjölskylduna. | | |
|
| 6. 2404300 - Hellisgerði, Oddrúnarbær | | Farið verður í Hellisgerði og samningur við Helliskaffi undirritaður. | | Menningar- og ferðamálanefnd fagnar undirritun samnings við Helliskaffi um afnot af Oddrúnarbæ. Þetta er frábær viðbót við Hellisgerði sem mun glæða garðinn lífi og skapa hlýlegan og fjölskylduvænan samverustað fyrir bæði Hafnfirðinga og gesti bæjarins á öllum aldri. Nefndin býður nýja rekstraraðila hjartanlega velkomna í garðinn og óskar þeim velfarnaðar. | | Helliskaffi, samningur um afnot af húseigninni Reykjavíkurvegur 15 b - undirritaður.pdf | | |
|